Framblaðið - 01.02.1958, Side 5

Framblaðið - 01.02.1958, Side 5
Frá fyrsta knattspyrnumótinu, 20. júní 1911. Framarar alhvítir, K.R.-ingar með borða um öxl. Standandi talið frá vinstri: Olafur Rósenkranz, Geir Konráðsson, Kjartan Konráðsson, Ben. G. Waage, Davíð Olafsson, Pétur Magmisson, Hinrik Thorarensen, Karl G. Magnússon, Guðmundur bórðarson, Arni Einarsson, Friðþjófur Thorsteinsson, Bjami Ivarsson, Jón Þorsteinsson, Þorsteinn Jónsson, Kristinn Pétursson, Gunnar Halldórsson, Nieljohnius Olafsson og Magnús Bjömsson. Fremst: Sigurður 0. Lárusson, Arreboe Clausen, Gunnar Kvaran, Agúst Armann og Axel Thorsteinsson. var stofnað, því að ekkert mark var skorað í leiknum. Það varð að samkomulagi eftir leikinn, að félögin óskuðu eftir knattspyrnu- keppni á mótinu, og var það auðsótt. Fram vann þann leik (2:1) Þessi úrslit vorurn við sammála um að þakka Ólafi Itósenkranz umfram alla aðra menn. Ólafur kenndi leikfimi í menntaskól- anum, og voru margir nemendur hans í Fram. Strax eftir stofnun félagsins bauðst Ólafur til að leiðbeina okkur á æfingum. Hann var manna kappsamastur, á hverju sem hann tók, og var harður í horn að taka. Það duld- ist engum, að Framliðið hafði meira þol, þeg- ar leið á leikinn. Um haustið kepptu félögin aftur með nákvæmlega sama árangri. Eftir þetta þótti sem allir vegir væru færir. Það var samþykkt að boða til móts fyrir allt land næsta sumar. Þá hófst Knattspyrnumót íslands. Félagsmenn skutu saman í bikarinn. A þessu fyrsta íslandsmóti, 1912, var eitt utanbæjarfélag, Vestmannaeyingar. Þeir töp- uðu fyrir K.R., en gáfu leikinn við Fram — vegna meiðsla, sem flest munu hafa orðið á síðustu æfingunni heima fyrir. Eftir jafn- teflisleik sigraði K.R. (3:2) Nú verður að fara fljótt yfir sögu. 1913. K.R. þótti óréttmætt, að Fram ein- okaði Islandsmótið, þ. e. hirti allan ágóða af því, og náðist ekki samkomulag um það. Fram tilkynnti þátttöku og taldi sig Islands- meistara, er enginn annar bauð sig fram. En K.R. tók áskorun<frá Fram. I þeim leik skildu félögin jöfn, en í nýjum leik vann Fram. 191b. Sama sagan um íslandsmótið,, en Fram vann leik, sem félögin háðu. Þetta sum- ar hélt U.M.F.Í. aftur íþróttamót, og vann Fram í knattspyrnunni (1:0). Fram tók þátt í öðrum íþróttagreinum og varð næsthæst að stigum í mótinu, vann t. d. tvöfaldan sigur í langstökki, sigraði í boðhlaupi, 800 metra hlaupi og 10 km. hlaupi. FKAMBLAÐIÐ 3

x

Framblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framblaðið
https://timarit.is/publication/1467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.