Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Blaðsíða 36
Kjötbollur og dásamlega bragðgóð pastasósa
Einn af mínum uppáhaldsheimilis-
réttum er spagettí og finnst öðrum
fjölskyldumeðlimum það alltaf jafn
gott. Ég breyti gjarnan til og útbý
gómsætar kjötbollur, í stað þess
að hafa hakk í sósu. Hérna kemur
uppskrift að góðum heimilismat,
spagettíi með heimagerðri sósu,
kjötbollum og síðast en ekki síst
heimalöguðum hvítlauksbrauð-
bollum.
Kjötbollur
Fyrir 4
500 g nautahakk
½ tsk. hvítlaukskrydd
½ tsk. salt
1/3 tsk. pipar
2 dl spínat
½ dl steinselja
Ritz-kex
2 egg
Olía til steikingar
Byrjið á því að taka um 20 Ritz-kex
og setja í matvinnsluvél.
Setjið hakk í skál ásamt eggj-
unum og ritz-kexinu og hnoðið vel
saman.
Saxið spínat og steinselju niður
örfínt og blandið saman við hakkið.
Kryddið hakkblönduna vel með,
salti, pipar og hvítlaukskryddi.
Hitið pönnu með olíu og myndið
litlar kúlur úr hakkblöndunni og
steikið á pönnunni þar til hliðarnar
eru farnar að brúnast. Setjið næst
kjötbollurnar í eldfast form og inn
í ofn á um 200 gráður í um 8-10
mínútur.
Pastasósa
1 dós tómatmauk (paste)
10-15 piccolo-tómatar
1 tsk. oreganó
1/3 tsk. salt
2 hvítlauksrif, marin
1/3 tsk. pipar
1 dl vatn
1 dl söxuð basilíka
Blandið tómatmauki og vatni saman
í pott og hrærið vel. Leyfið suðunni
aðeins að koma upp.
Saxið niður piccolo-tómata og
basilíku mjög smátt og blandið
saman við.
Kryddið sósuna að vild, sumir vilja
mikinn hvítlauk eða pipar, á meðan
aðrir vilja hafa sósuna mildari.
Ítalskar brauðbollur
450 g hveiti
220 ml volgt vatn
2,5 tsk. þurrger
1 tsk. salt
5 msk. hvítlauksolía
Oreganókrydd
Smjör
Blandið saman volgu vatni og þurr-
geri og hrærið blönduna vel saman.
Setjið hveiti í skál og blandið ger-
blöndunni, saltinu og olíunni vel
saman við.
Hnoðið deigið vel saman og leyfið
því að hefast í um 45 mínútur.
Myndið litlar kúlur og setjið á ofn-
plötu (bökunarpappír undir).
Bræðið smjör og penslið bollurnar
með því og stráið oregano kryddi
yfir.
Bakið bollurnar við 180 gráður í um
13-16 mínútur.
36 MATUR
Una í eldhúsinu
Una Guðmundsdóttir skellir hér
í ítalska veislu fyrir fjölskylduna.
Ekki er verra að gera tvöfalda
uppskrift og frysta, til þess að
eiga þegar góða veðrið kitlar og
eldhúsbrask er minna aðlaðandi.
17. JÚLÍ 2020 DV
MYNDIR/AÐSENDAR