Fréttablaðið - 09.09.2020, Page 16
Áhrifavaldurinn Þórunn Ívarsdóttir er ein af þeim sem hlúa að heilsu og vel
líðan með vítamínum og stein
efnum frá Gula miðanum.
„Mér finnst gott að taka inn eitt
alhliða fjölvítamín eða múltí
vítamín. Þá tryggi ég að líkami
minn sé að innbyrða vel sam
setta blöndu af bætiefnum,“ segir
Þórunn sem tekur inn Múltí Vít frá
Gula miðanum sem inniheldur tólf
vítamín og tíu steinefni.
„Dagleg inntaka Múltí Vít byggir
upp líkamann og stuðlar að hreysti
og góðri heilsu. Ofan á það finnst
mér gott að breyta til og taka inn
mismunandi bætiefni eftir árstíma
eða því hvernig mér líður hverju
sinni. Til dæmis finn ég mikið fyrir
verkjum í liðum og þá er algjört
grundvallaratriði fyrir mig að taka
inn blöndu af glúkósamíni,“ upp
lýsir Þórunn.
Liðaktín Forte frá Gula Mið
anum er ný og kraftmikil blanda
virkra efna sem vinnur saman að
bættri heilsu og hámarksárangri.
„Blandan inniheldur ekki bara
glúkósamín heldur líka kondró i
tín. Með því að taka þessi tvö efni
saman hjálpar maður líkamanum
að viðhalda uppbyggingu brjósks.
Þessi tvö efni hafa möguleika á að
hægja á brjóskskemmdum í liðum
og draga úr sársauka. Einnig inni
heldur blandan túrmerik sem er
bólgueyðandi, dregur úr sársauka
og mýkir upp stífa liði,“ útskýrir
Þórunn.
Hún gætir þess einnig að taka
inn Dvítamín þegar sumri hallar
og skammdegið tekur við.
„Undanfarið hef ég fundið mik
inn mun á mér við að taka inn D
vítamín en eins og við vitum sést
lítið til sólar stóran hluta ársins. D
vítamín er oft kallað sólarvítamín
vegna þess að húðin framleiðir það
þegar hún verður fyrir áhrifum
útfjólublárra geisla. Dvítamín er
nauðsynlegt til að skjaldkirtill og
fleiri kirtlar líkamans starfi eðli
lega,“ segir Þórunn.
Virt og vistvæn vítamín
Guli miðinn er breið vítamín og
bætiefnalína sem flestir þekkja í
sjón. Henni hefur verið pakkað og
hún seld á Íslandi í næstum 30 ár.
Vítamín og bætiefni Gula miðans
eru þróuð með þarfir Íslendinga
í huga. Úrvalið er breitt og hægt
er að finna hinar ótrúlegustu
blöndur vítamína og steinefna
frá Gula miðanum. Það var Örn
Svavarsson, stofnandi Heilsu,
sem vann með það að leiðarljósi
að finna bestu mögulegu hráefni
og kenndi Íslendingum að nota
jurtir og um virkni þeirra. Því með
réttum vítamínum og bætiefnum
er hægt að stuðla að bættri heilsu
og betri líðan.
Vörunum frá Gula miðanum
er pakkað í dökk glerglös til að
varðveita gæði innihaldsefnanna
sem best og verja þau gegn birtu,
sólarljósi og mengun frá plastum
búðum. Allar umbúðir Gula
miðans eru endurvinnanlegar og
mega glösin fara í endurvinnslu
glers og tapparnir í endurvinnslu
plasts. Vörur Gula miðans eru
framleiddar í samstarfi við
bandarískt fyrirtæki og hefur
Heilsa starfað með því í rúma
þrjá áratugi. Fyrirtækið er gamalt
og rótgróið með gífurlega reynslu
í þróun og framleiðslu á víta
mínum og bætiefnum.
Sjá nánar á gulimidinn.is
Tryggir að líkaminn sé í lagi
Í hröðum heimi er streita og álag. Því er nauðsyn að taka inn vítamín og bætiefni til að tryggja að
líkaminn sé í toppstandi. Bætiefnaskortur getur valdið þreytu, sleni, þrekleysi og jafnvel vanheilsu.
