Fréttablaðið - 09.09.2020, Side 28
Ég er löngu búin að
átta mig á að á
ákveðnum tímapunkti
verður neikvætt samband
milli vinnuframlags og
-gæða.
Hjá þeim sem eru
undir meðaltekjum
og á þeim aldri sem greiðslu-
byrði er hvað hæst og mest
munar um hverja krónu, er
hætt við að heimilisfjár-
málin gangi hreinlega ekki
upp ef foreldrar fullnýta rétt
sinn.Sálmasmiðurinn Sabine Bar-ing-Gould rakst eitt sinn á litla stúlku í barnaafmæli og spurði
hana hverra manna hún væri. „Ég
er dóttir þín, pabbi“, svaraði hún og
skældi.
Þegar börnin eru orðin 15 talsins,
eins og í tilviki Baring-Gould, getur
svona lagað víst gerst, en það reynir
sjaldan á það nú til dags. Í dag er
fæðingarhlutfall kvenna talsvert
undir tveimur börnum en var um
þrjú snemma á áttunda áratugnum
og fjögur á þeim sjötta.
Þessi þróun hefur átt sér stað
samhliða bættum réttindum og
aukinni atvinnuþátttöku kvenna
en að sama skapi hefur stuðningur
hins opinbera við barnafólk tekið
nokkrum breytingum. Þannig er í
tillögum starfshóps um framtíðar-
stefnu í fæðingarorlofsmálum frá
árinu 2014 lögð áhersla á að „tryggja
jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði
auk þess að skapa jöfn skilyrði
fyrir foreldra til að annast börn sín
í frumbernsku“. Liður í að ná slíku
fram eru nýlegar breytingar á rétti
til töku orlofs þar sem sameigin-
legur réttur foreldra er styttur en
réttur hvors um sig lengdur. Sjálf-
stæður réttur lengist svo enn frekar
nú um áramótin.
Markmið þeirra reglna sem nú
gilda er að í tilviki tveggja foreldra
skuli báðir nýta til fulls orlofsrétt
sinn og sameiginlegan rétt til jafns.
En önnur er nú aldeilis raunin.
Mæður fullnýta vissulega rétt sinn
sem fyrr og dreifa honum jafnvel
yfir enn lengra tímabil. Undan-
farinn áratug hefur orlofsdögum
feðra þó frekar fækkað en hitt og
nýta þeir sér í dag að jafnaði innan
við helming þess orlofs sem mæður
taka. Reglur um greiðslur Fæðing-
arorlofssjóðs, sem ætlað var að ná
fram þessum sjálfsögðu markmið-
um, hafa þvert á móti aukið bilið
milli orlofstöku mæðra og feðra.
Það þarf ekki að leita langt að
ástæðunni. Hámarksgreiðslur fæð-
ingarorlofssjóðs eru að hámarki
80% launatekna. Hjá þeim sem eru
undir meðaltekjum og á þeim aldri
sem greiðslubyrði er hvað hæst og
mest munar um hverja krónu, er
hætt við að heimilisfjármálin gangi
hreinlega ekki upp ef foreldrar full-
nýta rétt sinn. Rétt eins og svo oft
áður tekur móðirin þá á sig að vera
heima með tilheyrandi tekju- og
réttindamissi.
Umræðan um lengingu tekju-
tengdra atvinnuleysisbóta og
hæk kun hámarksgreiðslna er
nokkuð hávær þessa dagana. Ef
raunverulegur vilji er til að jafna
stöðu kynjanna við barnauppeldi
og á vinnumarkaði og hvetja jafn-
vel til barneigna í leiðinni mætti
spyrja hvort það gæti ekki munað
heilmiklu um að hámarksgreiðslur
fæðingarorlofs yrðu líka hækkaðar
duglega.
Hærri greiðslur í fæðingarorlofi
Björn Berg
Gunnarsson,
deildarstjóri
greiningar og
fræðslu hjá Ís-
landsbanka
Halla Lárusdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Sec-uritas, segist löngu búin að átta sig á að á ákveðnum tíma-
punkti verði neikvætt samband
milli vinnuframlags og -gæða.
