Fréttablaðið - 09.09.2020, Side 38
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Það er orðið svo mikið að gera
hjá mér í pappírnum, ég verð að
snúa mér að þeim verkefnum.
Það er ágætt að breyta til. Ég
er áttatíu og tveggja ára og hef
aldrei verið hressari.
Ástkær systir okkar og frænka,
Ásta Kristín Þorleifsdóttir
frá Naustahvammi, Neskaupstað,
Hlévangi, Reykjanesbæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi
þriðjudaginn 1. september 2020.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
kl. 13.00, fimmtudaginn 10. september 2020.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
krabbameinsfélög.
Stefán Þorleifsson Guðbjörg Þorleifsdóttir
Guðrún Þorleifsdóttir Vilhjálmur Norðfjörð Þorleifsson
systkinabörn og fjölskyldur.
Okkar ástkæri
Jón Ármann Árnason
Strandbergi, Húsavík,
lést á sjúkradeild
HSN, Húsavík, 1. september.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju
föstudaginn 11. september kl. 14.00.
Streymt verður frá athöfninni á Facebook-síðu
Húsavíkurkirkju. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent
á hollvinasamtökin Heiltón eða Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga.
Þórhildur Sigurðardóttir
Árni Jónsson Sigríður Kristín Sverrisdóttir
Margrét Kristín Jónsdóttir Árni Sveinn Sigurðsson
Sigvaldi Óskar Jónsson Sigrún Birna Sigtryggsdóttir
Anna Sigrún Jónsdóttir Magnús Hermannsson
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Sólrún Gústafsdóttir
lést á Landspítalanum mánudaginn
31. ágúst. Útför fer fram í Fossvogskirkju
föstudaginn 11. september kl. 15.00.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verður
athöfnin einungis fyrir nánustu fjölskyldu og vini.
Hrafnhildur Proppé Guðmundur Sigurðsson
Ágústa Björk Hestnes Eggert Arngrímur Arason
Hólmfríður Erla Hestnes
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Íris Ingibergsdóttir
Elliheimilinu Grund,
andaðist 3. september.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn þann 11. september kl. 11.00.
Ingibergur Óskarsson Anette Mogensen
Oddfríður Ósk Óskarsdóttir Guðmundur Svavarsson
María Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
Guðmundar Rúnars
Óskarssonar
löggilts endurskoðanda,
og að votta minningu hans virðingu.
Ragnheiður H. Sigurðardóttir
Kristján Guðmundsson Sigrún Hallgrímsdóttir
Sigurður Guðmundsson Margrét María Grétarsdóttir
Guðrún Inga Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Hjartahlýi eiginmaður minn, sonur,
faðir, barnabarn, bróðir og afi,
Ævar Örn Jónsson
flugumferðarstjóri,
Suðurgötu 20,
Sandgerði,
verður jarðsunginn þann 11. september kl. 13.00 í
Ytri-Njarðvíkurkirkju. Í ljósi aðstæðna munu einungis
nánustu aðstandendur og vinir vera viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á YouTube: Útför, Ævar Örn
Jónsson frá Njarðvíkurkirkju (https://www.youtube.com/
channel/UCz_TXHez-BzwGqIn4AW_i-g/featured)
Einlægar þakkir fyrir sýnda samúð, hlýhug og vináttu.
Sigrún Erla Hill
Valdís Tómasdóttir
Ívar Aron H. Ævarsson
Kristján Helgi O. Ævarsson Ellý María Hermannsdóttir
Ísak John H. Ævarsson Andrea Ósk Júlíusdóttir
Þórunn Hafdís H. Ævarsdóttir Thomas Þór Þorsteinsson
Aron Rúnar H. Ævarsson
Tómas Oddsson
Ísak Leifsson Nanna Baldvinsdóttir
Anton Karl Þorsteinsson Hanna Valdís Garðarsdóttir
Björg Jónsdóttir
og barnabörn.
Systir okkar, mágkona og frænka,
Guðbjörg Stefanía
Andrésdóttir
Borgarbraut 65,
lést í Brákarhlíð miðvikudaginn
2. september 2020. Útför hennar fer
fram frá Borgarneskirkju, fimmtudaginn
10. september kl. 14.00. Vegna aðstæðna í samfélaginu
er athöfnin eingöngu fyrir boðsgesti en henni verður
streymt á www.kvikborg.is
Ragnhildur Andrésdóttir Ölver Benjamínsson
Bragi Andrésson Júlíanna María Nielsen
Jóhann Óskar Sigurðsson
Friðbjörg Óskarsdóttir
og systkinabörn.
