Fréttablaðið - 09.09.2020, Síða 46
VIÐ VORUM FARNAR
AÐ FÁ SVOLÍTIÐ MIKIÐ
AF SÖGUM SEM VORU EINHVERN
VEGINN FREKAR EINS OG
FANTASÍUR UNGRA, GRAÐRA
KARLA.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
AF ÖLLUM VÖRUM*
Í ÖLLUM DORMA
VERSLUNUM
Láttu drauminn rætast
www.dorma.is
SENDUM
FRÍTT
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
TAX
FREE
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
VERÐDÆ
M
I
NATURE’S REST LUXURY
heilsurúm með Classic botni
160 x 200 cm Nature’s Rest Luxury
heilsudýna á Classic botni: Fullt verð: 99.900 kr.
Aðeins 80.565 kr.
* Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti og gildir á öllum vörum nema vörum frá Simba. Gildir ekki ofan á önnur tilboð
eða af sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Fjögur ár eru liðin síðan María Lilja Þrastardóttir og Rósa Björk Bergþórs-dóttir gáfu út bókina Ástarsögur íslenskra kvenna og nú er fram-
haldið, Ástarsögur íslenskra karla,
loksins komið út, en vinkonunum
reyndist mun erfiðara að draga
innilegar frásagnir upp úr körlum
en konum.
„Við byrjuðum að vinna þessa
bók í kjölfar þess að kvennabókin
kom út og það vannst ágætlega
svona til að byrja með,“ segir María
Lilja um nýju bókina sem hún segir
vera „eðlilegt framhald“ þótt seint
sé.
Hún segir að til að byrja með
hafi þeim gengið nokkuð vel að
safna frásögnum frá karlmönnum.
„Það kom alveg slatti af sögum en
eftir smá tíma lentum við svolítið
á vegg,“ segir María Lilja um það
þegar einu sögurnar sem bárust
þeim verður best lýst sem ógeðslegu
og subbulegu klámi.
Klámveggurinn
„Við vorum farnar að fá svolítið
mikið af sögum sem voru einhvern
veginn frekar eins og fantasíur
ungra, graðra karla.“
María Lilja segir að þær hafi eig-
inlega ákveðið að hætta þarna, þar
sem þær ætluðu sér ekkert að fara
að ritstýra einhverjum fantasíusög-
um. „Og ef þetta var sá skilningur
sem karlar ætluðu að setja í ástina
þá nenntum við ekkert að vera eitt-
hvað að breyta því. Þannig að við
lentum bara, eins og ég segi, á vegg.“
Þegar á reyndi voru vinkonurnar
þó ekki alveg tilbúnar til að gefa
ástarsögur karlmanna upp á bátinn.
„Og við ákváðum að fara aðeins yfir
þetta aftur og blása einhvern veginn
smá lífi í þetta, vegna þess að þeir
karlar sem við höfðum jú vissulega
átt í góðu samstarfi við voru voða-
lega spenntir auðvitað fyrir því að
sögurnar þeirra kæmu út í bók og
svona. Eðlilega, því þetta er náttúr-
lega mjög persónulegt og þeir voru
að deila rosalega fallegum og ein-
lægum hlutum með okkur, þannig
að við fórum að skoða þetta aftur,
en þá kemur #MeToo-byltingin.“
# í reikninginn
María Lilja segir að þarna hafi þeim
ekki þótt við hæfi að gefa út ástar-
sögur karla. „Þetta var bara ein-
hvern veginn hvorki staðurinn né
stundin og okkur fannst ekki að
raddir karla þyrftu að heyrast akk-
úrat á þessum tímapunkti. Okkur
leið eins og við værum þá að setja
þetta byltingunni til höfuðs. Eða
eitthvað. Þannig að þessi ágæta bók
var sett aftur á ís.“
Enn og aftur reyndust þær þó
ekki tilbúnar til að slá verkefnið af
endanlega og aftur var farið af stað.
„Þá fannst okkur vanta svolítið upp
á dýptina í bókinni. Kannski vegna
þess að við höfðum ekki alveg náð
til þessara eldri karla. Fimmtugra
og eldri.“
Þær ákváðu því að tefla fram karl-
manni og töluðu við útgefandann
sinn, Bjarna Þorsteinsson hjá Bjarti.
„Við fengum hann til liðs við okkur
og hann hjálpaði okkur eiginlega
að finna sögurnar sem okkur vant-
aði þannig að nú er bókin loksins
komin og er bara mjög fín.“
Alls konar ást
Sögurnar í bókinni eru af öllu tagi
og sumar eru, eins og það er orðað
í káputexta, „rómantískar, aðrar
dálítið groddalegar, sumar fyndnar,
aðrar sárar og sorglegar. En í öllum
sögunum er ástin yfir og allt um
kring í öllum sínum margbreyti-
leika.“
Með samstilltu átaki þeirra
þriggja og nokkuð skrautlegu
vinnsluferli, rötuðu sögur úr lífi
ungra manna og eldri, gagnkyn-
hneigðra, samkynhneigðra og kyn-
segin í bókina.
„Við ræddum það svolítið okkar á
milli og ég held að það hafi kannski
bara verið ákveðin skekkja og bara
naívismi í okkur sjálfum, eða hroki,
að karlar vildu eitthvað endilega
ræða þessi mál við okkur,“ segir
María Lilja,
„Ég meina, ef maður ætlar að
opna sig og vera voðalega mjúkur
og væminn og eitthvað þannig og
er gefinn vettvangur til þess, þá vill
maður einhvern veginn eiga sam-
talið við jafningja sína.
Mörgum hefur örugglega bara
hreinlega fundist það óþægilegt
að eiga þetta samtal við okkur, og
þær sögur sem Bjarni náði eru eitt-
hvað sem við hefðum aldrei getað
fengið, en svo aftur á móti eru sög-
urnar sem við fengum eitthvað sem
Bjarni hefði heldur ekki náð, þannig
að þetta var hið gullna samstarf.“
En sluppu einhver sýnishorn af
klámfantasíunum í bókina?
„Já, já. Já, já, já. Það eru bullandi
brjóst sko,“ segir María Lilja og
skellihlær. „Og bara grín, alvara
og hjartasár og bernskubrek. Þetta
er bara eins og fyrri bókin og bara
mjög eðlilegt framhald af henni.“
toti@frettabladid.is
Ástarsögur karlmanna
sóttar úr klámþokunni
Framhald bókarinnar Ástarsögur íslenskra kvenna eftir Maríu
Lilju og Rósu Björk er loks komið, en subbulegar klámfantasíur
þvældust fyrir þegar þær reyndu að fá karla til að opna hjörtu sín.
Eftir að hafa rekist á meðal annars klámvegg og komist eftir alls kyns krókaleiðum að hjörtum íslenskra karlmanna,
hefur Rósu Björk Bergþórsdóttur og Maríu Lilju Þrastardóttur loksins tekist að koma ástarsögum þeirra út á bók.
9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð