Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 56
56 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
8. apríl 1950
Halla Árnadóttir og Ágúst
Bjartmars eru Íslandsmeist-
arar í einliðaleik þegar Ís-
landsmótið í badminton fer
fram í Stykkishólmi. Halla
verður þar með fyrsti Íslands-
meistarinn í kvennaflokki.
8. apríl 1966
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik burstar Norð-
menn, 74:39, í
fyrsta leik á
Norðurlanda-
mótinu í
Kaupmanna-
höfn. Þorsteinn
Hallgrímsson
skorar 16
stig fyrir Ísland.
8. apríl 1977
Ísland sigrar Lúxemborg,
106:88, í síðasta leik sínum í C-
keppni Evrópumóts karla í
körfuknattleik í Hampstead á
Englandi og hafnar í fimmta
sæti með þrjá sigra og tvö töp.
Jón Sigurðsson og Pétur Guð-
mundsson eru báðir valdir í
úrvalslið keppninnar.
8. apríl 1983
Kvennalandsliðið í handknatt-
leik tapar fyrir Danmörku
17:21 í Strandgötunni í Hafn-
arfirði í undankeppni fyrir B-
heimsmeistarakeppnina. Guð-
ríður Guðjónsdóttir er marka-
hæst með 7/4 mörk og Erla
Rafnsdóttir skorar 4.
8. apríl 1986
Hlauparinn Sigurður Pétur
Sigmundsson nær besta tíma
Íslendings til þessa í hálf-
maraþoni í Haag í Hollandi.
Sigurður hleypur vegalengd-
ina á 1:07,09 klst. og hafnar í
25. sæti af þeim 4 þúsund sem
hlutu þessa vegalengd í götu-
hlaupinu.
8. apríl 1987
Essen verður þýskur meistari
í handknattleik undir stjórn
Jóhanns Inga
Gunnarsson en
Alfreð Gíslason
leikur jafn-
framt með lið-
inu. „Alfreð er
einn besti
varn-
arleikmaðurinn í bundeslig-
unni, leikmaður sem vinnur
álit allra og hann hefur verið
hreint frábær í vetur,“ segir
Jóhann m.a. við Morgunblaðið.
8. apríl 1992
Ísland gerir jafntefli við Ísrael
2:2 í vináttulandsleik karla í
knattspyrnu í Tel Aviv. Þau
tíðindi urðu að bræður skora
mörk Íslands, þeir Arnar og
Sigurður Grétarssynir. Er
þetta fyrsta mark Arnars fyrir
A-landsliðið.
8. apríl 2000
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu nær óvæntu jafn-
tefli, 0:0, gegn
heimsmeist-
urum Banda-
ríkjanna í vin-
áttulandsleik í
Charlotte.
Þessum úrslit-
um nær liðið
með öguðum varnarleik og
frábærri markvarsla Þóru B.
Helgadóttur.
8. apríl 2005
Ólöf María Jónsdóttir kemst í
gegnum niðurskurð keppenda
í frumraun sinni á Evr-
ópumótaröðinni í golfi en mót-
ið fer fram á Kanaríeyjum.
Á ÞESSUM DEGI
af að undirbúa liðið eitthvað en mað-
ur breytir kannski aðeins um takt
núna og strákarnir eru ekki komnir í
neitt sumarfrí, hvort sem við spilum
þessa Evrópuleiki eða ekki.“
Fjarþjálfunin gengið vel
Vegna samkomubannsins sem
ríkir á Íslandi hefur Snorri Steinn
þurft að fjarstýra liðinu und-
anfarnar vikur. Hann treystir sínum
leikmönnum hins vegar til þess að
æfa af krafti, jafnvel þótt það geti
verið ansi krefjandi á þessum tím-
um.
„Þetta eru mjög sérstakir tímar
og aðstæður sem við erum að eiga
við en þetta hefur gengið. Menn
fengu ákveðin fyrirmæli sem þeir
áttu að fara eftir. Svo kemur það
bara í ljós, þegar við byrjum aftur að
æfa, hvar menn eru virkilega stadd-
ir. Við þjálfararnir höfum reynt að
fylgjast vel með þeim og fengum til
að mynda æfingavesti sem heldur
utan um alla tölfræði til þess að
fylgjast með ákefðinni hjá þeim. Eft-
ir sumarfrí kemur oftast fljótlega í
ljós hverjir hafa verið duglegastir að
æfa í pásunni og ég á ekki von á því
að það verði neitt öðruvísi. Þeir sem
hafa svo verið duglegastir að æfa fá
það oftast minna í bakið þegar allt
fer af stað aftur.“
Ekki sjálfgefinn viðsnúningur
Valsmenn byrjuðu tímabilið alls
ekki vel en liðið var með einungis 3
stig eftir fyrstu sex deildarleiki sína.
Liðið hafði hins ekki tapað í 14 leikj-
um í röð og unnið 13 þeirra þegar
tímabilið var blásið af og var það lið
sem þótti líklegast til þess að hampa
Íslandsmeistaratitilinum í vor.
