Fréttablaðið - 09.09.2020, Page 25

Fréttablaðið - 09.09.2020, Page 25
Spáin fyrir næstu tvö ár er íhaldssöm og ætti að mínu viti að geta gengið. Ef það verður mikil samkeppni er ljóst að það mun hafa áhrif á tekjuáætlanir félagsins þegar flugmiðaverð fer þá lækkandi. Vill meiri fjölbreytileika í hluthafahópinn þegar óvissan minnkar Markaðurinn bar nokkur atriði, sem fjárfestar og ráðgjafar þeirra hafa nefnt í tengslum við hluta- fjárútboðið, undir Boga Nils Boga- son, forstjóra Icelandair Group. Spurður hvort ekki sé æskilegt að tryggja þátttöku kjölfestufjár- festis, svo að lífeyrissjóðir fari ekki með mikinn meirihluta, segir Bogi Nils að markmiðið sé að fá meiri fjölbreytileika í hluthafa- hópinn í kjölfar útboðsins og þegar óvissan hefur minnkað. „Vorið 2019 kom PAR Capital inn sem stór hluthafi í Icelandair Group. Sjóðurinn hefur sérhæft sig í fjárfestingum í flug- og ferðaþjónustufyrirtækjum í tugi ára og gengið mjög vel allt þar til kórónaveirufaraldurinn skall á og hafði gríðarleg áhrif á fyrirtæki í þessum atvinnugreinum. Það að sjóður eins og PAR Capital, sem er mjög virtur sjóður í Banda- ríkjunum, skyldi sjá tækifæri í viðskiptalíkani Icelandair Group segir sína sögu. Í kjölfar hlutafjárútboðs og þegar óvissan vegna COVID-19 minnkar hafa stjórnendur og stjórn Icelandair Group fullan hug á því að ná inn meiri fjölbreyti- leika í hluthafahóp félagsins eins og tókst vorið 2019,“ segir Bogi Nils. Þeir sem rýnt hafa í áætlanir Icelandair hafa áhyggjur af því að félagið sé enn með innbyggðan kostnað eins og fullþjónustufélög (e. legacy) en tekjulíkanið sé meira í ætt við lággjaldafélög. Ekki hafi verið gert nóg til að samræma kostnað við tekjulíkanið. Hvað finnst þér um það? „Viðskiptalíkan Icelandair byggir ekki á lággjaldamódelinu. Við gætum lækkað einingakostn- að á morgun um 20% með því að fjölga sætum um borð í okkar vélum, en við teljum að með því myndu einingatekjur lækka enn meira en sem nemur kostnaðar- lækkuninni. Við höfum staðsett okkur á markaðnum í ljósi þess umhverfis, sem við störfum í, ekki síst hvað varðar íslenskan vinnumarkað. Viðskiptalíkanið okkar býður upp á góða tengimöguleika og tímasetningar, ásamt öðru vöru- framboði sem hámarkar virði viðskiptavina okkar á lykilmörk- uðum. Viðskiptamódel félags- ins hefur sannað sig með góðri afkomu til margra ára og félagið hefur staðið af sér krefjandi aðstæður í gegnum tíðina, bæði hvað varðar samkeppnisum- hverfið og aðra utanaðkomandi þætti.“ Er það ekki veikleiki fyrir hluta- fjárútboðið, og eins fyrir rekstrar- grundvöll Icelandair, horft fram í tímann, að ekki hafi tekist að fá neina kröfuhafa til að afskrifa hluta af skuldum sínum eða breyta þeim í hlutafé? „Fyrir heimsfaraldur COVID-19 var efnahagur félagsins sterkur bæði hvað varðar eiginfjárhlutfall og lausafjárstöðu. Fjármögnun félagsins var á mjög samkeppnis- hæfum kjörum enda hafði félagið byggt upp gott viðskiptasam- band við sína lánveitendur og lagt fram góð veð og sterka veð- stöðu gegn hagstæðum kjörum lána. Þegar ljóst var að COVID-19 faraldurinn myndi ekki ganga yfir á nokkrum vikum fékk félagið til liðs við sig reynda sérfræðinga á sviði fjárhagslegrar endurskipu- lagningar flugfélaga frá banda- ríska ráðgjafafyrirtækinu Seabury Securities. Seabury hefur komið að endurskipulagningu fjárhags flugfélaga víða um heim undan- farna áratugi. Breyting á skuldum í hlutafé hefur helst verið til umræðu hjá þeim flugfélögum þar sem viða- mikil