Fréttablaðið - 09.09.2020, Side 36

Fréttablaðið - 09.09.2020, Side 36
 Húsaviðhald Við hreinsum allar gerðir loftræstikerfa. Hafðu samband og pantaðu fría ástandsskoðun í síma: 557 7000 eða inná www.k2.is Húsnæði Atvinnuhúsnæði Til leigu 470fm atvinnuhúsnæði í Reykjanesbæ með möguleika á 2 einstaklingsíbúðum. Uppl. í s. 898 6902 Geymsluhúsnæði WWW.GEYMSLAEITT.IS Sérgeymslur á mjög góðum verðum. Frá 2-17 m2. S: 564-6500 GEYMSLUR.IS SÍMI 555-3464 Þarftu þitt pláss? Við erum með nóg af því. Allt að 20% afsláttur. www. geymslur.is Tilkynningar Tilkynningar WWW.YAAKOVSWELL.NET Here you will find a series of studies of the Blessed Torah. All the material is completely free. you may download it, copy it and give it away. AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Flóahreppur og Skeiða-og Gnúpverjahreppur Aðalskipulagsmál Samkvæmt 30. og 40.gr Skipulagslaga nr.123/2010 er kynnt skipulags- og matslýsing eftirfarandi skipulagsáætlana. 1. Skálabrekka – Lýsing aðalskipulagsbreytingar – Landbúnaðarsvæði í frístundabyggð Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 20.ágúst að kynninga lýsingu fyrirhugaðrar breytingu á aðalskipu- lags sveitarfélagsins. Í breytingunni felst skilgreining á 25 ha. svæði fyrir frístundabyggð innan jarðarinnar Skálabrekku L170163. Samhliða er lögð fram skipulagslýsing vegna deiliskipulags. 2. Skálabrekka – Lýsing deiliskipulags – Frístundasvæði í landi Skálabrekku Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 20.ágúst að kynninga lýsingu deiliskipulags vegna fyrirhugaðrar frí- stundabyggðar í landi Skálabrekku L170163. Innan lýsingar er gert grein fyrir umfangi og helstu áherslum verkefnisins. 3. Heiðarbrún 2-10 í landi Bjarnastaða 1 – Lýsing aðalskipulagsbreytingar – Frístundabyggð í landbúnaðarsvæði. Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 21.ágúst að kynninga fyrirhugaða breytingu á aðal- skipulagi sveitarfélagsins í landi Bjarnastaða 1 í kringum lóðir Heiðarbrúnar 2-10. Í breytingunni felst að landnotkun svæðisins er breytt úr frístundasvæði í landbúnaðarsvæði. Deiliskipulagsmál Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru kynnt tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar: 4. Vatnsholt 1 L166395 – Deiliskipulag Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 19.ágúst 2020 deiliskipulag fyrir Vatnsholt 1 L166395 og að það væri kynnt á grundvelli 4.mgr.40.gr.skipulagslaga. Í deiliskipulaginu felst sem felst skilgreiningu byggingarheimilda fyrir útihús, skemmu og gestahús. Markmið skipulagsins er að styrkja búsetu og atvinnu svæðisins . Samkvæmt 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum/breytingum: 5. Brúarhvammur lóð 1 L167225 og Brúarhvammur lóð 2 L174434 – Deiliskipulagsbreyting Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 20.ágúst 2020 breytingu á deiliskipulagi að Brúarhvammi lóð 1 L167225 og Brúarhvammi lóð 2 L174434. Í breytingunni felst að felld er út byggingarheimild fyrir 30 fm geymsluskúr innan bygg- ingarreits í samræmi við úrskurð Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála 112/2019 auk þess sem gert er ráð fyrir breyttri skiptingu lóða innbyrðis auk þess sem byggingarheimild er skilgreind á nýjan hátt án þess að heildar fm fjöldi sé aukinn. Sam- kvæmt núverandi skipulagi er gert ráð fyrir 500 fm gistiheimili á lóð 2. Með breyttu skipulagi verður heimild fyrir 10 smáhýsum allt að 50 fm að stærð innan lóðar. 6. Kjaransstaðir 2 L200839 – Deiliskipulag Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 20.8.2020 deiliskipulag að Kjaranstöðum 2, L200839. Gert er ráð fyrir því að með samþykkt skipulagsins muni eldra skipulag falla úr gildi. Í nýju deiliskipulagi felst m.a. að notkun lóða breytist úr frístundalóðum í landbúnaðarlóðir, lóðum fækkar úr 7 í 6 og skilgreindir eru nýir byggingarskilmálar . 