Hún stundar mikla útiveru, fer á
hestbak, veiðir og stundar náttúru-
hlaup en hefur líka gaman af því að
prjóna.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Mín helstu áhugamál tengjast
útiveru, fjölskyldan stundar hesta-
mennsku og við verjum miklum
tíma í hesthúsinu, við erum líka
dugleg að ferðast um landið, hvort
sem er til að skoða okkur um, ríða
út eða veiða, en oftar en ekki liggur
leiðin á heimaslóðirnar á Klaustri.
Ég stunda svo náttúruhlaup og
finnst gaman að prjóna, heilmikil
slökun í því með góðu hlaðvarpi.
Legg upp úr því að rækta garðinn
minn, í eiginlegri og óeiginlegri
merkingu.
Nærðu að halda jafnvægi milli
vinnu og fjölskyldulífs?
Það getur verið áskorun þegar
verkefnin eru skemmtileg, en ég
er löngu búin að átta mig á að á
ákveðnum tímapunkti verður nei-
kvætt samband milli vinnufram-
lags og -gæða.
Hvaða bók ertu að lesa núna?
Ég er að lesa How to get sh*t done
eftir Erin Falconer, þó hún tali ekki
beint inn í mínar aðstæður núna
eru þarna punktar sem alltaf er gott
að rifja upp. Mjög áhugaverð upp-
rifjun í upphafi bókarinnar á því
hve stutt er síðan staða kvenna var
allt önnur en í dag og því má ekki
afskrifa femínismann. Er svo með
einn James Patterson til að kúpla
mig frá eftir daginn.
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum miss-
erum?
Eins og hjá mörgum öðrum fyrir-
Stundar náttúruhlaup og prjónar
Nám:
Ég er með meistarapróf í reikn-
ingshaldi og endurskoðun frá
Háskólanum í Reykjavík. Grunnur-
inn liggur í hagfræðinni en ég er
með próf í hagfræði frá Háskóla
Íslands.
Störf:
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Securitas, tók við því starfi árið
2014 eftir að hafa starfað sem
aðalbókari félagsins. Starfaði áður
hjá Flugleiðahótelum sem fjár-
málastjóri.
Fjölskylduhagir:
Gift Guðmundi Gíslasyni mat-
reiðslumanni og við eigum tvö
börn.
Svipmynd
Halla Lárusdóttir
Halla segist vera á réttum stað í lífinu, en líklega myndi nýr starfsframi fela í sér meiri sköpun. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
tækjum hefur verið áskorun að
glíma við COVID-faraldurinn og
því miður hafa stór verkefni horfið
í þessu breytta rekstrarumhverfi,
en sem betur fer hafa önnur komið
í staðinn. Við erum svo búin að vera
í skipulagsbreytingum sem mið-
uðu að því að auka fókus rekstrar-
sviðanna á þjónustu við viðskipta-
vininn, þær hafa verið áskorun en
skilað miklum árangri.
Hvaða áskoranir eru fram undan?
Í kjölfar stafrænnar stefnumót-
unar réðumst við í endurskoðun
á verkferlum og höfum í kjölfarið
hafið uppfærslu og innleiðingu
á nýjum kerfum til að styðja við
stefnuna, auka sjálfvirkni og koma
enn betur til móts við þarfir við-
skiptavina okkar. Þó þessari vinnu
sé ekki lokið þá hefur hún þegar
skilað okkur árangri og hjálpað
okkur í þeim áskorunum sem
komið hafa upp með COVID.
Hvernig er rekstrarumhverfi Sec-
uritas að taka breytingum og hvaða
tækifæri felast í þeim?
Securitas er fyrst og fremst þjón-
ustufyrirtæki en um leið hátækni-
fyrirtæki. Tækninni f leygir hratt
fram og við erum í stöðugri þróun.
Til þess að ná árangri í slíku
umhverfi þarf að ná því allra besta
fram í hverjum og einum. Við fórum
í stafræna stefnumótun og vinnan
í kjölfarið hefur skilað miklum
árangri. Tækifærin eru mörg og
spennandi tímar fram undan í að
móta þjónustu okkar með við-
skiptavininn í forgangi.
Ef þú þyrftir að velja annan starfs-
frama, hvað yrði fyrir valinu?
Ég er nú á nokkuð réttum stað í
lífinu, en líklega myndi nýr starfs-
frami fela í sér meiri sköpun.
9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 MARKAÐURINN