Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Sem atvinnulaus píanóleikari í
augnablikinu, þá finnst mér mikil-
vægt að líta á þessa furðulegu og
flóknu tíma sem ögrandi áskorun,“
segir Víkingur Heiðar Ólafsson.
Kastljósið er heldur betur á verkum
hans þessa dagana og þau mikið
rædd í heimi klassískrar tónlistar. Í
liðinni viku kom út þriðja plata hans
hjá Deutsche Grammophon, með leik
hans á verkum eftir frönsku tón-
skáldin Jean-Philippe Rameau (1683-
1764) og Claude Debussy (1862-
1918). Fyrir þremur árum kom
fyrsta plata hans hjá útgáfunni á
markað, með etýðum eftir samtíma-
tónskáldið Philip Glass og vakti verð-
skuldaða athygli. Einu og hálfu ári
síðar kom út plata með verkum eftir
Johann Sebastian Bach sem Vík-
ingur raðar upp með einstökum
hætti og vakti meistaraleg túlkunin
aðdáun og einróma lof og staðfesti
stöðu Víkings sem eins eftirsóttasta
einleikara sinnar kynslóðar. En sam-
hliða sívaxandi kröfum þess mark-
aðar fann hann sér þann tíma sem
þurfti til að velja tónlistina á nýju
plötuna og hljóðrita hana í Hörpu
eins og hinar. Og útkoman er hríf-
andi, eins og gagnrýnendur út um
löndin staðfesta hver á fætur öðrum;
mikið stjörnuflóð þar og lof. Platan
er sú söluhæsta á klassíska mark-
aðinum í Þýskalandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum og tónlistin meðal
þeirra vinsælustu undir hatti klass-
íkur hjá streymisveitum.
En vegna kórónuveirunnar hefur
tilvera Víkings Heiðars, rétt eins
annarra, tekið stakkaskiptum. Hann
nær ekki að kynna nýju plötuna núna
með tónleikum víða eins og staðið
hafði til. En hann hefur verið upptek-
inn við að veita fjölmiðlum út um
heimsbyggðina símaviðtöl og hefur
líka tekið þátt í að koma fram á net-
inu eins og fjöldi annarra. Á dög-
unum lék hann til að mynda heima í
stofu hjá sér á Alþjóðlega píanódeg-
inum, í margra klukkustunda útsend-
ingu Deutsche Grammophon eins og
margir aðrir af virtustu píanóleik-
urum samtímans. Nær milljón
manna horfði á útsendinguna.
„Ég hef það fínt í þessu furðu-
ástandi en það lítur þó út fyrir að ég
stígi ekki mikið á svið fyrr en í haust.
Til að mynda varð að fresta Lista-
hátíðartónleikunum sem áttu að vera
í byrjun júní, útgáfutónleikum plöt-
unnar hérna, en þeir hafa verið settir
á 6. september,“ segir Víkingur
Heiðar þegar við ræðum saman í
síma. Og hann bætir við: „Það er svo-
lítið óraunverulegt hvernig allt sem
hafði verið skipulagt er bara farið.
Eftir miklar annir mörg undanfarin
ár og tónleikahald víða er óvænt
áskorun að hafa allt í einu engar
tekjur sem sjálfstætt starfandi lista-
maður. Það var smá sjokk að átta sig
á að þetta væri raunverulega að ger-
ast, eitthvað sem ég hefði aldrei trú-
að fyrir átta vikum.“
Hann ítrekar að hann sé alls ekki
af baki dottinn og sjái spennandi
áskoranir víða. „Ég var nýverið í út-
sendingu í einum uppáhalds menn-
ingarþættinum mínum, Front Row á
BBC 4. Ég var í viðtali og spilaði í
beinni frá Hörpu og þáttastjórn-
endur hafa nú boðið mér að vera með
vikulegt innslag sem einskonar tón-
listar-fréttaritari. Fyrsta útsend-
ingin verður nú á skírdag og það
verður spennandi, en hlustendahóp-
urinn er afar fjölmennur og
skemmtilegur.
Svo ætla ég að nota tækifærið og
vinna innslög fyrir íslenska sjón-
varpið, tíu mínútna þætti þar sem ég
spila og spjalla um tónlist við Höllu
Oddnýju [eiginkonu Víkings]. Þeir
verða sendir út á RÚV strax á næst-
unni,“ segir Víkingur. „Þetta verður
svona framhald af Útúrdúr þátt-
unum, en knappari í formi og með
spjall við hljóðfærið og tónlistarflutn-
ing í forgrunni. Þetta verða svona
tónlistarmolar.“
Hvað varðar nýjar leiðir til að
koma listinni á framfæri tekur Vík-
ingur fram að hann hafi notið þess að
taka átt í útsendingunni á Alþjóðlega
píanódeginum, sem var afar heim-
ilisleg; hann var á sokkaleistunum
heima í stofu, lék nokkur lög og
ræddi við áhorfendur. Og tæknilega
var það ekki flókið. „Halla streymdi
þessu bara gegnum símann minn, við
vorum ekki einu sinni með sérstakan
míkrafón en hljóðið kom samt merki-
lega vel út; við sendum því út fyrir
um 800 þúsund manns gegnum sím-
ann. Það er hægt að gera svo margt í
dag til að ná til fólks.“
Þær vangaveltur hafa heyrst hvort
það spilli fyrir tekjumöguleikum tón-
listarfólks í framtíðinni að vera að
streyma þetta miklu efni ókeypis
þessar vikurnar, hvort neytendur
fari hreinlega að ætlast til þess að fá
gæðin frítt. Víkingur telur þetta
vandmeðfarið. „Að baki öllum þess-
um ókeypis tónleikum núna er djúp-
stæð þörf fyrir tónlist, fyrir listina.
Og auðvitað vilja menningarstofn-
anir og listamenn gefa til samfélags-
ins sem styður listir og menningu.
En fyrir einstaklingana hinsvegar,
alla listamennina sem upplifa nær al-
gjört tekjutap, þá er þetta á sama
tíma gríðarleg áskorun og ekki aug-
ljóst hvernig á að leysa það.“
Fær öðruvísi kveðjur
En hvernig er að gefa út plötu á
þessum furðutímum?
„Það er skrýtið!“ svarar Víkingur.
„Innan Deutsche Grammophon voru
vangaveltur um að fresta útgáfunni.
En það var þegar komin mikil eftir-
spurn eftir plötunni að við ákváðum
að láta vaða og það þótt ég gæti ekki
fylgt henni eftir með tónleikum í að
minnsta kosti hálft ár. Tónlistin finn-
ur oftast leiðina til sinna.
Svo kom í ljós að þetta var líklega
bara besti mögulegi tíminn til að gefa
út þessa plötu! Hún hefur strax feng-
ið mjög góða hlustun, milljónir
streyma strax á fyrstu vikunni, og
það er langtum meira en fyrri plöt-
urnar fengu í upphafi. Og viðbrögðin
eru sterk alls staðar að úr heiminum.
Ég er að fá allt öðruvísi kveðjur frá
aðdáendum en áður, þær eru hlýrri
og margar mjög persónulegar. Fólk
sendir mér sögur og veitir innsýn í líf
sitt; ég hef fengið kveðjur frá fólki
sem er heima hjá sér veikt af kór-
ónuveirunni og er að hlusta sér til
ánægju. Það er dýrmætt að heyra að
þessi plata geti spilað lítið hlutverk í
lífi fólks og glatt það á krefjandi tím-
um.
Annars er þetta sú af mínum plöt-
um sem ég hef lagt mest í – ennþá
meira en í Bach-plötuna,“ segir Vík-
ingur svo. „Debussy sagði að hlut-
verk listamannsins væri að flýja eigin
velgengni og ég fann að eftir Bach-
plötuna yrði ég að fara í einhverja
allt aðra átt. Ég upplifi Debussy Ra-
meau sem mjög persónulega plötu en
maður þarf að spila fyrir míkrófóninn
eins og maður sé að tala við trún-
aðarvin sinn. Og míkrófónninn er
alltaf að verða betri og betri vinur
minn.“
Fann fjársjóði
Víkingur Heiðar hefur áður á ferli
sínum leikið með samtöl milli tón-
skálda ólíkra tíma, til að mynda á
tónlistarhátíð sinni Reykjavík Mids-
ummer Music Festival í Hörpu.
Hvernig kom sú hugmynd til hans að
blanda saman verkum Rameau, hins
áhrifamikla óperutónskálds og tón-
listarfræðings franska barokksins og
hins ljóðræna Debussy, sem var eitt
framsæknasta tónskáldið um og upp
úr aldamótunum 1900?
„Hugmyndin kom til mín á tímum
sem fyrir mér voru örlítið sambæri-
legir við þá núna, þegar ég hafði af-
lýst nokkrum vikum af tónleikum og
var að bíða eftir fæðingu sonar míns.
Það er nákvæmlega ár síðan. Ég hef
alltaf litið á Rameau sem eitt af mest
hrífandi tónskáldum sögunnar og
ákvað einn daginn að lesa í gegnum
öll hljómborðsverk hans. Ég fann
fjársjóði sem ég trúði varla að væru
til, verk sem afar sjaldan eru flutt en
hafa að geyma stórkostlegan skáld-
skap. Og einhvern veginn leitaði hug-
urinn aftur og aftur til Debussys,
„Djúpstæð þörf fyrir tónlist“
Víkingur Heiðar teflir saman verkum eftir Debussy og Rameau á nýrri plötu Situr á toppi á
klassíska markaðarins í Þýskalandi, Bretlandi og Bandaríkjunum Þessir tímar ögrandi áskorun
Morgunblaðið/Einar Falur
Píanóleikarinn „Ég hef varla haft tíma til að átta mig á því hvað ég er lánsamur,“ segir Víkingur Heiðar.
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti.
Nánar á dyrabaer.is
HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