Fréttablaðið - 09.09.2020, Síða 22

Fréttablaðið - 09.09.2020, Síða 22
Til að Ísland nái mark-miðum Parísarsam-k o m u l a g s i n s u m samdrátt útblásturs g r ó ðu rhú s a lof t t eg-unda frá samgöngum fram til ársins 2030, þarf að bæta við uppsettu af li sem nemur 300 megavöttum á næstu tíu árum. Það þýðir að auka þarf uppsett afl á Íslandi um tíu prósent næsta ára- tuginn. Þetta er niðurstaða grein- ingar sem unnin var fyrir Samorku, samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, en samtökin héldu ársfund sinn í Hörpu í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun koma tveir virkjana- kostir einkum til greina, sem hugs- aðir eru til að anna aukinni eftir- spurn tengda orkuskiptum á næstu árum. Er þar í báðum tilfellum um að ræða umdeilda virkjanakosti á Þjórsársvæðinu, sem er nú þegar stærsta af lsvæði Landsvirkjunar. Báðir kostir eru fullhannaðir og hægt að ráðast í uppbyggingu á þeim með skömmum fyrirvara, samkvæmt upplýsingum frá Lands- virkjun. „Landsvirkjun mun án vafa leika lykilhlutverk í orkuvinnslu þjóðarinnar áfram og fylgjast vel með þróuninni í orkuskiptum,“ segir Ragnhildur Sverrisdóttir, upp- lýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Í fyrsta lagi er um að ræða Hva m m s v i rk ju n . Sa m k væmt áætlunum Landsvirkjunar yrði sú virkjun ámóta Búðarhálsvirkjun, með tilliti til uppsetts afls, eða 93 megavött. Orkuvinnsla Hvamms- virkjunar yrði þó um fjórðungi meiri, eða um 720 megavattstundir á ári. Hvammsvirkjun var færð í nýtingarf lokk árið 2015. Hins vegar skilaði Skipulagsstofnun af sér áliti árið 2018 þar sem fram kom að umhverfisáhrif virkjunarinnar yrðu verulega neikvæð. Virkjunin myndi nýta frárennsli Búrfellsvirkj- unar sem er staðsett ofar í Þjórsá og því er hægt að stýra rennsli, og þar með lónstöðu Hvammsvirkjunar, með nokkurri nákvæmni. Í annan stað er um að ræða Búr- fellslund þar sem fyrirhugað er að reisa allt að 30 vindmyllur, sem gætu skilað allt að 120 megavöttum af uppsettu afli. Búrfellslundur er hins vegar í biðflokki sem stendur, en endurhönnun þessa virkjana- kosts er nú til skoðunar í fjórða áfanga rammaáætlunar. Þessir tveir virkjanakostir gætu því skilað allt að 213 megavöttum af uppsettu afli og færu því langt með að uppfylla þá orkuþörf sem Sam- orka telur að sé fyrir hendi, til að markmið Parísarsamkomulagsins um minnkun útblásturs vegna sam- gangna náist. En það er vitaskuld ekki nóg að byggja bara upp virkjanir til að draga úr útblæstri, því bílaf loti landsins þarf einnig að endurnýj- ast á sama tíma. Samorka áætlar að á árinu 2030 þurfi tveir af hverjum þremur bílum á götunni á Íslandi að vera rafknúnir, eða um 145 þúsund bílar. Í dag samsvarar samanlagður fjöldi rafmagnsbíla, tvinnbíla og metanknúinna bíla, innan við tíu prósentum af bílaf lota landsins. Þau vatnaskil urðu hins vegar í febrúar á þessu ári að í fyrsta sinn varð fjöldi nýskráðra bíla knúinn endurnýjanlegum orkugjöfum meiri en þeirra sem nota bensín eða dísil sem eldsneyti. Það sem af er ári eru nýskrán- ingar bensín- og dísilbíla nokkurn veginn jafnar skráningu allra ann- arra tegunda bíla, samkvæmt töl- fræði Samgöngustofu. Til viðbótar við þær virkjanir sem þyrftu að rísa til að anna auk- inni eftirspurn rafmagns, áætlar Samorka að fjárfesta þurfi fyrir 15 milljarða á ári næstu tíu árin í ýmsum raforkuinnviðum, svo sem hleðslustöðvum fyrir raf bíla, til að markmiðin náist. Í nýlegri aðgerða- áætlun ríkisstjórnarinnar í lofts- lagsmálum er meðal annars vikið að uppbyggingu hleðslustöðva fyrir raf bíla. Fyrirhugað er að verja 1,75 milljarði króna á fimm ára tíma- bili til ársloka 2023 til „uppbygg- ingar innviða fyrir raf bíla, rafvæð- ingu hafna og f leiri nauðsynlegra aðgerða í orkuskiptum.