Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.09.2020, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 09.09.2020, Qupperneq 20
Rannsóknir sýna að þegar skuldsetning stærri ríkja fer yfir 60-70% af landsframleiðslu byrjar það að hamla hagvexti, með því að ryðja úr vegi einka- fjárfestingum sem aftur fækkar arðbærum fjárfest- ingum. Agnar Tómas Möller, sjóðs- stjóri hjá Kviku Eftirspurnarskell- urinn er ekki vegna þess að ráðstöfunartekjur hafi skyndilega minnkað heldur vegna þess að fólk breytti um neysluhegðun í kjölfar heimsfaraldursins. Anna Hrefna Ingi- mundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA Þetta minnir um margt á aflabrest fyrir nokkrum áratugum sem er klassískur framboðs- brestur. Jón Bjarki Bents- son, aðalhagfræð- ingur Íslands- banka Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Við erum í flókinni stöðu Agnar Tómas Möller, sjóðsstjóri hjá Kviku, segir að vandi íslenska hagkerfisins kristallist í því að á sama tíma og verðmætasköpun hagkerfisins hefur hríðfallið er ekki samtímis hægt að hækka laun, ýta undir aukna innflutn- ingsdrifna neyslu með aukinni skuldsetningu ríkissjóðs og halda svo uppi háu sparnaðarstigi sem bæði íþyngir atvinnulífinu og setur þrýsting á krónuna. „Lausn- in er ekki fólgin í því að ganga á gjaldeyrisforðann til lengri tíma, því þá minnkar traustið á krónuna og verðbólguvæntingar hækka. Við erum í flókinni stöðu. Ef ferðaþjónustan tekur vel við sér á næsta ári gæti vandamálið horfið en ef það gerist ekki, gæt- um við verið í verulegum vanda – það þarf að ræða hreinskilið um lausnir til að minnka líkur á að við lendum þar. Meiri munur á milli launþega og atvinnu- lausra en áður Jón Bjarki Bentsson, aðalhag- fræðingur Íslandsbanka, segir að vegna þess að kaupmáttur ráðstöfunartekna þeirra sem hafi vinnu hafi aukist, meðal annars vegna lægri stýrivaxta, geri það að verkum að afkoma þeirra sem hafi vinnu og þeirra sem séu án hennar sé „meira misskipt en við höfum áður dæmi um í íslenskri hagsögu.“ COVID -19 olli ek k i eftirspurnarkreppu. „Við þær aðstæður er ekki nægur vilji á meðal heimila og fyrirtækja til að eyða og fjárfesta, og sparnaðarvilji of mikill. Neysla og önnur umsvif verða minni en efni standa til. Það sem við er að etja er að stofni til framboðsskellur. Ferðamenn koma ekki til landsins, útflutningstekjur féllu skyndilega og hömlur eru á sumum innlendum umsvifum. Þetta minnir um margt á aflabrest fyrir nokkrum áratugum sem er klassískur framboðsbrestur,“ segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð- ingur Íslandsbanka. Þórunn Sveinbjarnardóttir, for- maður BHM, sagði nýverið að nú væri eftirspurnarkreppa og til að mæta þeim vanda yrði að halda uppi eftirspurn í samfélaginu þann- ig að fyrirtæki lifi „og við komumst sæmilega heil í gegnum þetta.“ Markaðurinn ræddi við þrjá sér- fróða um málið. Anna Hrefna Ingimundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Sam- taka atvinnulífsins, segir að um sé að ræða framboðs- og eftirspurnar- skell á sama tíma. „Eftirspurnar- skellurinn er ekki vegna þess að ráðstöfunartekjur hafi skyndilega minnkað, heldur vegna þess að fólk breytti um neysluhegðun í kjölfar heimsfaraldursins. Það er rót vand- ans. Þetta er því ekki eftirspurnar- kreppa í hefðbundnum skilningi.“ Verðmætasköpun hrunið Agnar Tómas Möller, sjóðsstjóri hjá Kviku, tekur ekki undir að nú sé hefðbundin eftirspurnar- kreppa. Vandinn sé að verðmæta- sköpun í hagkerfinu hafi hrunið í kjölfar COVID-19. Ferðaþjónustan hafi skapað um þriðjung af gjald- eyristekjum sem nú skili sér ekki til þjóðarbúsins. „Eftirspurn verður ekki aukin við þessar aðstæður Við erum ekki í eftirspurnarkreppu Vandinn er ekki of mikill sparnaður heimila og fyrirtækja, heldur er um að ræða framboðsskell. Ferðamenn koma ekki til landsins. Launahækkanir muni ekki gagnast þeim fyrirtækjum sem berjast í bökkum. Óttast er að lífeyrissjóðir skapi nýja snjóhengju. Ferðamenn hættu að koma til landsins og það olli framboðsskelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK nema með frekari skuldsetningu ríkissjóðs,“ segir hann og bendir á að takmörk séu fyrir því hve langt sé hægt að ganga, enda hamli það hagvexti. Jón Bjarki segir að það að við- halda eftirspurn leiki vissulega stórt hlutverk í að kreppan verði ekki dýpri en efni standi til. Lækk- un stýrivaxta og aukin ríkisútgjöld örvi eftirspurn. „Í ljósi þess að þetta er í grunninn framboðsskellur þarf áherslan að vera á að laga framboðshliðina, létta hömlum af innlendri starfsemi og leggja auk þess áherslu á að skapa ný störf með bættu aðgengi að fjármagni, stuðla að hagfelldum skilyrðum til atvinnurekstrar og gera nýsköpun hærra undir höfði. Til skemmri tíma er hægt að ráðast í sveiflujafn- andi aðgerðir eins og mannvirkja- gerð, eins og verið er að gera.“ Taki á rót vandans Anna Hrefna segir að nauðsynlegt sé að ráðast í aðgerðir sem taki á rót vandans. „Það þarf að koma atvinnustarfsemi í eðlilegt horf eins f ljótt og auðið er til að vinna gegn atvinnuleysi. Með þeim hætti má koma í veg fyrir að niðursveif lan skapi ekki eftirspurnarvanda með tíð og tíma. Það getur gerst ef marg- ir verða atvinnulausir í lengri tíma,“ segir hún. Aðspurð hvort launahækkanir séu hluti af lausninni, líkt og for- maður BHM telur, segir Anna Hrefna að sú hækkun muni ekki gagnast þeim fyrirtækjum sem séu í hvað mestum vanda. Það séu enn hömlur á rekstri þeirra fyrirtækja sem berjast í bökkum og því muni slíkar lausnir ekki duga til. Anna Hrefna segir að við þessar aðstæður ætli stjórnvöld ekki að skera niður þjónustu heldur að halda henni uppi með aukinni skuldsetningu. Fara þurfi varlega í að hækka bætur í ljósi þess að hið opinbera eigi erfitt með að viðhalda núverandi þjónustu. „Það myndi kalla á auknar álögur sem bitnar á fjölgun starfa,“ segir hún. Þurfum að skulda minna Agnar Tómas tekur ekki undir það sem sumir hafa haldið fram að sársaukalítið sé að skuldsetja ríkissjóð enn frekar til að örva hag- kerfið á næstunni. „Rannsóknir sýna að þegar skuldsetning stærri ríkja fer yfir 60-70 prósent af lands- framleiðslu byrjar það að hamla hagvexti, með því að ryðja úr vegi einkaf járfestingum sem aftur fækkar arðbærum fjárfestingum,“ segir hann. Lítið land eins og Ísland þarf, að hans sögn, að standa betur að vígi en stærri ríki, til að laða að erlenda fjár- festa og halda fjármagni inni í hag- kerfinu. „Við getum ekki leyft okkur að skulda nálægt því jafn mikið og stærri myntsvæði, við núverandi áætlanir munum við skulda talsvert meira en minni myntsvæði eins og til dæmis Ástralía, Nýja Sjáland og Noregur. Langtímavextir þar eru jafnframt miklu lægri en hér, undir einu prósenti í öllum tilvikum. Sömuleiðis þarf gjaldeyrisvarafor- ðinn að vera hlutfallslega stærri en í öðrum ríkjum með sjálfstæða mynt, því smæð markaðarins gerir hann óáhugaverðari fyrir erlenda fjárfesta og um leið of lítinn fyrir íslenska líf- eyrissjóðskerfið. Þau skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til að fjármagn kjósi að vera hér. Einkum í ótryggu ástandi,“ segir Agnar Tómas. Skuldir hins opinbera sem hlut- fall af landsframleiðslu munu fara úr 30 prósentum af landsframleiðslu í 64 prósent á næstu þremur árum, samkvæmt nýrri fjármálastefnu. Agnar Tómas segir að hagkerfið glími meðal annars við þann vanda að raungengi á mælikvarða launa sé hátt og eigi eftir að hækka á næsta ári þegar launahækkanir taka gildi. „Það gerir það að verkum að viðspyrnan verður enn erfiðari og tímafrekari og þrýstingur á frekari veikingu krónunnar meiri,“ segir hann. Lífeyrissjóðir hafa samið við Seðlabankann um að gera hlé á gjaldeyriskaupum. „Lífeyrissjóða- kerfið, sem er feikilega stórt, er að safna í nýja snjóhengju sem gefur einnig slæm skilaboð út á við til þeirra erlendu aðila sem vilja fjár- festa á Íslandi,“ segir Agnar Tómas. 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.