„Það var kannski ekki beint högg
að tímabilið hefði verið flautað af þó
að það hafi vissulega verið svekkj-
andi að þetta skyldi enda svona. Ef
við horfum á stöðuna sem við vorum
í, og á það flug sem við vorum á, þá
hefði þetta farið af stað á allt öðrum
forsendum en fyrir pásuna. Ég ætla
samt að leyfa mér að vera nokkuð
stoltur af þessum deildarmeist-
aratitili þó að það hafi verið tveir
leikir eftir af deildarkeppninni. Það
hefur mikið gengið á hjá okkur í vet-
ur, bæði utan sem innan vallar og við
höfum lent í áföllum. Það var mikið
um meiðsli í upphafi tímabils og svo
missum við Ými Örn Gíslason á
miðju tímabili. Það var ekki sjálf-
gefið að svið myndum snúa þessu
slæma gengi við í upphafi tímabils-
ins en við gerðum það. Við náðum að
rífa okkur upp úr öllu því sem var í
gangi hjá liðinu og ég er hrikalega
stoltur af strákunum. Vissulega get-
ur maður ákveðið að vera svekktur
og allt það en ég ætla að leyfa mér
að vera vara nokuð sáttur með þetta
tímabil.“
Þurfa allir að gera sitt
Stefnt er að því að samkomu-
bannið á Íslandi verið afnumið að
einhverju leyti í byrjun maí en það
er alveg ljóst að þjálfarinn ungi mun
þurfa dágóðan tíma til þess að koma
sínu liði aftur í stand eftir tæplega
tveggja mánaða fjarveru frá hand-
boltavellinum.
„Maður hefur náttúrlega aldrei
lent í svona aðstæðum áður en hvað
handboltann varðar væri alveg lág-
mark fyrir okkur að æfa í allavega
tvær vikur fyrir þessa Evrópuleiki,
ef þeir fara þá fram. Á hinn bóginn
er ég ekki að fara koma liðinu í eitt-
hvert þrusuform á tveimur vikum en
við þurfum í raun bara að bíða og sjá
hvað verður því það er erfitt að taka
einhverjar stórar ákvarðanir þegar
svona mikil óvissa ríkir. Sama hvað
gerist þá munum við æfa í sumar og
ég reikna með því að við munum æfa
af fullum krafti á þeim tíma sem úr-
slitakeppnin hefði verið í fullum
gangi.“
Vegna kórónuveirufaraldursins
þurftu leikmenn Vals að taka á sig
umtalsverða launalækkun vegna
slæmrar rekstarstöðu félagsins.
„Auðvitað var þetta ekkert sem
menn óskuðu sér endilega en það
skildu allir stöðuna sem upp var
komin. Það samþykktu þetta allir,
þegjandi og hljóðalaust, og það kom
aldrei til greina hjá neinum leik-
manni liðsins að hafna þessu. Staðan
er erfið, hvert sem litið er í þjóð-
félaginu, og það þurfa allir að gera
sitt,“ bætti Snorri Steinn við í sam-
tali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Eggert
Gegnumbrot Alexander Örn Júlíusson og samherjar í Val þurfa að óbreyttu að vera tilbúnir í átök í Evrópukeppni í júní.
Ýmislegt sem gekk á í vetur
Valsmenn þurfa að halda sér við vegna mögulegra Evrópuleikja
Kom aldrei til greina að mótmæla launalækkunum í þessu árferði
HANDBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Þónokkur óvissa ríkir hjá hand-
knattleiksþjálfaranum Snorra Steini
Guðjónsyni og lærisveinum hans í
karlaliði Vals í handknattleik. Liðið
var krýnt deildarmeistari 2020 á
mánudaginn síðasta þegar hand-
knattleikssamband Íslands, HSÍ, til-
kynnti að ákveðið hefði verið að af-
lýsa restinni af tímabilinu í
handboltanum vegna kórónuveir-
unnar sem nú geisar.
Valur var í efsta sæti deildarinnar
með 30 stig þegar tveir leikir voru
eftir af tímabilinu, tveimur stigum
meira en FH sem var með 28 stig,
en öll liðin í deildinni höfðu leikið
tuttugu leiki þegar ákveðið var að
hætta keppni.
Tímabili Valsmanna er hins vegar
ekki lokið því liðið er komið áfram í
átta liða úrslit Áskorendabikars
Evrópu þar sem liðið mætir Halden
frá Noregi en stefnt er að því að sá
leikur muni fara fram dagana 1. til 7.
júní.
„Ég get ekki sagt að ákvörðun
HSÍ um að blása mótið af hafi komið
mér á óvart, “ sagði Snorri Steinn í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Þetta lá í loftinu og það kæmi
manni svo sem heldur ekkert á óvart
ef Evrópukeppnin yrði blásin af líka.
Hvað svo sem verður þá þarf ég allt-
Fjórir Íslendingar urðu danskir
meistarar í handknattleik á einu
bretti í gær þegar frekari keppni á
þessu keppnistímabili þar í landi
var aflýst. Esbjerg er meistari í
kvennaflokki með Rut Jónsdóttur
innanborðs. Aalborg er meistari í
karlaflokki með þá Janus Daða
Smárason og Ómar Inga Magnús-
son innanborðs. Þá er Arnór Atla-
son aðstoðarþjálfari liðsins. Bæði
liðin urðu meistarar annað árið í
röð en þau voru á toppnum í efstu
deildunum þegar ákvörðunin var
tekin. sport@mbl.is
Fjórir Íslendingar
urðu meistarar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðskona Rut Jónsdóttir er
meistari annað árið í röð.
Kári Garðarsson hefur verið ráðinn
þjálfari kvennaliðs Gróttu í hand-
knattleik, en hann gerði liðið að Ís-
lands- og bikarmeisturum 2015.
Varð liðið raunar Íslandsmeistari
tvö ár í röð undir stjórn hans.
Grótta leikur í 1. deildinni en
Kári skrifaði undir þriggja ára
samning við Seltirninga en hefur
stýrt karlaliði Fjölni síðustu tvö
keppnistímabil. Þjálfarinn þekkir
vel til á Seltjarnarnesi; hefur starf-
að á skrifstofu Gróttu um nokkurra
ára skeið og er framkvæmdastjóri
félagsins.
Framkvæmda-
stjórinn tekur við
Morgunblaðið/Eggert
Grótta Kári Garðarsson gerði
þriggja ára samning.