Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Blaðsíða 46
46 SPORT 433 17. JÚLÍ 2020 DV
ATRIÐI
SEM GERA MIG
AÐ BETRI
FÓTBOLTAMANNI
Pablo Punyed, knattspyrnumaður
hjá KR, veit hvað þarf til að ná
árangri. Hann leggur rækt við hið
smáa jafnt sem hið stóra, allt frá
því að búa um rúmið sitt daglega
og vanda hversdagsverkin, til
þess að setja sér ævimarkmið.
Pablo fagnaði Íslandsmeistaratitli með KR á síðustu leiktíð. Hann kemur frá El Salvador en hefur spilað á Íslandi frá 2012. MYND/ANTON BRINK
Fótaheilsa
„Að fyrirbyggja meiðsli byrjar frá
jörðinni og leiðir upp. Fæturnir eru
mikilvægasta verkfærið, það þarf
að nota þá rétt og styrkja þá. Þetta
á við um hvaða íþrótt sem er en sér-
staklega íþróttir þar sem mikið er
hlaupið eins og í fótbolta og körfu-
bolta.“
Gerðu litlu hlutina vel
„Smáatriðin skipta máli – Hvað sem
þú gerir endurspeglar allt sem þú
gerir. Ef þig langar að verða betri í
að búa um rúmið þitt, reima skóna
þína, vaska upp eða skrifa nafnið
þitt verður það að venju og endan-
lega niðurstaðan verður yfirburðar
góð.“
Svefn og endurheimt
„Eit t það mikilvægasta í að ná
árangri er að vita hvenær spennu-
stigið á að vera hátt og hvenær
spennustigið á að vera lágt. Á æf-
ingum og í keppni á spennustigið
að vera hátt. Í hvíld á spennustigið
að vera lágt. Svefn á að vera í for-
gangi.“
Hugarfar byrjanda
„Það er alltaf hægt að halda áfram
að þróa sig sem íþrót tamann.
Byrjendur eiga það til að vera ein-
beit tari heldur en reynslumeiri
leikmenn. Hugarfarið að vera ekki
hræddur við að prufa nýjungar mun
réttlæta mistök vegna þess að þú
ert að reyna að verða betri og þá
eru meiri líkur á árangri.“
Vertu meðvitaður um
sérstöðu þína og leyfðu
henni að blómstra
„Mikilvægt er að vinna í styrk-
leikum sínum. Enginn er eins sem
er frábært!“
Lærðu að læra
„Þegar þú lærir hvernig á að læra
áttarðu þig á því að íþróttir byggj-
ast upp á reynslu. Mundu að þetta
snýst um það að vera betri í dag en
í gær. Þetta snýst um framfarir en
ekki fullkomnun.“
Tæknileg færni
„Íþróttir eru misjafnar en þær krefj-
ast allar einhvers konar tæknilegrar
færni. Byrjaðu á að framkvæma
æfingarnar áður en þú færð ráð-
leggingar til að bæta þig. Eina
leiðin til að ná árangri er að gera
æfingarnar.“
Ekki vera jákvæð eða
neikvæð persóna, vertu
aðlögunarhæf
„Stundum rignir og stundum skín
sólin. Að þekkja aðstæður gerir þér
kleift að aðlagast hvaða aðstæðum
sem er.“
Lærðu að anda
„Andardrát turinn er munurinn
á milli kvíða og spennu. Gefðu
andardrætti þínum gaum. Hann er
lykillinn að hvaða athöfn sem er og
við drögum andann mörg þúsund
sinnum á dag.“
Hafðu gaman að því
sem þú ert að gera
„Íþróttir eru keppni en þær eru líka
skemmtun. Að kunna að hafa gam-
an er nauðsynlegt til að þróast.“