Þessar bækur eru gerðar líkt og myndaalbúm nema að í hverri þeirra eru opinberar upplýsingar um eitt hús, út frá elstu íbúaskrá Reyðar-fjarðar, frá 1890. Svo eru
margar auðar síður þar sem fólk getur
límt eigin frásagnir og myndir á, segir
Vigfús Ólafsson, fyrrum útibússtjóri
Landsbankans á Reyðarfirði, um 45
bækur sem hann af henti Bókasafni
Reyðarfjarðar til varðveislu á dögunum.
Austurfrétt greindi frá.
Vigfús f lutti suður fyrir 20 árum, en
átti lengst af heima á Reyðarfirði og
þekkti öll húsin sem hann skrifaði um.
„En ég tek bara upplýsingar af skjala-
söfnum, úr íbúaskrám, fasteignamati
og lóðasamningum, ekkert persónu-
legt, nema í bókinni um hús fjölskyldu
minnar, þar set ég sögur og myndir. Þeir
sem tengjast hinum húsunum eiga að
geta sett inn sínar minningar og myndir.
Þær geta eins verið frá því í gær og fyrir
fimmtíu árum, sagan er alltaf að gerast,
hún er eins og á sem rennur.“
Hugmynd að bókunum segir Vigfús
hafa kviknað fyrir fjórum árum. „Þá
kom mynd á fésbók af húsi heima og
það vissi enginn neitt um það, en ég gat
veitt upplýsingar. Þetta var snikkað hús,
sá sem byggði það hét Jón Pálsson (1891-
1988) og var dýralæknir. Eftir þetta fór
ég að grúska í sögu húsanna á Reyðar-
firði og bækurnar eru afraksturinn. Í
einni þeirra eru þrjú hús sem hafa verið
rifin.“
Guðrún Rúnarsdóttir, bókavörður á
Reyðarfirði, er ánægð með framtak Vig-
fúsar. „Þetta er hvatning til fólks um að
sjá til þess að saga bæjarins lifi,“ segir
hún. „Við séum ekki bara mötuð á öllu
heldur tökum þátt í skráningunni. Þegar
kominn er svona góður grunnur er það
eiginlega skylda okkar.“
Frágangurinn á bókunum vekur
athygli, enda er Vigfús með bókbands-
verkstæði heima hjá sér. „Afi minn var
bókbindari, stundaði það á veturna og
ég var í því með honum frá því ég man
eftir mér. Hef því grunnkunnáttuna
frá honum, en er alltaf að læra. Þetta
er níundi veturinn minn í bókbands-
fræðslu Reykjavíkurborgar á Vitatorgi.
Hildur Jónsdóttir kennir, hún er bráð-
flinkur bókbindari og góður kennari,“
útskýrir Vigfús. Hann kveðst gera fleira
en binda inn bækur, til dæmis framleiða
minnisbækur og heillaóskamöppur.
Au k f ræðist ar fa og bókbands
hefur Vigfús verið í hlutastarfi í Bau-
haus í fjögur ár. „Reyndar ætla ég bara
að vinna út september. Það er orðið svo
mikið að gera hjá mér í pappírnum, ég
verð að snúa mér að þeim verkefnum.
Það er ágætt að breyta til. Ég er áttatíu
og tveggja ára og hef aldrei verið hress-
ari.“ Skyldi hann ætla að halda áfram
að skrifa um húsin í Reyðarfirði? „Já, ég
verð að gera það. Þetta eru bara íbúðar-
hús sem ég er kominn með, mig langar
að gera atvinnuhúsum og sveitabæjum
skil líka.“ gun@frettabladid.is
Sagan er alltaf að gerast
Reyðfirðingurinn Vigfús Ólafsson kom færandi hendi í sinn gamla heimabæ nýlega.
Hann hafði búið til 45 innbundin hefti um elstu húsin þar og afhenti þau bókasafninu.
Á bókbandsverkstæði heima er Vigfús með allt sem þarf. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Bókin um Dvergastein lítur svona út.
Merkisatburðir
1877 Þingeyrarkirkja er vígð.
1905 Sogsbrú er vígð að viðstöddum 1.000 manns.
1942 Breskum flugmanni tekst á síðustu stundu að beina
flugvél sinni frá húsi í Elliðaárdalnum, en brotlendir í
kartöflugarði.
1998 Háhyrningurinn Keikó kemur til Vestmannaeyja.
2015 Elísabet II. Bretlandsdrottning nær þeim áfanga að
verða sá þjóðhöfðingi Bretlands sem lengst hefur setið.
9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT