Fréttablaðið - 09.09.2020, Side 44

Fréttablaðið - 09.09.2020, Side 44
Ga m a n þ á t t a r ö ð i n Eurogarðurinn ger-ist í Húsdýragarð-inum og fjallar um dramatísk eftirmál þess að drykkfelldur braskari með háleitar hugmyndir kaupir garðinn til þess að breyta honum í einhvers konar Disney- World sem hann kallar Eurogarð- inn. Starfsfólkið gegnir mikilvægu hlutverki í stórkostlegum áætlun- um athafnamannsins um framtíð Eurogarðsins, en þar er á ferðinni mislitur hópur með ólíkar hug- myndir um framtíðina og misjafnar væntingar til lífsins. Mannauðurinn á því erfitt með að sætta sig við nýja eigandann og framtíðarsýn nýja eigandans, þannig að f ljótt verður ljóst að það verður á brattann að sækja og ekki verði komist hjá árekstrum. Jón Gnarr leikur viðskiptamann- inn vafasama en auk hans eru Anna Svava Knútsdóttir, Auðunn Blönd- al, Steindi Jr. og Dóri DNA frek til fjörsins í stórum og litskrúðugum leikhópnum. Það er Glassriver sem framleiðir Eurogarðinn fyrir Stöð 2 en Arnór Pálmi Arnarson leikstýrir auk þess sem hann skrifar handritið ásamt Önnu Svövu, Dóra, Steinda og Audda. toti@frettabladid.is Drykkfelldur braskari hristir vel upp í Húsdýragarðinum Jón Gnarr leikur braskarann sem rekst á ýmis ljón á vegi sínum frá Húsdýra- garðinum til Eurogarðsins. Anna Svava og Auðunn Blöndal fara með stór hlutverk í Eurogarðinum. Steindi kemst að því hvar Davíð keypti ölið þegar Jón Gnarr eignast Húsdýragarð- inn. Mannauðurinn í Eurogarðinum lætur illa að stjórn. Stemningin í garðinum er á köflum grátbrosleg og ef til vill ekki von á öðru en sumir bugist og hengi haus. Handritshöfundurinn Dóri DNA bregður einnig á leik fyrir framan tökuvélarnar og virðist nokkur ráðvilltur. Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir kaupir ekki hvaða dellu sem er í Eurogarð- inum. MYNDIR/LILJA JÓNS Arnór Pálmi Arnarson leikstjóri þarf að leysa ýmsar flækjur og vandræði. Í það minnsta tvær grímur og einn svíns- haus renna á starfsfólk Húsdýragarðsins þegar drykkfelldur braskari eignast hann og kynnir háleitar hugmyndir um að breyta honum í einhvers konar Disney World undir merkjum Eurogarðsins. 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.