Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Blaðsíða 32
A ðkoman var skelfileg. Unglingsstúlkan sem hafði hringt kom öskr­ andi til dyra, hin 13 ára Meg­ an, og sagði lögreglumönnum að stóra systir hennar, Sa­ brina, væri að myrða móður þeirra. Inni í húsinu hittu lög­ reglumennirnir fyrir eldri unglingsstúlku, sem hélt á hníf og bolurinn sem hún klæddist var alblóðugur. Inni í hjónaherberginu lá kona í blóði sínu og var lát­ in. Þriggja ára gömul dóttir hennar sat kjökrandi inni í fataskápnum. Blóðuga stúlk­ an afhenti lögreglunni morð­ vopnið að eigin frumkvæði og veitti enga mótspyrnu við handtöku. Hvaða fólk var þetta? Þetta var á heimili hjónanna Kevins og Lisu Knoefel. Kev­ in var 43 ára gamall vörubíl­ stjóri og var að heiman þessa hræðilegu nótt. Lisa Knoefel, sem nú var látin, var 41 árs og starfaði sem félagsráð­ gjafi. Kevin og Lisa áttu tvær blóðdætur, 3ja og 13 ára, og síðan hana Sabrinu sem var 17 ára og ættleidd. Hún bar eftirnafnið Zunich fyrir ættleiðinguna. Sabrina hafði aðeins búið á heimilinu í liðlega ár. Með komu hennar á heimilið fannst félagsráð­ gjafanum Lisu fjölskylda sín vera fullkomnuð. Sabrina hafði átt erfiða æsku, hún hafði verið hjá öðrum fóstur­ foreldrum þar sem hlutirnir gengu ekki upp, og dvalist á stofnunum. En þó að það hafi verið hug­ mynd Lisu að ættleiða ungl­ ingsstúlku þá liðu ekki marg­ ir mánuðir þar til sambandið milli Lisu og hinnar ættleiddu dóttur hennar var orðið stirt. Lisu virtist sem Sabrina væri að leitast við að taka yfir hennar hlutverk og sýndi það sig í því hvernig hún ráðsk­ aðist með dætur hennar og daðraði við eiginmanninn. Lisa hafði mikla reynslu af samskiptum við unglinga með hegðunarvandamál og markalausa hegðun og taldi sig því geta tekist á við þetta. Henni fannst hún aldrei hafa ástæðu til að óttast um líf sitt allt þar til þessa hræði­ legu nótt er hún vaknaði við að dóttir hennar var að stinga hana með hnífi. Sabrina játar allt og upplýsir um ástæðuna Sabrina játaði greiðlega fyrir lögreglu að hafa myrt fóstur­ móður sína en sagði að um hefði verið að ræða sameig­ inlegt ráðabrugg hennar og Kevins. Þau hefðu átt í ástar­ sambandi mánuðum saman. Ráðagerðin hefði gengið út á að Sabrina myndi láta þetta líta út sem innbrot og ráns­ morð ókunnugs manns. Átti hún að rífa og tæta og fjar­ lægja einhver verðmæti úr húsinu. Eins og frásögnin hér að framan ber með sér fór þessi ráðagerð gjörsamlega út um þúfur enda vöknuðu Lisa og báðar dætur hennar við ósköpin. Jafnt í lögregluyfir­ heyrslum sem í réttarhöld­ unum harðneitaði Kevin nokk­ urri aðild að glæpnum. Hann neitaði því einnig að hafa átt í ástarsambandi við Sabrinu. Verjendur hans sögðu að fé­ lagslega kerfið hefði brugðist hræðilega með því að koma þessari andlega veiku stúlku fyrir á heimilinu. Engin bein sönnunargögn staðfestu aðild Kevins en auk framburðar Sabrinu kom í ljós að Kevin hafði reynt að leysa út líftryggingu Lisu daginn eftir morðið. Enn fremur hafði hann krafist þess með látum að fá að heimsækja Sa­ brinu þegar hún sat í gæslu­ varðhaldi. Kviðdómi þótti þetta nægja til að sakfella Kevin Knoefel fyrir samsæri um að fremja morð og skipulagningu á morði. Hann var ennfremur sakfelldur fyrir kynferðis­ lega misnotkun á unglingi. Hlaut hann lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Sabrina hlaut einnig afar þungan dóm, lífstíðarfangelsi, en með möguleika á reynslu­ lausn eftir 30 ár. Mál þetta hefur almennt vakið mikla viðurstyggð. Þykir Kevin vera aðalsöku­ dólgurinn og framferði hans vera ólýsanleg siðlaust. Svo virðist sem það hafi vakað fyrir honum að Sabrina tæki við hlutverki Lisu á heimilinu og saman myndu þau njóta betri fjárhags í krafti líf­ tryggingar Lisu. n SAKAMÁL Lisa Knoefel. MYND/LÖGREGLAN Í WILLOUGHLY HILLS Inni í hjónaherberginu lá kona í blóði sínu og var látin. Þriggja ára gömul dóttir hennar sat kjökrandi inni í fataskápnum. Ekki löngu eftir miðnætti þann 16. nóvember árið 2012 átti sér stað ólýsan- lega óhugnanlegt símtal í neyðarlínuna frá smábæn- um Willoughly Hills í Ohio, bæ þar sem búa um 10.000 manns. Þrettán ára stúlka var í símanum og náði vart að gera sig skiljan- lega vegna örvæntingar og skelfingar. Hún sagði að systir hennar væri að myrða móður þeirra. Eftir nokkurt þref tókst starfs- fólki neyðarlínunnar að fá heimilisfangið upp úr stúlkunni og lögregla var send á vettvang. HIÐ UNDARLEGA MÁL SABRINU Sabrina játaði greiðlega morð á fósturmóður sinni. En ástæður hennar fyrir morðinu vöktu jafnvel enn meiri hrylling og viðurstyggð en sjálfur glæpurinn. Sabrina Zunich og Kevin Knoefel. MYND/ LÖGREGLAN Í WILLOUGHLY HILLS Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is 32 FÓKUS 17. JÚLÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.