Fréttablaðið - 09.09.2020, Side 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Davíðs
Þorlákssonar
BAKÞANKAR
OPIÐ mán.–lau. kl. 11–18
Stóraukið úrval af gömlu!
BÓKAMARKAÐUR
ÁRMÚLA 42
AVA
SKÓGARBERJA/
APPELSÍNU - 330 ML
129
KR/STK
391 KR/L
Fyrir svanga
ferðalanga
Við stöndum frammi fyrir tveimur meiriháttar vandamálum á sama tíma, sem
ógna lífsgæðum okkar og þar
með heilsu: loftslagshlýnun og
kórónaveirukreppunni. Kóróna
veirukreppan þarfnast ekki bara
bráðaaðgerða eins og þeirra sem
stjórnvöld hafa þegar gripið til,
heldur einnig tafarlausra aðgerða
sem snúa að efnahagsbata til
lengri tíma. Þótt hlýnandi lofts
lag sé ekki nýtilkomið, og verði
ekki leyst með töfralausnum, þá
þarfnast það tafarlausra aðgerða.
Tíminn vinnur ekki með okkur.
Í ljósi stöðunnar megum við
ekki grípa til aðgerða vegna
annars vandans án þess að meta
hvaða áhrif þær hafa á hinn. Það
vill svo vel til að lykillausnir að
báðum vandamálunum eru þær
sömu: nýsköpun og fjárfesting.
Ein alvarlegasta af leiðing kóróna
veirukreppunnar er atvinnuleysi,
sem var 8,8% í síðustu mælingu.
Nýsköpun og fjárfesting er lykill
inn að sköpun starfa.
Það er nauðsynlegt að skapa
jákvæða hvata til að markmið um
kolefnishlutleysi náist. Fjárfesting
þarf að eiga sér stað í til dæmis
nýsköpun til að þróa nýja tækni.
Orkuskipti þurfa að eiga sér stað
í samgöngum með fjárfestingu í
innviðum og samgöngutækjum.
Fyrirtæki þurfa að fjárfesta í
nýjum tækjum, bílum og skipum
sem nota minni orku og fjárfesta
þarf í f lutningskerfi raforku svo
að atvinnulíf um land allt hafi
greiðan aðgang að grænni orku.
Græn fjármögnun er lykilþáttur í
að tryggja að allt þetta gerist.
Þótt lausnirnar séu augljósar
er ekki augljóst að okkur lánist
að nýta þær. Til þess að svo megi
verða þarf að búa atvinnulífinu
gott umhverfi með jákvæðum
hvötum, lágum sköttum og
lagaumhverfi sem er ekki óþarf
lega íþyngjandi.
Tvö vandamál
Undirbúningur er í fullum gangi fyrir komandi tímabil
sem hefst á laugardag á Síminn Sport. Tómas Þór og
félagar sjá til þess að þú fáir allt það helsta heim í stofu
til þín. Nú er boltinn hjá þér.
Þú færð áskrift að Síminn Sport á siminn.is
Enski boltinn
hefst á laugardag!