Fréttablaðið - 09.09.2020, Qupperneq 41
Hverfandi er yfirskrift s ý n i ng a r M a r íu Rú na r Þ r á nd a r-dóttur í Kling og Bang. Þetta er fyrsta einkasýning Maríu
en hún útskrifaðist af myndlistar-
braut Listaháskóla Íslands í fyrra.
„Hverfandi er nokkurs konar
ljóðræn nálgun á náttúruspjöllum
sem munu verða vegna virkjana á
Hraunum, sem er hluti hálendisins
á Austurlandi. Verði virkjanirnar að
veruleika, hafa þær áhrif á öll vatna-
svæðin og lífríkið þar í kring. Verk
mitt á sýningunni er myndband af
einum af fossunum í Fossá. Mynd-
bandinu er varpað á plötu með
vatni sem lekur stöðugt í hringrás
í laug,“ segir María sem sést sjálf í
myndbandinu og gerir hreyfingar
sem bera við fossinn.
„Þetta verk á við svo miklu meira
en bara þetta svæði. Það er verið að
breyta landinu svo mikið með alls
konar framkvæmdum, ekki bara
virkjunum. Víðernin á Íslandi hafa
minnkað um 70 prósent á síðustu 50
árum. Og alltaf stendur til að gera
meira,“ segir hún.
Sýningarstjórar eru Elísabet Bryn-
hildardóttir og Selma Hreggviðs-
dóttir. „María útskrifaðist í fyrra og
við í Kling og Bang vorum strax þá
mjög áhugasöm um verk hennar og
það sem hún er að gera. Það er mjög
gaman að sjá ungan listamann vera
stórtækan í verkum sínum. Hún
sýndi það til dæmis í útskriftarverki
sínu, en þar var hún fljótandi á sjó
inni í plastkúlu,“ segir Selma.
„Hún er stórtæk og útsjónar-
söm, fer alltaf alla leið með verkum
sínum þar sem hún fjallar mikið um
náttúruvernd,“ segir Elísabet.
Sýning Maríu er opin til 27. sept-
ember. Sýningin Porous Tomorrow
eftir Aniara Omann er opin á sama
tímabili. „Við erum með röð sýn-
inga þar sem við teflum saman til-
tölulega nýútskrifuðum listamanni
og öðrum sem er lengra kominn,“
segir Elísabet. „Við fundum sterkan
sameiginlegan þráð milli þeirra
tveggja. Í verkum sínum fjalla þær
um náttúruna, framtíðina og mál-
efni sem brenna á okkur núna.“
„Þær gera þetta á ólíkan hátt og
bæta hvor aðra upp. Það virkar ekki
endilega vel að verk listamanna sem
sýna saman séu of lík,“ segir Selma.
Listamannaspjall verður um sýn-
inguna fimmtudaginn 24. septem-
ber klukkan 20.00.
Stórtæk og útsjónarsöm
María Rún Þrándardóttir sýnir í Kling og Bang. Verk hennar
á sýningunni er ljóðræn nálgun á náttúruspjöllum.
TÓNLIST
Blönduð dagskrá í flutningi Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands undir
stjórn Daníels Bjarnasonar. Bein
útsending á RÚV.
Eldborg í Hörpu
föstudaginn 4. september
Einhver grínisti setti internetið á
hliðina nýlega með því að leggja
fyrir fólk eftirfarandi gátu: Það
tekur 120 manna hljómsveit 40
mínútur að f lytja níundu sinfóníu
Beethovens. Hvað myndi 60 manna
hljómsveit vera langan tíma að gera
það sama? Fákunnandi netverjar
svöruðu margir: 80 mínútur. En
það er alrangt, sinfónía Beethovens
tekur alltaf jafn langan tíma, sama
hversu margir spila.
Mér datt þetta í hug á föstudags-
kvöldið, þegar Sinfóníuhljómsveit
Íslands hélt árlegu tónleikana sína
Klassíkin okkar undir stjórn Daní-
els Bjarnasonar. Tónleikarnir voru í
beinni útsendingu; vegna COVID-19
voru sárafáir í Eldborginni í Hörpu.
Og ekki bara það, hljómsveitin var
óvanalega fámenn, svo hægt væri
að viðhalda tveggja metra reglunni.
Samt voru verkin ekkert lengur að
líða. Tónleikarnir sjálfir voru þó
harla langir, en það má rekja til þess
að báðar menningarstofnanirnar
halda upp á stórafmæli á árinu. Sin-
fónían er sjötug, RÚV er nírætt.
Vinsæl klassík
Eins og vaninn er á Klassíkinni
okkar samanstóð efnisskráin af
vinsælli klassík, gjarnan köflum úr
stærri verkum eins og fiðlukonsert
Mendelssohns, sinfóníu nr. 2 eftir
Sibelius og æsilegum þætti úr Eld-
fuglinum eftir Stravinskí, en þar
gekk mikið á. Hljómsveitin var með
besta móti, væntanlega vel hvíld
eftir sumarið. RÚV var líka í góðu
formi, upptakan var í senn hljóm-
mikil og skýr og kynningar þeirra
Guðna Tómassonar og Höllu Odd-
nýjar Magnúsdóttur voru líflegar og
skemmtilegar.
