Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
Þ
að er til
fræg
mynd
sem tekin
var úr
geimfarinu Voyager 1
þar sem myndavél
farsins var beint í átt
til jarðar í þá mund að
það var við ystu mörk sólkerfisins
okkar, eftir 40 ára ferðalag um him-
ingeiminn. Reyndar átti farið þá eft-
ir 30 þúsund ár til að komast algjör-
lega úr sólkerfinu en hver er að
telja. Föli blái punkturinn hér fyrir
ofan er jörðin séð við ystu mörk sól-
kerfisins. Á þeirri stundu að mynd-
inni var smellt af var
ég og þú, sem í dag er-
um komin á miðjan
aldur eða eldri, að lifa
lífinu. Ef ég hefði vitað
af myndatökunni hefði
ég eflaust splæst í eitt
geimbros.
Á þessum föla bláa
punkti séð úr sex
milljarða km fjarlægð
lifum við manneskj-
urnar.
Á þessum litla
punkti rúmast okkar
daglega líf.
Á þessum litla punkti elskumst
við og hötumst út í hvert annað.
Heyjum stríð vegna einhvers sem
enginn veit.
Á þessum litla punkti er velsæld
og fátækt.
Á þessum litla punkti fæðast börn
til lífs á meðan aðrir deyja, ein-
skiljanlega. Það má segja að margt
hafi verið tekið frá okkur sem lifum
á þessum föla bláa punkti þessi
dægrin.
Eftir stendur:
Hvað er það sem hefur verið tekið
frá okkur?
Einhver kann að segja snerting-
in, sem er manneskjunni mikilvæg.
En má ekki líka segja að hún sé
okkur gefin? Því allt það sem frá
okkur hefur verið tekið höfum við
fengið nýja sýn á. Allt sem við höf-
um horft á og gert hafi verið sjálf-
sagt.
Það var ekki sjálfgefið að myndin
af jörðinni var tekin. Myndin minnir
okkur á smæð okkar í alheiminum
og smæð okkar á föla bláa punkt-
inum.
hræðast það. Það er mannlegt að
óttast það sem við þekkjum ekki.
Óttinn býr nefnilega líka á þessum
föla bláa punkti ásamt svo mörgu
öðru með okkur, bæði sýnilegt og
ósýnilegt. Kannski eitthvað sem við
viljum ekki sjá en vitum að er.
Hýsill óttans þrífst ekki á þessum
föla bláa punkti heldur í huga okkar
mannanna sem höfum fengið þennan
föla bláa punkt í fangið. Þessi dægr-
in höfum við sameiginlega sem
manneskjur ábyrgð að bera. Það er
enginn undanskilinn. Það er ekki í
boði að benda hvert á annað og segja
að það sé þessum eða hinum að
kenna í hæfilegri fjarlægð. Ekki
bara einhver í fjarlægð þar sem fjar-
lægðin sveipar allt bláma einfaldleik-
ans og fegurðar og stundum ljót-
leika. Í fjarlægð endimarka
sólkerfisins virðist það lítið mál að
bera, en er ekki í raun. Við viljum
fjarlægja okkur öllu því sem er í dag,
sem ekki höfum vængi til að flytja
okkur á aðra framandi staði.
Kannski eins og við manneskjurnar
þessa dagana sem sitjum heima og
látum okkur dreyma í vöku um eitt-
hvað annað en er í raun. Það má, því
ferðaskrifstofu hugans verður ekki
lokað þrátt fyrir tilskipanir yfirvalda
og samkomubann. Þangað er alltaf
hægt að leita og róta í hillum ímynd-
unaraflsins, finna eitthvað til sem
kannski varð til á því augnabliki að
myndin af jörðinni við ystu mörk sól-
kerfisins var tekin. Til jaðars ystu
marka hugans hefur þú kannski
aldrei afráðið að ferðast eins og við
erum fús að ferðast.
Hvað sem við framleiðum sem
manneskjur eða byggjum í kringum
okkur, ökutæki, skip, flugvélar sem
flytja okkur á augnabliksstundu
milli heimsálfa burtu frá því sem er
til þess sem kann að verða, er ekki
lengur þessa dagana. Við kunnum að
hverjir saddir lífdaga, á
meðan aðrir þyrstir í líf-
ið en deyja … um það er
ekki spurt, því við fæð-
umst til að deyja.