7. Þóroddsstaðir L168295, Langirimi – Deiliskipulagsbreyting Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 21.8.2020 breytingu á deiliskipulagi að Þóroddsstöðum L168295. Í breytingunni felst stækkun svæðisins og samræming götuheita og númerakerfis innan þess. 8. Breiðanes L201727 – Deiliskipulag Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 19.8.2020 deiliskipulag að Breiðanesi L201727. Í deili- skipulaginu felst skilgreining byggingarheimilda fyrir íbúðarhús, gestahús, vélaskemmu, gróðurhúsi og hesthúsi. 9. Tjarnarhólar – Deiliskipulag – Útivistar og göngusvæði Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 21.8.2020 deiliskipulag að Tjarnhólum eftir kynningu. Innan skipulagsins er gert ráð fyrir uppbyggingu svæðisins í þágu ferðamanna með gerð bílastæða, göngustíga, gerð upplýsinga- skilta og byggingu tveggja þjónustuhúsa. Aðkoma að svæðinu er um núverandi gatnamót Vaðness og Snæfoksstaða frá Biskups- tungnabraut. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma tillögunnar. 10. Efra-Apavatn 1A L226187, Efra-Apavatn 1 lóð L167652 og L16765 – Deiliskipulag - Skipting landsvæðis Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 2.9.2020 tillögu að deiliskipulagi Efra-Apavatni, Rollutanga. Í deili- skipulaginu felst m.a. skilgreining lóða og byggingarheimilda innan svæðisins. Lýsing deiliskipulags var kynnt frá 10. júní - 1. júlí 2020. 11. Skálabrekkugata 1 L203318, deiliskipulagsbreyting Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 2.9.2020 breytingu á deiliskipulagi fyrir Skálabrekkugötu 1 L203318. Í breytingunni felst að skilgreindir eru breyttir byggingarskilmálar innan lóðarinnar vegna mikils landhalla innan byggingarreits. Mænis- og vegghæð mun miðist við hæsta punkt lóðar. Leyfilegt verði að byggja kjallara undir húsið allt að 200 m2 og að grafa frá húsinu til að skapa aðkomu fyrir bæði sumarhús og kjallara. Gert er ráð fyrir að umsótt breyting nái eingöngu til lóðar Skálabrekku- götu 1 vegna sérstakra aðstæðna innan hennar. 12. Laugarás L167381 – Deiliskipulagsbreyting - Lauftún garðyrkjustöð Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 2.9.2020 breytingu á deiliskipulagi fyrir Lauftún Garðyrkjustöð að Laugarári L167381. Í breytingunni felst að skipulagi lóðar er breytt þar sem komið er fyrir þremur gróðurhúsum, pökkunarað- stöðu, véla- og áhaldageymslu/bílskúr og tveimur starfsmannahúsum. Fyrir á lóðinni eru tvö íbúðarhús. Skilmálar deiliskipulags svæðisins frá 29. des. 2011 halda sér óbreyttir að öðru leiti. Málið var tekið fyrir á 195.fundi skipulagsnefndar þar sem það var samþykkt til kynningar. Skipulagið var kynnt frá 8.júlí til 29.júli. Engar athugasemdir bárust. Niðurstaða sveitarstjórnar auglýst skv. 2.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 13. Vaðstígur 1 L227910, 3 L227911 og 5 L227912; Land Kringlu II; Breyting úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði; Aðalskipulags- breyting – 2007051 Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 21.8.2020 tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipu- lagi sveitarfélagsins á grundvelli 2.mgr.36.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í breytingunni felst að 5,5 ha svæði á jörðinni Kringlu 2 er breytt úr frístundasvæði í landbúnaðarsvæði. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni http://www.utu.is . Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitar- félaganna: , https://www.blaskogabyggd.is/, https://www.gogg.is, https://www.floahreppur.is/ og https://www.skeidgnup.is/ Skipulagslýsingar og tillaga deiliskipulags eru í kynningu frá 9.9.2020 til og með 30.9.2020 og skulu athugasemdir og ábendingar berast eigi síðar en 30.9.2020 Skipulagstillögur og breytingar eru auglýstar með athugasemdafrest frá 9.9.2020 til og með 22.október 2020. Athugasemdir og ábendingar skulu berast eigi síðar en 22.október 2020. Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu UTU Dalbraut 12, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið vigfus@utu.is Vigfús Þór Hróbjartsson Skipulagsfulltrúi UTU Erum við að leita að þér? FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 8 SMÁAUGLÝSINGAR 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.