Of langt mál væri að telja allt upp
sem hér var flutt, enda tónleikarnir
sérlega langir eins og áður segir.
Páll Palomares lék einkar fall ega
hæga kaflann úr fiðlukonsert Men-
delssohns, tónmyndunin var hár-
nákvæm og voldug. Elmar Gilberts-
son söng meðal annars Vöggukvæði
Emils Thoroddsen af þokka og til-
finningu, og Dísella Lárusdóttir var
sömuleiðis með allt sitt á hreinu í
Íslensku vögguljóði á hörpu eftir
Jón Þórarinsson.
Ruht wohl úr Jóhannesarpassí-
unni eftir Bach var himneskt. Þar
söng Mótettukór Hallgrímskirkju
(undir stjórn Harðar Áskelssonar)
af næmri tilfinningu fyrir háleitum
textanum; útkoman var dásamleg.
Kaldhæðni Emilíönu Torrini
Stemningin var heldur djöfullegri
í Ha Ha eftir Emilíönu Torrini, þar
sem hún söng sjálf. Lagið, sem er af
plötunni Me and Armini frá 2008,
byrjaði með sólói á selestu. Það var
í fyrstu sakleysislegt, enda hljómar
selestan eins og spiladós. En svo
kom allt í einu ægilegt glamur. Þetta
gaf tóninn fyrir sjálft lagið, sem var
skemmtilega kaldhæðnislegt.
Eina sem var aðfinnsluvert á tón-
leikunum var kynningin á Dauða
Ásu úr Pétri Gaut eftir Grieg. Kynn-
arnir sögðu frá því að kaflinn hefði
verið f luttur utan dagskrár á Sin-
fóníutónleikum árið 1995, til að
minnast þeirra sem höfðu látist í
snjóf lóði nokkrum dögum fyrr.
Á meðan þau voru að tala heyrði
maður óminn af verkinu. Þegar
það svo raunverulega byrjaði á dag-
skránni var það ekki nærri því eins
áhrifaríkt og það hefði getað orðið,
vegna þess að því hafði verið þjóf-
startað. Flutningurinn sjálfur var
þó fallegur, hann einkenndist af
trega og hjartahlýju.
Í heild voru þetta flottir tónleikar
og gefa góð fyrirheit um skemmti-
legan vetur fram undan.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Vönduð útsending
og fínn tónlistarflutningur.
Klassíkin okkar á tímum COVID
Kynningar Guðna og Höllu Oddnýjar voru líflegar og skemmtilegar.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
María Rún við voldugt og áhrifamikið verk sitt . FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HÚN FER ALLTAF ALLA
LEIÐ MEÐ VERKUM
SÍNUM ÞAR SEM HÚN FJALLAR
MIKIÐ UM NÁTTÚRUVERND.
Elísabet Brynhildardóttir
Andri Snær Magnason verður gestur hátíðarinnar ilb (Int-ernational Literature Festival
Berlin) sem hófst í þessari viku og
tekur þar þátt í dagskrá 11. sept-
ember sem ber heitið Visions of
Bioecon omy. Einnig verður hægt
að fylgjast með viðburðinum í
streymi á vef hátíðarinnar. Íslensk-
palestínski rithöfundurinn Mazen
Maarouf er líka gestur hátíðarinnar
í ár og verður hann í spjalli um bók-
ina sína, Brandarar handa byssu-
mönnum, þann 17. september.
Í Bremerhaven opnar í október
sýningin Hafið – Ref lections of
the Sea sem var í Felleshus, menn-
ingarmiðstöð norrænu sendiráð-
anna í Berlín, fyrr á árinu. Meðal
þeirra sem eiga verk á sýningunni
eru rithöfundarnir Andri Snær
Magnason, Auður Jónsdóttir, Hall-
grímur Helgason, Jón Kalman
Stefánsson, Linda Vilhjálmsdóttir,
Ragnar Helgi Ólafsson, Sigríður
Hagalín Björnsdóttir, Sjón og Stein-
unn Sigurðardóttir. Sýningarstjóri
er Eva Þengilsdóttir.
Andri Snær í Berlín
Andri Snær Magnason tekur þátt í dagskrá í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Fjölbreytt úrval bóka er á bóka-uppboði Foldar uppboðshúss, en því lýkur sunnudaginn 20.
september kl. 14.00.
Að þessu sinni fer nokkuð mikið
fyrir fáséðum fyrstu útgáfum ljóða-
bóka. Má þar nefna fyrstu bækur
Þorsteins frá Hamri, Í svörtum
kuf li og bókina Tannfé handa
nýjum heimi, sem er myndskreytt
af Ástu Sigurðardóttur. Þá má nefna
Svartar fjaðrir Davíðs Stefánssonar,
verk Jónasar Svafár, Það blæðir úr
morgunsárinu og Geislavirk tungl,
bundnar í fall- egt bókband
eftir Sigurþór
S i g u r ð s s o n
auk þess sem
eintökin eru
árituð af höf-
undi. Einn-
i g v e r ð a
boðnar upp
tvær af fyrri
b ó k u m
J ó n a s a r
S v a f á r ,
m y n d -
skreyttar
a f h ö f -
undi.
Fyrstu útgáfur
ljóðabóka
MJÓLKIN GEFUR STYRK
EDDA FALAK
AFREKSKONA Í CROSSFIT
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0