Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 Formaður Samtaka verslunar og þjón- ustu ritaði góða grein í Morgunblaðið hinn 4. apríl sl. Yfirskrift greinarinnar var „Höldum áfram – samstaðan mun fleyta okkur langt“ og fjallaði um hversu sterk og þróttmikil þjóð okkar hefur ver- ið í gegnum tíðina. Einnig kemur hann inn á mikilvægi þess að halda uppi daglegu lífi eins og að versla á netinu. Með því að versla á netinu erum við öll að leggja okkar af mörkum til að halda fyr- irtækjum gangandi og neikvæð- um afleiðingum COVID- faraldursins niðri. Það er í sjálfu sér allt rétt sem formaðurinn segir í þessari grein og full ástæða til að taka undir hvert orð. En þar sem þessi grein er rituð undir merkjum SVÞ þá óneitanlega leiðir maður hugann að því hvernig félagsmenn SVÞ haga sínum málum í þessum efn- um sjálfir. Í röðum félagsmanna eru stærstu innflytjendur á mat- vælum sem hafa höggvið verulega í íslenska framleiðslu matvæla með tilheyrandi uppsögnum og niðurskurði í innlendum landbún- aði. Í röðum félagsmanna SVÞ eru fyrirtæki sem hafa kostað gríðarlega miklu til við að halda uppi kröfum um innflutning á enn meira af matvælum en þegar er verið að flytja inn. Ef vilji fé- lagsmanna SVÞ gengi eftir yrði landbúnaður á Íslandi með öllu lagður niður. Mögu- lega er þessi grein formanns SVÞ stefnu- breyting í þessum efn- um og því ber þá að fagna. Það er óskandi að síðasta málsgrein for- mannsins sé merki um nýja stefnu SVÞ í inn- lendri framleiðslu, verslun og þjónustu. Orðrétt seg- ir: „Sýnum í verki samtakamátt okkar og skiptum við íslensk fyrir- tæki. Með því hjálpum við fyrir- tækjunum að komast yfir erfiðasta hjallann og leggja þar með grunn að kröftugri viðspyrnu atvinnulífs- ins þegar aftur birtir til.“ Það er óskandi að þessi grein sé ekki bara orðin ein heldur verði framkvæmd í verki. Ekki bara núna á COVID-tímum, heldur um alla framtíð. Enda mun „sam- staðan fleyta okkur langt“, svo ég vitni aftur í formanninn. Stefnubreyting hjá SVÞ? – Fögnum því Eftir Sigmar Vilhjálmsson Sigmar Vilhjálmsson »Mögulega er þessi grein formanns SVÞ stefnubreyting í þessum efnum og því ber þá að fagna. Höfundur er talsmaður FESK, Félags eggjabænda, svínabænda og kjúklingabænda á Íslandi. simmi@fesk.is Margir eiga erfitt með að átta sig á þeim aðstæðum sem nú ríkja um heim allan. Hverj- um hefði dottið í hug, t.d. um áramótin, að eitthvað þessu líkt biði okkar í upphafi árs? Útbreiðsla hættulegrar veiru hefur snúið lífi okkar allra á hvolf. Hver og einn bregst við á sinn hátt, eftir eðli og aðstæðum, aldri og þroska, og í gegnum þennan erfiða tíma förum við saman. Þetta mun taka enda en eftir COVID-19- faraldurinn verðum við stödd í breytt- um veruleika. Mér er eins og mörgum umhugað um þá viðkvæmustu og vil tala hér um börn sem eru af ýmsum ástæðum sér- lega viðkvæm fyrir aðstæðum sem ógna og skapa hættu. Þetta eru börn- in sem glíma við meiri kvíða en þann sem er einfaldlega hluti af almennu þroskaferli. Stundum er talað um að barn sé kvíðabarn. Þetta eru börnin þar sem kvíði stýrir lífi þeirra of mikið og sum eru greind með kvíðaröskun. Almenn kvíðaröskun einkennist af miklum óraunhæfum kvíða eða áhyggjum. Flest börn og unglingar finna af og til