Á þessum litla punkti
falla sorgartár og gleði-
hlátur bergmálar á
næstu stjörnum og allt
það sem við þráum og
væntum. Hugmyndir
um okkur sjálf og aðra
og lífið rúmast á þessum
föla bláa punkti.
Á þessum litla punkti
eru meginlönd sem burðast með sín
fjöll og firnindi, náttúru, skóga og
sanda, inn- og úthöf þar sem skip
sigla með mannfólkið í maganum og
neysluvörur á leið frá höfn til hafn-
ar. Undir yfirborði sjávar synda
fiskar og aðrar lífverur. Hvalir sem
gleypa til sín loftið og fara með nið-
ur í undirdjúpin og ferða-
menn kætast og munda
vélarnar sínar til að
frysta andartakið á
meðan lífið fyrir ofan læt-
ur sér fátt um finnast.
Fuglar fljúga þöndum
vængjum og manngerðar
flugvélar enn ofar í him-
inblámanum, skilja eftir
sig rendur eins og pensil-
far eftir málara en afmást
um síðir þar til nú nýver-
ið að myndin hefur
breyst. Flugvélar og
ferðamenn eru ekki lengur innan
rammans heldur það sem festist
ekki á mynd.
Hugsanir og hugarflug koma í
stað ferðamannsins og ferðalagsins.
Það kemur alltaf eitthvað í staðinn
fyrir eitthvað annað. Hugsanir eins
og hvað skyldu fuglar himins hugsa
og/eða við manneskjurnar og dýrin
Kirkjan til fólksins
Ljósmynd/Geimskipið Voyager 1
Ferðaskrifstofu
hugans verður
aldrei lokað
Hugvekja
Eftir Þór
Hauksson
Höfundur er sóknarprestur
Árbæjarkirkju.
thor@arbaejarkirkja.is
Þór Hauksson
Einhver kann
að segja snert-
ingin, sem er
manneskjunni
mikilvæg. En
má ekki líka
segja að hún sé
okkur gefin?
Jörðin úr 6 milljarða km fjarlægð
„Það má segja að margt hafi verið
tekið frá okkur sem lifum á þessum
föla bláa punkti þessi dægrin.“
Ég sá og heyrði El-
ísabetu II. drottningu
ávarpa þjóð sína í sjón-
varpi 5. apríl vegna
veirunnar sem nú herj-
ar á allar þjóðir heims.
Mér þótti hún frábær;
ég horfði tvisvar. Hún
beitti ekki blekkingum
og hún reyndi ekki að
hræða. Kjarni ræðu
hennar var: We will
meet again, og í raun sagði hún þann-
ig allt sem hún þurfti að segja til að
telja kjark í þegna sína.
Sama dag sá ég í kvöldfréttum
RÚV viðtal við íslenskan hagfræðing,
fyrrverandi ráðherra og húskarl Jó-
hönnu Sigurðardóttur.
Þar kvað við annan tón. Í sinni ráð-
herratíð fyrrverandi bauð þessi mað-
ur okkur að samþykkja Ice-save nær
skilyrðislaust, en sameinast hagkerfi
Kúbu að öðrum kosti. Nú boðar hann
verstu kreppu, sem þekkst hefur.
Hér berjast karlar og konur í
fremstu víglínu með bjartsýni og
kjark að vopni. Banka-
stjóri Seðlabankans tal-
ar kjark í þjóðina með
staðreyndir að vopni.
Þá ríður maður fram
á vígvöllinn með
hræðsluáróður að vopni.
RÚV notar mestan
hluta fréttatímans í boð-
skap hans. Boðskap,
sem þjónar þeim auma
tilgangi að hræða og
telja kjark úr okkur.
Hver kallaði hann til?
Bauð hann sig fram sjálfur?
Við skulum ekki láta honum takast.
Við skulum gera allt sem þarf til að
hrakspár hans rætist ekki. Kostaðu
hug þinn að herða.
We’ll meet again.
Elísabet II. og íslenski
hagfræðingurinn
Eftir Axel
Kristjánsson
Axel Kristjánsson
»Hver kallaði hann
til? Bauð hann sig
fram sjálfur?
Höfundur er lögmaður.
akri@internet.is
Allt um sjávarútveg