Framblaðið - 01.02.1958, Blaðsíða 26
FRA LIÐNUM ARUM
— Viötal við nokkra félaga —
Pumpan spöruð -
formaðurinn bauðsf
fil að blása ...
„Blessaður vertu, ég man ekkert,“ svaraði
Pétur J. Hoffmann Magnússon, þegar ég
hringdi til hans og fór þess á leit við hann,
að við rifjuðum upp gamlar minningar um
stofnun félagsins. „En komdu samt,“ sagði
Pétur. „Þú færð að minnsta kosti kaffisopa.“
Ég vissi fyrirfram, að Pétur myndi lúra á
ýmsu og í upphafi lét hann hugann reika
aftur að stofnuninni fyrir 50 árum.
„Hver voru eiginlega tildrög að stofnun
félagsins?“
„Það var þannig, skal ég segja þér, að við
strákarnir fórum oft að horfa á enska sjóliða,
sem lögðu leið sína út á Mela til þess að æfa
sig. Við vorum flestir 13—14 ára og sumir
yngri . Stundum fengum við að vera með
Englendingunum. Svo eignaðist ég minn
fyrsta fótbolta. Það var að vísu minnsta gerð
af fótbolta, en það var blaðra í honum og hægt
að blása hann upp. Ég sá hann í glugganum á
Breiðfjörðsverzlun í Aðalstræti, þar sem nú
er Skóbúð Reykjavíkur. Kostaði gripurinn
95 aura, sem var hér um bil allt sparifé
, mitt.
Upp úr þessum boltakaupum komum við
saman í lystihúsinu bak við Andersens húsið,
(Aðalstræti 16) og þar var félagið stofnað
1. maí 1908. í upphafi hlaut félagið nafnið
Kári og var það fyrst og fremst valið vegna
þess, að það þótti íslenzkt. Ekki voru þó allir
ánægðir með nafnið, sem sjá má af því, að
á stofnfundinum fær nafnið Kári 6 atkvæði
af 18, sem á fundi voru. Líður svo fram til
6. maí 1909, en þá er fundur haldinn á Suður-
götu 4, hjá Gunnari Halldórssyni, eins og
svo oft áður og síðar. Þar var mikið rætt um
nafnið og m. a. bókað eftirfarandi:
„Fyrst sýndi formaður fram á hvaða fjar-
stæða það væri að kalla félagið Fram, bæði
væri það hermt eftir öðru félagi hér í bæ,
Heimastjórnarfélaginu, og svo væri líka búið
einu sinni að samþykkja hitt nafnið og sagði,
að ekkert mætti breyta út frá því, sem meiri-
hlutinn hefði einu sinni samþykkt.
Þetta hrakti ritari (Arreboe Clausen) og
sagði, að nafnið Fram væri alls ekki tekið
eftir neinu öðru félagi, heldur hefði verið
stungið upp á því, af því að meirihluta fél-
agsmanna fyndist það eiga betur við, að félag,
sem hefir fótbolta fyrir stafni, heiti „Fram“
heldur en „Kári“ og sagði það jafnvel hlægi-
legt að kalla það eftir forníslending eins og
forníslendingar liefðu verið fótboltamenn“
12. maí er aftur haldinn fundur og verða
enn umræður um nafnið. Svo er það hinn 16.
maí að enn er fundað hjá Gunnari í Suður-
götu 4. Var nú gengið til atkvæða og féllu
þau þannig, að Fram hlaut 7 atkvæði og
Kári 4. Þar með var nafnið endanlega af-
greitt mál.“
„Hverjir voru það, sem helzt héldu til
streitu nafninu Fram?“
„Mig minnir, að það hafi aðallega verið
þeir Arreboe Clausen og Kristján Albertsson.
Hann var alltaf masandi á fundum. Hrein-
asti reyfari.“
24 FRAMBLAÐIÐ