fyrir kvíða, til dæmis í tengslum við fjölskyldu sína, vini eða frammistöðu í skóla. Þau sem haldin eru almennri kvíðaröskun eru svo kvíðin að það hefur hamlandi áhrif á líf þeirra. Þau hafa óeðlilega miklar áhyggjur af því sem koma skal svo sem prófum eða félagslegum sam- skiptum. Einnig geta áhyggjurnar tengst því hvernig þeim gekk í fortíð- inni, því að standast áætlanir, við- halda venjum og af heilsufari. Hjá þessum börnum hefur nú bæst ofan á kvíðabunkann og það er hinn skaðlegi COVID-19-sjúkdómur. Hvernig þessi börn og öll önnur koma út úr þessu tímabili er í höndum okkar fullorð- inna og samfélagsins. Augu og eyru alls staðar Ef barn upplifir kvíða yfir langan tíma geta afleiðingar orðið lang- vinnar. Einkenni kvíða, áhrif og afleiðingar fara eftir ótal þáttum og birt- ast líkamlega, tilfinninga- lega og félagslega. Kvíð- inn er gjarnan bundinn við ytri aðstæður og snýst um hluti sem geta valdið skaða, meitt eða deytt. Eitt af því sem kvíðabörn eru hrædd við er að þeirra nánustu veikist og deyi. Óstöðug- leiki og óvissa eru streituvaldar og að geta ekki fengið skýr svör við spurningum lætur börnunum oft líða enn verr. Nú eru aðstæður með eindæmum erfiðar þegar kemur að streituvöld- um. Mörg barna sem eru með kvíða eru einnig lokuð, ofhugsa alla hluti og eru með augu og eyru alls staðar. Þau soga í sig allar fréttir og draga eigin ályktanir sem taka mið af aldri þeirra og þroska hverju sinni. Orðræðan um faraldurinn er í fjölmörgum birting- armyndum og eðli málsins samkvæmt oft ógnvænleg. Útilokað er að halda börnum frá umræðunni enda snýst samfélagið allt um vágestinn. Að reyna að leyna barn fréttum sem skilur og skynjar hvað er í gangi myndi bara gera illt verra. Samskipti, tjáning, umræða og fræðsla er börnum ávallt mikilvæg fyrir þroskaferil þeirra. Þau eru kannski oft búin að spyrja foreldra sína en finnst þau ekki fá nægjanlega skýr svör enda þau oft ekki til. Svör á borð við „þetta verður allt í lagi; ekki hafa áhyggjur; hættu nú að kvíða“ o.s.frv. eru oft aðeins skammgóður vermir. Í núverandi aðstæðum eru engar töfralausnir fyrir kvíðabörnin. Hins vegar er mikilvægt að fylgjast með þeim og fá þau til að tjá áhyggjur sín- ar frekar en að loka þær inni. Börn horfa til fyrirmynda sem oftast eru foreldrar. Þau eru næm á líðan for- eldra og skynja ef þeir eru stressaðir eða með áhyggjur. Þau horfa á lík- amsmál eins og raddblæ og svipbrigði til að meta áhyggjustig þeirra. Það skiptir miklu máli að foreldrar sýni ró og yfirvegun í öllum sínum háttum nú þegar mest á reynir. Ef fullorðna fólkið sýnir taugaveiklun og stjórn- lausa hræðsluhegðun í návist barna munu börnin verða skelfingu lostin. Ef börn sjá að þeir sem eiga að gæta öryggis þeirra eru lamaðir af ótta er öryggiskennd kippt undan fótum barnanna sjálfra. Áfallastreituröskun (Post- Traumatic Stress Disorder) Áföll hafa alltaf einhver áhrif en mismikil. Alvarleiki atburða/aðstæðna og hversu langvinnt ástandið er eru mikilvægustu þættirnir varðandi hættu á að þróa með sér áfallastreit- uröskun. Einkenni áfallastreiturösk- unar eru m.a. viðvarandi mikill ótti, hjálparleysi, lystarleysi, svefnvandi, martraðir og breyting á hegðun. Ein- kennin koma venjulega í ljós innan