Morgunblaðið - 08.04.2020, Side 64

Morgunblaðið - 08.04.2020, Side 64
af öllum ljósum og 20% af öllum vörum í vefverslun VEFKóði: verum heima ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is Skírdagur 12-18, föstudagurinn langi LOKAÐ, laugardagur 12-18, Páskadagur LOKAÐ, mánudagur 12-18 Frí heimsending Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU FYRIR ÞÁ SEM VERSLA FYRIR 5.000 EÐA MEIRA WWW.ILVA.IS GILDIR Í VEFVERSLUN Í APRÍL 25-40% Sparadu- DIAMANT loftljós. Ø18 cm. 6.995 kr. Nú 4.995 kr. Ø36 cm. 9.995 kr. Nú 7.495 kr. Ø44 cm. 14.995 kr. Nú 10.995 kr. Pétur Ben heldur tónleika í beinu streymi í viðburðaröð Mengis, Tómamengi, í kvöld kl. 20 og verður hægt að horfa á streymið á mengi.net, á Facebook og YouTube. Pétur hefur hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin, Kraumsverðlaunin og Edduna fyrir tónsmíðar sínar og verkefni hans ná allt frá þjóðlagatónlist til þungarokks, eins og segir á facebooksíðu Tómamengis. Pétur hefur líka samið verk fyrir kammersveitir og kóra og er stofn- meðlimur og fyrrverandi kórstjóri KLIÐS. Hann kemur einn fram í kvöld með gítarinn sinn. Pétur Ben í Tómamengi MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 99. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Það var kannski ekki beint högg að tímabilið hefði ver- ið flautað af þó að það hafi vissulega verið svekkjandi að þetta skyldi enda svona. Ef við horfum á stöðuna sem við vorum í, og á það flug sem við vorum á, þá hefði þetta farið af stað á allt öðrum forsendum en fyr- ir pásuna. Ég ætla samt að leyfa mér að vera nokkuð stoltur af þessum deildarmeistaratitli þó að það hafi verið tveir leikir eftir af deildarkeppninni,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Vals í handknatt- leik, meðal annars í viðtali við Morgunblaðið. »56 Ætla að leyfa mér að vera nokkuð stoltur af þessum titli ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Áhugamál manna eru mismunandi og nýkjörinn formaður knattspyrnu- deildar KR fer ekki troðnar slóðir í því efni, en vegna kórónuveirunnar er það sem lokuð bók. „Ég hef mikinn áhuga á skoskri knattspyrnu og sér- staklega á völlum liðanna í fjórum efstu deildunum,“ segir hann. Félagarnir Páll og Björn Berg Gunnarsson fóru til Bretlands fyrir þremur árum, sáu sex fótboltaleiki og heimsóttu samtals 18 velli. „Við eig- um eftir að sjá 34 af 42 völlum í Skot- landi og ætluðum að heimsækja þá núna í mars, en samkomubannið kom í veg fyrir það og við frestuðum ferð- inni til hausts,“ segir Páll. Hann bæt- ir við að dagskráin hafi verið skipu- lögð frá morgni til kvölds á sjö dögum og meðal annars hafi verið bókaðir fundir með forráðamönnum Aber- deen vegna fyrirhugaðs samstarfs við KR. Knattspyrnufélagið Celtic og teng- ing þess við Ísland og íslenskan fót- bolta varð til þess að Páll fékk áhuga á skoskum fótbolta. Þegar sagnfræð- ingurinn Stefán Pálsson, frændi Páls, var í námi í Skotlandi árið 2000 heim- sótti Páll hann til Edinborgar og þeir fóru meðal annars á leik Hearts og Dunfermline. „Þá kolféll ég fyrir liði Hearts og síðan hef ég verið forfall- inn áhugamaður um skoskan fót- bolta.“ Allir standa saman Páll lék með öllum yngri flokkum KR og eftir 2. flokk stofnaði hann ásamt félögum sínum Knattspyrnu- félag Vesturbæjar, KV. „Ég stýrði því í 10 ár sem formaður og þjálfari að stærstum hluta, en hætti að þjálfa 2014, þegar liðið féll úr 1. deild.“ Hann bætir við að hann hafi unnið sem sjálfboðaliði fyrir KR undanfarin 20 ár. Hann var formaður KR- klúbbsins í um fimm ár og hefur verið í stjórn knattspyrnudeildar undan- farin tvö ár. „Ég hef alla tíð verið mikið í kringum fótboltann,“ áréttar hann og segir að formannsembætti deildarinnar hafi ekki verið skipulagt heldur hafi mál bara þróast þannig. „Ég hef alltaf haft háleitar hug- myndir um hver markmið félagsins eiga að vera og tel mig geta komið þeim í framkvæmd enda með gott bakland, ekki síst frá bræðrum mín- um. Við höfum sterkar skoðanir á fé- laginu og teljum okkur vita hvað þurfi að gera betur.“ Hann bætir við að í ljósi samskiptabannsins hafi þetta ekki verið ákjósanlegasti tíminn til þess að taka við stjórninni. „Þetta er hins vegar verkefni af þeirri stærð- argráðu að allir leggjast á eitt til að vinna sig upp úr skaflinum.“ Liverpool er uppáhaldsfélag Páls í ensku deildinni. „Ég hef samt miklu meiri áhuga á óþekktari liðum og fer oft á leiki í ensku neðri deildunum.“ Í því sambandi nefnir hann að hann hafi í fyrra gengið til liðs við fé- lagsskapinn Luton-tvíæringinn, sem fer á tveggja ára fresti á leiki með Luton undir stjórn fyrrnefnds frænda síns. „Stefán er sennilega eini Framarinn í Vesturbænum en hann ber mikla ábyrgð á áhuga mínum á fótbolta í neðri deildum í Bretlandi. Þegar við höfum heimsótt alla velli í Skotlandi verður næsta verkefni að ljúka við að heimsækja alla velli neðrideildarfélaga á Englandi.“ Ætla að heimsækja 34 velli á sjö dögum Rangers Björn Berg Gunnarsson og Páll Kristjánsson í bikarherberginu.  Páll Kristjánsson „safnar“ fótboltavöllum í Skotlandi og á Englandi Dundee United Páll Kristjánsson í búningsklefa liðsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.