Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2020, Blaðsíða 40
40 FÓKUS
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðar-
fræðingur svarar spurningum lesenda um
málefni er varða fjölskylduna, börnin og
ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu
sinni svarar hún lesendum sem hafa aldr-
ei verið einhleypir.
VIÐ KUNNUM EKKERT ANNAÐ
V ið erum búin að vera saman frá því við vorum 15 ára, höfum
verið saman í 29 ár og eigum
tvö börn. Við kunnum ekk-
ert annað en að vera saman
og okkur líður vel, en okkur
hefur báðum liðið eins og við
séum að fara á mis við eitt-
hvað. Við höfum aldrei verið
með öðrum manneskjum og
höfum engan samanburð
um það hvernig þetta gæti
verið öðruvísi. Þetta hefur
stundum valdið afbrýðisemi
og vantrausti í tengslum við
hvort hinn aðilinn sé að líta
í kringum sig, sé að hugsa
um framhjáhald eða jafn-
vel skilnað og að breyta til.
Þegar við ræðum þetta þá
erum við sammála um að
rækta sambandið okkar, en
þetta er svona mara sem
hangir alltaf yfir okkur. Áttu
einhver ráð?
Frábær spurning
Takk fyrir frábæra spurn-
ingu og mikið er ég glöð að
þið skulið eiga svo opinská
samskipti að þið getið rætt
flókna líðan ykkar í tengsl-
um við sambandið. Það sem
myndi hræða mig væri ef þið
væruð að hugsa þetta sitt í
hvoru horninu, gætuð ekki
rætt þetta og jafnvel stigið
einhver skref sem þið svo
seinna gætuð séð eftir. Allt
uppi á borðum, er það ekki
alltaf best?
Sterkari heild
Sterk sjálfsmynd hefur mest
forspárgildi um hamingju í
framtíðinni og því sterkari
sjálfsmynd sem þú býrð yfir,
því líklegra er að þú eignist
maka með sterka sjálfsmynd.
Ástæður þess að sambönd
sem byrja á unglingsárum
endast ekki alltaf alla ævi,
er oft sú að fólk þroskast sitt
í hvora áttina, en í þeim til-
fellum þar sem verða sam-
legðaráhrif, geta einstakling-
arnir orðið sterkari heild en
margar aðrar. Þar sem ykkar
tengsl byrja að myndast á
ykkar mestu mótunarárum
má draga ályktun um að þið
hafið þroskast saman og haft
jákvæð áhrif á sjálfsmynd
hvors annars.
Kostirnir fleiri
Við mótumst nefnilega af
samböndunum sem við erum
í. Það hvernig ég tala, mótast
af því hvernig þú hlustar. Það
hvernig ég sýni mig fer eftir
því hvernig þú sérð mig. Sam-
bönd móta hver við erum.
Gætuð þið snúið dæminu við
og hugsað: hvað höfum við
sem aðrir hafa ekki? Hvað
gefur þessa margra ára sér-
staða okkur? Ég leyfi mér
að fullyrða að kostirnir geti
verið ansi mikið fleiri en gall-
arnir. Þið hafið mótað hvort
annað í áraraðir og fyrir
vikið má segja að þið séuð
sérsniðin upp á millimetra
hvort að öðru. Það er meira
en margir geta sagt.
Þess virði?
Þú talar um að þið upplifið að
þið hafið misst af einhverju,
en það er mikilvægt að minna
sig á að stórum breytingum
eins og skilnaði og nýju sam-
bandi fylgja líka fylgifiskar
sem þið eruð ekkert endilega
spennt fyrir. Þið gætuð verið
að missa af því að byrja upp
á nýtt, að læra að vera ein
aftur, kynnast nýjum ein-
staklingi og setja saman fjöl-
skyldur. Þessu fylgja nýjar
áskoranir, öðruvísi vandi og
mögulega eitthvað nýtt og
spennandi. En þessu fylgir
ekki bara bleikt ský og ham-
ingja, ónei, á ykkar aldri
getur þetta orðið drulluflókið
verkefni, sem getur mögu-
lega aldrei smollið jafn vel og
þið hafið nú þegar gert hvort
að öðru. Er það þess virði?
Væri ekki heldur ráð að
setja fókusinn á hvað þið getið
gert til þess að auka spennu,
ófyrirsjáanleika og nýjungar
í ykkar sambandi? Þið eruð
ekki búin að leggja skóna á
hilluna. Það er svo margt sem
þið getið gert til þess að gera
þetta langa samband ykkar
ennþá dýpra. Hvaða tilraunir
getið þið gert í tengslum við
það? Hvað þarftu frá makan-
um þínum sem þú ert ekki að
fá? Hvað getur þú veitt maka
þínum sem þú hefur aldrei
áður gert?
Hugsið í lausnum
Mögulega þurfið þið að setj-
ast niður og endurskilgreina
samband ykkar. Langar
ykkur til þess að eyða meiri
tíma ein eða saman? Langar
ykkur til þess að prófa eitt-
hvað nýtt?
Í dag er töluvert meira um-
burðarlyndi gagnvart ýmsum
sambandsformum og pör
eru farin að skilgreina sam-
bönd sín á ýmsa vegu, t.d.
opið samband, fjölástir, eða
ákveður að hætta tímabundið
saman.
Ég er alls ekki að segja
ykkur hvað þið eigið að gera,
enda enginn sérfræðingur í
ykkar lausnum, en mögulega
myndi það létta þessa þungu
möru sem vofir yfir ykkur, ef
þið horfist í augu við þetta og
hugsið í lausnum. Hvað þurfið
þið svo vantraustið og óttinn
hverfi?
Þið hafið verið saman í 29
ár, það hlýtur að þýða að þið
séuð fær um ýmislegt saman.
Nýtið ykkur það sem styrk-
leika og haldist í hendur í átt
að ykkar lausn. n
17. JÚLÍ 2020 DV
MYND/GETTY
Við höfum aldrei verið með
öðrum manneskjum og
höfum engan samanburð um
það hvernig þetta gæti verið
öðruvísi?