Framblaðið - 01.02.1958, Side 21

Framblaðið - 01.02.1958, Side 21
Formaður K.S.I., Björgvin Schram, afhendir Asgeiri Sigurðssyni merki jyrir lcnattþrautir. Ilandknattleikur Árangur einstakra flokka félagsins hefur verið misjafn undanfarin 5 ár og ekki jafn góður og stundum áður, en Fram á nú mjög efnilegum handknattleiksflokkum á að skipa og er því bjart framundan, ef haldið verður saman og æft vel. Þjálfarar eldri flokka hafa verið Hannes Sigurðsson, Axel Sigurðsson og Tryggvi Malm- quist. Auk þeirra hafa þjálfað yngri flokka félagsins Karl Benediktsson, Kristinn Jóns- son, Jón Friðsteinsson og ýmsir aðrir þeim til aðstoðar. Árangur einstakra flokka félagsins 1953— 1958 hefur verið sem hér grcinir: Meistaraflokkur kvenna vann íslandsmótið inni 1953 og 1954, hraðkeppni H.K.R.R. inni 1953 og hraðkeppni Suðvesturlands 1953. II. flokkur kvenna var fyrsti flokkur frá Fram, sem sig'raði í móti, Reykjavíkurmóti 1946. Undanfarin ár hefur Fram ekki sent II. flokk kvenna til keppni, þar til nú, að félagið á á að skipa áhugasömum flokki. Meistaraflokkur karla vann íslandsmótið í útihandknattleik 1954. Leikmenn eru nú flest- ir ungir og efnilegir og væntir félagið sér góðs af þeim. Á þessu tímabili hefur Hilmar Ólafs- son verið stoð og stytta liðsins. II. jlokkur A, íslandsmeistarar og Reykjavíkurmeistarar 1957. Fremri röð frá vinstri: Guðjón J ónsson, Gunnar Gunnarsson, Rúnar Guðmannsson, Agiist Oddgeirsson. Ajtari röð: Axel Sigurðsson, Eggert Jónsson, Jón Þorláksson, Einar Már Magnússon, Ragnar Jóhanns- son, Olajur Ragnarsson. IS’t'" l v Æ k . / ■iraÉKUTcri® 7 ■ s^jö ■ • w, > W , FRAMBLAÐIÐ 19

x

Framblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framblaðið
https://timarit.is/publication/1467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.