“ Töluvert virðist bera á milli í fjárfestingaþörf samkvæmt mati Samorku og þeirra fjármuna sem hið opinbera hefur eyrnamerkt uppbyggingu innviða. Þó verður að hafa í huga að ekki er endilega augljóst að hið opinbera þurfi að standa að baki allri þeirri fjárfest- ingu sem þörf er á. Þannig er það líka hluti af aðgerðaáætlun stjórn- valda að fella niður virðisaukaskatt á heimahleðslustöðvar fyrir rafbíla. En engu að síður virðist mat Sam- orku sýna að nokkuð vanmat sé fyrir hendi á fjárfestingaþörf vegna raforkuinnviða í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Umdeilda virkjanakosti þarf að nýta til að draga úr útblæstri Helstu tækifæri Íslands í orkuskiptum liggja á sviði vegasamgöngumála að mati Samorku. Til að anna aukinni eftirspurn raforku við aukna notkun rafmagnsbíla þarf að auka rafmagnsframleiðslu á Íslandi um 10 prósent á næstu 10 árum. Líklegt er að nýting umdeildra virkjanakosta sé forsenda orkuskipta í samgöngum. Fjöldi rafmagnsbíla á Íslandi þyrfti að margfaldast á næstu árum ef markmið Parísarsamkomulagsins eiga að nást. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 91% af allri orkunotkun innan- lands eru endurnýjanleg. 368 milljónir króna voru þjón- ustutekjur Kviku umfram útgjöld. 66% bíla þurfa að vera rafknúnir 2030 vegna Parísarmarkmiða. 15 milljarða fjárfestingu á ári næstu 10 ár í raforkuinniviði. Draga þarf úr útblæstri um 37 prósent Parísarsamkomulagið miðar meðal annars að því að draga úr útblæstri vegna samgangna á landi um 21 prósent, miðað við heildarlosun árið 2005. Útblástur vegna samgangna á landi hefur hins vegar aukist nokkuð síðan þá, ekki síst vegna mikillar aukningar í akstri ferðamanna hér á landi. Því þarf samdráttur útblásturs gróðurhúsalofttegunda á Íslandi nú að nema um 37 prósentum á næstu tíu árum. Samorka áætlar að ef áðurnefndur 37 prósenta samdráttur næst að fullu, muni þjóðarbúið spara sér 20 til 30 milljarða á ári vegna minni inn- flutnings á eldsneyti, þó að sú tala sé vitaskuld háð olíuverði á hverjum tíma. Rekstur Kviku banka er stöð-ugur og bankinn hefur siglt greitt í gegnum COVID-farald- urinn hingað til. Þetta kemur fram í nýjasta verðmati Jakobsson Capital á Kviku banka, sem Markaðurinn hefur undir höndum. Verðmat Jak- obsson Capital á Kviku er nú tæp- lega 25,3 milljarðar króna en það var 24,4 milljarðar við útgáfu síðasta verðmats í júní. Hækkar verðmatið því um 3,5 prósent. Verðmatsgengi er nú 11,8 sem er 10,8 prósentum yfir núverandi markaðsgengi. Greinandi Jakobsson Capital segir að hagkerfið hafi verið að mestu frosið frá miðjum mars og fram til loka apríl. Því hafi verið viðbúið að samdráttur yrði í hreinum þjón- ustutekjum. Það varð hins vegar ekki raunin því þjónustutekjur Kviku jukust um 3,5 prósent milli árshluta. Meirihluta þjónustu- tekna Kviku má rekja til eignastýr- ingar  sem gefur stöðugra tekju- streymi en fyrirtækjaráðgjöf. „Oftast er stefnt að því í rekstri fjárfestingarbanka að þjónustu- tekjur séu jafnar föstum rekstrar- kostnaði. Þannig að bankinn geti staðið undir sér án fjármunatekna,“ segir í verðmatinu en þjónustu- tekjur Kviku umfram útgjöld námu 368 milljónum króna á fyrri hluta ársins. „Það verður að teljast góður árangur í ljósi þess að aðstæður voru krefjandi á fyrri hluta ársins. Þegar að þjónustutekjur standa undir föstum rekstrarkostnaði er hvert brot úr prósenti í virkum vaxta mun aukning í arðsemi eigin fjár.“ Vandi Kviku snýr því ekki að grunnrekstri, að mati greinandans. Hann snýr frekar að því hvernig hægt er að ná háum vaxtamun með núverandi samsetningu efnahags- reikningsins. KKV, breskt dótturfélag Kviku banka, hefur tekið við 394 millj- óna punda eignastýringu þar í landi. Greinandinn segir að vegna sjónarmiða um þjóðhagsvarúð og samkeppnislaga hafi innlendir við- skiptabankar ekki getað stækkað mikið nema með því að sameina ótengda og ólíka fjármálaþjónustu. „Hins vegar hamlar lítið vexti í eignastýringu, fyrirtækjaráðgjöf eða öðrum eiginfjárléttum og sér- hæfðum bankarekstri. Skref Kviku kemur þeim sem fylgjast með bankarekstri ekki á óvart. Framan- greindu skrefi er náð með „innri vexti“. Þannig fylgir nokkur kostn- aður stofnun en nær engin „fjár- festing“. Ef allt gengur eftir mun stofnun KKV auka þjónustutekjur og arðsemi til lengri tíma.“ – þfh Kvika hafi náð góðum árangri í þjónustutekjum Þórður Gunnarsson thg@frettabladid.is Markaðsvirði Kviku er 22 milljarðar. 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.