þriggja mánaða eftir áfallið en stund- um þó talsvert síðar eftir atburðinn. Í kjölfar áfalls, næstu vikur á eftir, verða oftast einhverjar breytingar á atferli, hugarfari og tilfinningalífi. Segja má að heimurinn sé í stríði og veiran er óvinurinn. Þegar stríðið er unnið þá bíður að koma hugsunum tengdum stríðinu úr huga barnanna. Óttinn við að „stríðið“ skelli aftur á er einn liður í áfallastreitu barna. Áfalla- streituröskun er því aðeins greind jafni börnin sig ekki með tíð og tíma eftir áfallið, ef líf þeirra hefur ekki komist í jafnvægi þrátt fyrir að dagleg rútína og viðunandi stöðugleiki séu komin á. Börn þurfa að vita að jörðin er góður staður og þau þurfa að sjá það í kringum sig. Umfram allt viljum við forðast að börn komi til með að glíma við áfallastreituröskun eftir að stríðið við COVID-19 hefur verið unnið. Líðan barna vegna COVID-19-faraldursins Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur »Börn eru næm á líðan foreldra og skynja ef þeir eru stressaðir. Þau horfa á líkamsmál eins og raddblæ og svipbrigði til að meta áhyggjustig þeirra Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins. Ég var áskrifandi að Stöð 2 golf í nokk- ur ár og líkaði að mörgu leyti vel, ef undan eru skilin töp allra mótanna og hol- anna fyrir Eldrick Woods og öðrum góð- um kylfingum eftir alla sigra þeirra, úr munni íslensku lýs- endanna. Bandarísku og bresku lýsendurnir nota yfirleitt sögnina „to win“. Kylfingar virðast vera hættir að vinna mót, þeir sigra þau og því hljóta mótin að tapa og holurnar líka. Sá frábæri kylfingur og lýs- andi Úlfar Jónsson er þó undanskil- inn þessari meinloku. Tímaflakkið var vinsælt hjá mér, þá gat ég horft þegar mér hentaði, ég gat skoðað fallega slegin högg aftur eða flýt- ispilað yfir endursýningar, sam- antektir og tilkynningar sem höfð- uðu ekki til mín. Svo gerðist það í desember sl. að forsvarsmenn stöðvarinnar settu stöðina upp þannig, að vildi ég horfa á þátt á tímaflakkinu þá þurfti ég ævinlega að horfa á auglýsingu áður en þátt- urinn sjálfur byrjaði. Þetta fannst mér svo mikil frekja af áskriftar- stöð að ég hringdi þegar í stað í Voðafón og sagði áskriftinni upp. Ég met frelsi mitt meira en svo að ég sætti mig við hvað sem er, þótt mig langi til þess að horfa á golf. Myndu menn kaupa blöð eða tíma- rit ef þeir þyrftu að staðnæmast í 10 eða 20 sekúndur og horfa á aug- lýsingu á blaðsíðunni fyrir framan sig áður en þeir fletta yfir á næstu síðu? Nú um stundir virðist það vera í tísku hjá eigendum vefsíðna á net- inu að hleypa mönnum ekki inn á síðuna nema þeir samþykki vafra- kökur, sem þýðir í rauninni það að þú samþykkir það að sér- sniðnar auglýsingar elti þig, sama á hvaða vefsíðu þú ráfar, en hönnuðirnir eða eig- endur síðunnar eru svo óskammfeilnir að halda því fram að þetta sé gert til þess að bæta upplifun þína. Þá hef ég reynt að gerast áskrifandi að netfjöl- miðlum, en þeir sem ég hef skoðað með það í huga heimta kökusamþykki með áskriftinni. Mér er frelsi mitt meira virði en svo að ég geti samþykkt þetta, og því fækkar sífellt þeim vefsíðum sem njóta heimsókna minna. Ég er til dæmis alveg hættur að skoða frétt- ir í dönskum fjölmiðlum. Þeir eru allir útkakaðir. Getur verið að netfólk nútímans sé sátt við það að láta þvinga sig til þess að horfa á auglýsingar og er því slétt sama um eltiauglýsingar? Að mínu mati er þessi framkoma fjölmiðlafyrirtækja ekki boðleg. Ég óttast að þetta hátterni verði talið viðskipaleg rétthugsun eða rétt- mælgi til framtíðar, nema fólk bregðist við og mótmæli. Vonandi er enn til fólk sem er annt um frelsi sitt. Ef margir hætta að skoða út- kökuðu miðlana og lætur vita af því getur það haft áhrif. Það dugar ekki að ein risaeðla geri slíkt. Auglýsingaþvingur Eftir Guðjón Smára Agnarsson Guðjón Smári Agnarsson » Getur verið að net- fólk nútímans sé sátt við það að láta þvinga sig til þess að horfa á auglýsingar? Höfundur er viðskiptafræðingur. gudjonsmari@outlook.com Sjúkraþjálfun og heilsunudd er mik- ilvægur þáttur í end- urhæfingu, það efast fáir um. Gott og hæft fólk sér um að end- urheimta líkamlega getu eftir slys, aðgerð- ir eða önnur veikindi. Og ekki síst til að aldr- aðir verði sem lengst færir um að lifa góðu og sjálfstæðu lífi. Það er því þjóð- hagslega hagkvæmt að sem flestir geti nýtt sér þann kost sem sjúkra- þjálfun býður upp á. Endurhæfing borgar sig margfalt til baka. Undirrituð hefur þurft að fara í nokkrar stórar aðgerðir og í hvert skipti hefur sjúkraþjálfun átt stóran þátt í því að „komast á lappir“ aftur. Eftir síðustu aðgerð (liðskipti í hné) fyrir hálfu ári var mér hent út af spítalanum eftir rúman sólarhring sem mér fannst frekar grimmt. Þá var mér sagt að ég skyldi panta sjúkra- þjálfun sem fyrst sem ég gerði. Án þess væri ég ekki komin aftur í þokkalegt form. Undanfarið hafa sjúkraþjálfarar staðið í stappi í kjarasamning- unum. Þeir eins og margt annað fólk sem vinnur í heilbrigð- isþjónustu eru auðvitað ekki á ofurkaupi miðað við álag og ábyrgð í starfinu. Á staðnum þar sem ég er í sjúkraþjálfun voru nýlega tekin upp auka-komugjöld. Þetta fær maður ekki endurgreitt frá sjúkratrygging- unni. Að vísu eru þetta „bara“ nokkrir þúsundkallar á mánuði, en mönnum sem hafa þegar of lítið milli handa munar um þetta. Sorglegt er einnig að horfa upp á það að veikt fólk neiti sér um lækn- isþjónustu eða lyfjakaup því það hef- ur ekki efni á því. „Þetta er svona vegna þess að vonast er til að við drepumst sem fyrst,“ heyrði ég sagt nýlega. Hvernig í ósköpunum má það vera í okkar ríka þjóðfélagi að stöðugt er reynt að kroppa af þeim sem hafa það verst? Dapurlegasta dæmið er hvernig er farið með lífeyrisþegana. „Lífeyrisþegi“ er ómögulegt hugtak því gamalt fólk sem hefur unnið sína vinnu áratugum saman er ekki að þiggja neitt heldur á fullan rétt á fullum greiðslum án skerðingar. Á meðan verið er að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og tekið af þeim sem eiga minnst er okkar þjóðfélag ekki til fyrir- myndar. Það þarf að bæta velferð- arkerfið verulega og vonandi hafa ráðamenn okkar þetta í huga – ekki bara með loforðum rétt fyrir kosn- ingar. Að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur Eftir Úrsúlu Jünemann »Hvernig í ósköp- unum má það vera í okkar ríka þjóðfélagi að stöðugt er reynt að kroppa af þeim sem hafa það verst? Úrsúla Jünemann Höfundur er eldri borgari. ursula@visir.is fasteignir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.