Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Blaðsíða 40
40 FÓKUS Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðar- fræðingur svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar hún lesendum sem hafa aldr- ei verið einhleypir. VIÐ KUNNUM EKKERT ANNAÐ V ið erum búin að vera saman frá því við vorum 15 ára, höfum verið saman í 29 ár og eigum tvö börn. Við kunnum ekk- ert annað en að vera saman og okkur líður vel, en okkur hefur báðum liðið eins og við séum að fara á mis við eitt- hvað. Við höfum aldrei verið með öðrum manneskjum og höfum engan samanburð um það hvernig þetta gæti verið öðruvísi. Þetta hefur stundum valdið afbrýðisemi og vantrausti í tengslum við hvort hinn aðilinn sé að líta í kringum sig, sé að hugsa um framhjáhald eða jafn- vel skilnað og að breyta til. Þegar við ræðum þetta þá erum við sammála um að rækta sambandið okkar, en þetta er svona mara sem hangir alltaf yfir okkur. Áttu einhver ráð? Frábær spurning Takk fyrir frábæra spurn- ingu og mikið er ég glöð að þið skulið eiga svo opinská samskipti að þið getið rætt flókna líðan ykkar í tengsl- um við sambandið. Það sem myndi hræða mig væri ef þið væruð að hugsa þetta sitt í hvoru horninu, gætuð ekki rætt þetta og jafnvel stigið einhver skref sem þið svo seinna gætuð séð eftir. Allt uppi á borðum, er það ekki alltaf best? Sterkari heild Sterk sjálfsmynd hefur mest forspárgildi um hamingju í framtíðinni og því sterkari sjálfsmynd sem þú býrð yfir, því líklegra er að þú eignist maka með sterka sjálfsmynd. Ástæður þess að sambönd sem byrja á unglingsárum endast ekki alltaf alla ævi, er oft sú að fólk þroskast sitt í hvora áttina, en í þeim til- fellum þar sem verða sam- legðaráhrif, geta einstakling- arnir orðið sterkari heild en margar aðrar. Þar sem ykkar tengsl byrja að myndast á ykkar mestu mótunarárum má draga ályktun um að þið hafið þroskast saman og haft jákvæð áhrif á sjálfsmynd hvors annars. Kostirnir fleiri Við mótumst nefnilega af samböndunum sem við erum í. Það hvernig ég tala, mótast af því hvernig þú hlustar. Það hvernig ég sýni mig fer eftir því hvernig þú sérð mig. Sam- bönd móta hver við erum. Gætuð þið snúið dæminu við og hugsað: hvað höfum við sem aðrir hafa ekki? Hvað gefur þessa margra ára sér- staða okkur? Ég leyfi mér að fullyrða að kostirnir geti verið ansi mikið fleiri en gall- arnir. Þið hafið mótað hvort annað í áraraðir og fyrir vikið má segja að þið séuð sérsniðin upp á millimetra hvort að öðru. Það er meira en margir geta sagt. Þess virði? Þú talar um að þið upplifið að þið hafið misst af einhverju, en það er mikilvægt að minna sig á að stórum breytingum eins og skilnaði og nýju sam- bandi fylgja líka fylgifiskar sem þið eruð ekkert endilega spennt fyrir. Þið gætuð verið að missa af því að byrja upp á nýtt, að læra að vera ein aftur, kynnast nýjum ein- staklingi og setja saman fjöl- skyldur. Þessu fylgja nýjar áskoranir, öðruvísi vandi og mögulega eitthvað nýtt og spennandi. En þessu fylgir ekki bara bleikt ský og ham- ingja, ónei, á ykkar aldri getur þetta orðið drulluflókið verkefni, sem getur mögu- lega aldrei smollið jafn vel og þið hafið nú þegar gert hvort að öðru. Er það þess virði? Væri ekki heldur ráð að setja fókusinn á hvað þið getið gert til þess að auka spennu, ófyrirsjáanleika og nýjungar í ykkar sambandi? Þið eruð ekki búin að leggja skóna á hilluna. Það er svo margt sem þið getið gert til þess að gera þetta langa samband ykkar ennþá dýpra. Hvaða tilraunir getið þið gert í tengslum við það? Hvað þarftu frá makan- um þínum sem þú ert ekki að fá? Hvað getur þú veitt maka þínum sem þú hefur aldrei áður gert? Hugsið í lausnum Mögulega þurfið þið að setj- ast niður og endurskilgreina samband ykkar. Langar ykkur til þess að eyða meiri tíma ein eða saman? Langar ykkur til þess að prófa eitt- hvað nýtt? Í dag er töluvert meira um- burðarlyndi gagnvart ýmsum sambandsformum og pör eru farin að skilgreina sam- bönd sín á ýmsa vegu, t.d. opið samband, fjölástir, eða ákveður að hætta tímabundið saman. Ég er alls ekki að segja ykkur hvað þið eigið að gera, enda enginn sérfræðingur í ykkar lausnum, en mögulega myndi það létta þessa þungu möru sem vofir yfir ykkur, ef þið horfist í augu við þetta og hugsið í lausnum. Hvað þurfið þið svo vantraustið og óttinn hverfi? Þið hafið verið saman í 29 ár, það hlýtur að þýða að þið séuð fær um ýmislegt saman. Nýtið ykkur það sem styrk- leika og haldist í hendur í átt að ykkar lausn. n 17. JÚLÍ 2020 DV MYND/GETTY Við höfum aldrei verið með öðrum manneskjum og höfum engan samanburð um það hvernig þetta gæti verið öðruvísi?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.