vanskil höfðu og hafa safn- ast upp og hefur þeim hluta þá verið breytt í hlutafé. Icelandair Group hafði hins vegar verið í skilum við alla þá kröfuhafa sem um ræðir. Þá hafa einhver flug- félög sem voru með óveðtryggð skuldabréf breytt slíkum kröfum í hlutafé. Icelandair Group var ekki með nein slík skuldabréf útgefin heldur var tryggingastaða mótaðila sterk. Í ofangreindum viðræðum við hagaðila hefur félagið leitast eftir því að ná sem hagstæðastri lausn þar sem áherslan hefur verið á að aðlaga afborganir að áætluðu sjóðsstreymi á meðan starfsemi félagsins er verulega skert og það er að byggja reksturinn upp aftur eftir fordæmalausa tíma. Lækkun lánaafborgana og annarra samningsskuldbindinga Icelandair á því tímabili sem starfsemi þess er skert, er mikilvægur þáttur í þeim fjöl- breyttu aðgerðum sem félagið hefur gripið til á undanförnum mánuðum og mun leggja mark- tækan skerf til þess verkefnis að tryggja að Icelandair komist með öruggum hætti í gegnum þessa óvissutíma og geti þannig gegnt veigamiklu hlutverki í viðspyrnu íslensks hagkerfis.“ svakalega aukningu á árunum 2023 og 2024 og þá á bara allt að vera í himnalagi.“ Þeir sem rýnt hafa í áætlanir Icel- andair hafa áhyggjur af því að félag- ið sé enn með innbyggðan kostnað eins og fullþjónustufélög (e. legacy) en tekjulíkanið sé meira í ætt við lággjaldafélög. Ekki hafi verið gert nóg til að samræma kostnað við tekjulíkanið. Lykilmælikvarðar í rekstri f lug- félaga eru annars vegar tekjur á til- tæka sætiskílómetra (RASK) og hins vegar kostnaður á tiltæka sætiskíló- metra (CASK). Áætlanir Icelandair Group gera ráð fyrir að árið 2024 verði tekjur á tiltækan sætiskílómetra (RASK) um 11 prósentum hærri en þær voru árið 2018. Þessar áætlanir þykja nokkuð bjartsýnar að sögn viðmæl- enda Markaðarins en stjórnendur Icelandair hafa meðal annars rök- stutt aukningu RASK með vísan til þess að tekjustýringarkerfi félags- ins hafi sýnt verulegan árangur. „Það þyrfti að sjá frekari gögn um þetta og hvernig þróunin hefur verið,“ segir einn viðmælandi. Annar segir veikleika í tekjuáætl- unum félagsins. Forsendurnar virð- ist vera að félagið verði eitt á sínum markaði og engar ógnanir séu í sam- keppni í tengiflugi yfir hafið. „Það er hins vegar stórt EF og Icelandair er verðtaki á þessum markaði. Ef það verður mikil sam- keppni er ljóst að það mun hafa áhrif á tekjuáætlanir félagsins þegar flugmiðaverð fer þá lækkandi.“ Ekki nógu langt gengið Með sveigjanlegri kjarasamn- ingum og auknu vinnuframlagi áhafna, ásamt öðrum hagræðing- araðgerðum, áætlar Icelandair að kostnaður á hvern sætiskílómetra (CASK) muni á árinu 2024 hafa lækkað um samtals 10 prósent miðað við árið 2018. Áhafnasamningar hafa nú þegar lækkað launakostnað um minnst 15 prósent að raunvirði samkvæmt k y nningargögnum Icelandair. Aftur á móti er gert ráð fyrir að laun hækki um 3,5 prósent á ári í takt við almennar launahækkanir á vinnu- markaði. Þannig hefur launakostn- aður verið lækkaður um 56 millj- ónir dala, miðað við framleiðslustig ársins 2018, en hann mun hækka um alls 42 milljónir dala fram til ársins 2024. Sumir viðmælendur Markaðarins telja að ekki hafi verið gengið nógu langt í hagræðingu á launakostnaði. „Launahlutinn af þessari CASK- lækkun, þessi samkeppnisjöfnuður sem Icelandair er að reyna að ná, eyðist eiginlega út fram til ársins 2024. Það er ekki gott,“ segir einn viðmælandi. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icel- andair Group, sagði í samtali við Fréttablaðið í ágúst að Icelandair gerði ráð fyrir ákveðnum verð- lagshækkunum eins og hefur verið undanfarin ár. „Ef sú forsenda gengur eftir munu önnur félög einnig glíma við verð- lagshækkanir. Með þeim aðgerðum sem við munum fara í verður félag- ið mjög samkeppnishæft á þeim markaði sem það starfar á,“ sagði Bogi Nils. Annar viðmælandi veltir fyrir sér hvers vegna áhafnasamningar hafi verið gerðir til einungis fimm ára. „Gefum okkur að viðsnúningur- inn takist og afkoma félagsins verði komin í ásættanlegt horf eftir þrjú eða fjögur ár. Hvernig í ósköpunum ætlarðu að semja um hagstæða framlengingu á áhafnasamningum þegar allt leikur í lyndi?“ spyr hann. Þá gagnrýnir enn annar að kostn- aðarlíkan Icelandair hafi ekki verið sett í samhengi við kostnaðarlíkan keppinauta á borð við Wizzair. Svör stjórnenda Icelandair um að sumir keppinautar séu ekki samanburðar- hæfir séu ekki fullnægjandi. Efasemdir um Boeing-samningana Þá eru uppi efasemdir um sam- komulagið sem Icelandair gerði við f lugvélaframleiðandann Boeing. Það kveður á um að íslenska f lug- félagið, sem er nú þegar með sex Boeing 737 MAX vélar í f lota sínum, kaupi alls tólf MAX-vélar í stað sex- tán, fái aukinn afslátt við kaup á þeim sex f lugvélum sem á eftir að afhenda og fébætur. Samkomulag- ið við Boeing bætti lausafjárstöðu Icelandair Group um 260 milljónir dollara, jafnvirði um 35 milljarða króna. „Þetta eru ekki góðir samningar að mínu mati. Það er greinilegt að félagið hefur verið upp við vegg og í tímaþröng,“ segir einn viðmælandi. Hann vísar til þess að Icelandair hefði getað neitað að taka við þremur MAX-vélum þar sem Boeing braut skilmála um að afhendingar- töf yrði ekki lengri en 12 mánuðir. „Hvers vegna er þá verið að taka við fjórum vélum?“ spyr hann. Fjár- bindingin sem felst í því að taka við vélunum geti komið í bakið á Ice- landair ef kórónafaraldurinn dregst á langinn. Stjórnendur Icelandair munu hafa gefið þær skýringar að sam- komulagið hafi verið besta mögu- lega niðurstaðan. Mikilvægt sé að fá fébætur frá Boeing sem fyrst til að styrkja lausafjárstöðuna og þá sé óvíst hvort málaferli gegn Boeing beri árangur. Lögð var áhersla á að eyða sem mestri óvissu fyrir útboðið. „Mér finnst það ekki alveg nógu sterk rök því eins og staðan er í dag skiptir ekki öllu máli hvort þú tapir dómsmáli eftir nokkur ár,“ segir einn viðmælandi. Flotamálin eru lykilatriði Áður en kórónafaraldurinn hófst var Icelandair að móta framtíðar- stefnu í f lotamálum. Sú vinna er enn í gangi og mun henni ekki ljúka fyrir hlutafjárútboðið. „Flotamálin eru aðalatriði í þessu. Allt annað bliknar í saman- burði,“ segir einn viðmælandi með víðtæka reynslu úr f luggeiranum. Hann bendir á að meðalaldur flug- véla Icelandair sé mjög hár. Gömlu vélarnar séu óhagkvæmar í rekstri, meðal annars vegna þess að mikil viðhaldsþörf geri f lugfélaginu erfitt fyrir að halda áætlun. „Ef Icelandair ætlar að keppa á þessum Atlantshafsmarkaði, þá verður varan að vera samkeppnis- hæf. Nú þegar búið er að draga úr framboði þá snýst þetta mikið um hver er með bestu vöruna og besta verðið.“ Einn viðmælandi lýsir ákvörðun Icelandair um að taka MAX-vélar inn í f lotann sinn sem „afskaplega óheppilegri ákvörðun“, meðal ann- ars vegna þess að vélarnar hafa ekki drægni til að f ljúga á alla áfanga- staði f lugfélagsins í Norður-Amer- íku. Icelandair þurfi því að halda gömlum og óhagkvæmum vélum í f lotanum. „Þetta er langstærsta áskorunin fram undan. Nú er verið að safna hlutafé til að koma félaginu á réttan stað, en þetta er ekki nægt fé til að ráðast í uppbyggingu á f lota. Það þarf að gerast undir eins ef ætlunin er að vera með í samkeppninni.