Áhrifavaldurinn Þórunn Ívarsdóttir notar vítamín og bætiefni frá Gula miðanum til að byggja upp líkamann og stuðla að hreysti og góðri heilsu.
Niðurstöður rannsóknar sem gerð var í Noregi eru þær að með því að breyta skipulagi
í matvöruverslunum og auka úrval
og lækka verð á ávöxtum og græn
meti sé hægt að fá fólk til að borða
meira af þeim.
Það er töluverður félagslegur
munur á neyslumynstri Norð
manna þegar kemur að ávöxtum
og grænmeti og sterk fylgni á milli
meiri neyslu á ávöxtum, berjum
og grænmeti og aukinnar mennt
unar. Þessi munur gæti verið ein af
ástæðunum fyrir því að tekjulægra
fólk er almennt við verri heilsu en
fólk með hærri tekjur.
Ástæður sem neytendur gefa
upp fyrir því að borða ekki nóg af
ávöxtum og grænmeti eru mjög
ólíkar og nefna þeir meðal annars
lélegt aðgengi, lítil gæði, gleymsku
og áhyggjur af leifum af skordýra
eitri og áburði. En rannsakendur
ákváðu að prófa hvort aukið úrval
og aðrar breytingar í verslunum
gætu fengið fólk sem annars borð
aði þetta ekki, til að breyta hegðun
sinni. Fjallað var um rannsóknina
á vefnum Science Norway.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt
að hægt sé að hafa áhrif á val
kosti fólks með því að höfða
til undirmeðvitundarinnar og
ýta því á vingjarnlegan hátt að
betri kostum. Athugað var hvort
slíkar aðferðir virkuðu í fjórum
norskum matvörukeðjum, KIWI,
Meny, Joker og Spar. Tilgangurinn
var að sjá hvort hægt væri að ýta
neytendum í átt að heilbrigðari
valkostum og minnka þannig
félagslegan mun á heilbrigði.
Ávextir og grænmeti fengu
bestu staðsetninguna í þessum
verslunum og deildirnar voru stað
settar eins nálægt innganginum og
hægt var, svo þetta væri það fyrsta
sem þú sæir þegar þú kæmir inn í
verslunina. Þessar vörur fengu líka
meira pláss og tóku 1520% af öllu
plássi í búðinni. Úrvalið var um
leið aukið verulega og í verslunum
KIWI var einnig nokkrum sinnum
boðið upp á 15% afslátt, auk þess
sem boðið var upp á afsláttarkerfi
fyrir ávexti og grænmeti.
Sala á sítrusávöxtum jókst mest,
en svo á vínberjum, eplum og ban
önum. Ber urðu líka mikið vinsælli
en áður og sala á salötum, tóm
ötum og laukum jókst líka eftir að
úrvalið var aukið til muna.
Alls jókst sala á ávöxtum og
grænmeti um 15% frá 2015 til 2019.
Mesta aukningin varð í sölu á
grænmeti, 20%, en sala á ávöxtum
jókst um 9%. Í verslunum KIWI
jókst hún mest, um 34%.
Í þeim sýslum Noregs þar sem
menntunarstigið er hæst selst
rúmlega tvöfalt meira af græn
meti og ávöxtum en þar sem það
er lægst. En aukningin á sölu á
ávöxtum og grænmeti var hins
vegar mest í þeim sýslum sem hafa
lægsta menntunarstigið.
Í sýslunum með hæsta mennt
unarstigið jókst sala um 16%, en
þar sem það er lægst jókst hún um
allt að 254%. Þegar þessar tölur
eru leiðréttar fyrir fólksfjölda er
aukningin 11% þar sem mennt
unarstigið er hæst og 14% þar sem
það er lægst. Rannsakendur segja
að þetta sýni að hönnun matvöru
verslana geti haft áhrif á neyt
endur sem eru ekki eins duglegir
að velja hollari kosti meðvitað og
segja að það sé mikilvægt að hjálpa
neytendum að velja vel.
Getur aukið sölu á hollustu
Norsk rannsókn sýnir að með réttri
hönnun matvöruverslana sé hægt
að auka sölu á hollustu. MYND/GETTY
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R