“ Hótanir stéttarfélaga vekja spurningar Þá væri óheppilegt, að mati sumra viðmælenda Markaðarins, ef niðurstaða útboðsins yrði sú að lífeyrissjóðir hefðu tögl og hagldir í f lugfélaginu. „Er framtíðin björt með þannig eignarhaldi? Nei, það þarf að fá inn kjölfestufjárfesti úr einkageiranum sem þorir að taka á málunum. Ríkis- rekstur í f lugi gengur ekki upp og rekstur undir stjórn lífeyrissjóða er ekki mjög ósvipaður.“ Tilraunir stéttarfélaga til þess að hafa áhrif á fjárfestingar lífeyris- sjóða vekja einnig spurningar um hversu heppilegt það er að lífeyris- sjóðir séu ráðandi af l í hluthafa- hópnum. „Hvað ætla sjóðirnir að gera þegar kemur að endurnýjun áhafnasamninga? Níðast á félags- mönnum eða gera málamiðlanir í rekstrinum? Þetta er ávísun á eilífa togstreitu.“ Vel samið við færsluhirða Einn viðmælanda Markaðarins taldi Icelandair til tekna að hafa náð samningi við stærsta færsluhirðinn, en hann felur í sér óbreytt greiðslu- f læði fram á næsta ár. Óhagstætt greiðsluf læði frá færsluhirðum var ein af ástæðunum á bak við fall WOW air. Flugmiðakaup með kreditkort- um munu því áfram skila sér inn á reikninga Icelandair með aðeins örfárra daga töf. Á öðrum fjórðungi næsta árs, þegar félagið hyggst hefja uppbyggingu á f lugrekstri, lengist greiðslutöfin um fáeina daga. Það er ekki talin veigamikil breyting í stóra samhenginu. Í uppfærðri fjárfestakynningu sem Icelandair sendi frá sér fyrir helgi birtust meðal annars svör við 57 spurningum sem hafa komið upp á fundum með fjárfestum í söluferlinu og eins í aðdraganda þess. Þær komu að stórum hluta frá Arctica Finance, sem er ráð- gjafi lífeyrissjóðanna Birtu, LSR og Gildis, en verðbréfafyrirtækið hafði óskað eftir svörum við meira en 200 spurningum sem það hafði komið á framfæri við Icelandair. Ráðgjafi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, næststærsta hluthafa Icelandir Group, er hins vegar Deloitte. Fram kemur í kynningunni að lausafjárstaða félagsins muni versna um 144 milljónir Banda- ríkjadala, jafnvirði 20,1 milljarðs króna, á þriðja fjórðungi þessa árs. Það er verulegt frávik miðað við fjórðungana sem komu á undan og munu koma á eftir, samkvæmt áætl- unum félagsins. Markaðurinn sendi fyrirspurn til Icelandair þar sem spurt var hvort stóran hluta af þessu útflæði lausa- fjár mætti rekja til uppgjörs vegna þeirra samninga sem náðust við færsluhirða. Í svari frá Icelandair kemur fram að það sé ekki rétt skilið að um sé að ræða uppgjör við færsluhirða „heldur er rúmlega þriðjungur af þessari fjárhæð vegna áætlaðra endurgreiðslna flugmiða og um þriðjungur vegna lækkunar á skammtímaskuldum.“ Þá kom einnig fram í svörum flugfélagsins við fyrirspurnum fjár- festa, sem birt voru í uppfærðri fjár- festakynningu, að samningar við kröfuhafa væru ekki háðir neinni sérstakri greiðslu eftir hlutafjárút- boðið. Bogi Nils Bogason ✿ Kostnaður á tiltækan sætiskílómetra US Cent 0 3 6 9 12 15 COVID og endurskipulagning 15A 16A 17A 18A 19A 20F 21F 22F 23F 24F 6,4 6,0 6,3 6,9 7,0 12,8 8,0 6,3 6,2 6,2 ✿ Tekjur á tiltækan sætiskílómetra US Cent 0 3 6 9 15A 16A 17A 18A 19A 20F 21F 22F 23F 24F 7,3 6,6 6,4 6,3 6,5 6,1 6,3 6,7 6,9 7,0 MARKAÐURINN 9M I Ð V I K U D A G U R 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.