Framblaðið - 01.02.1958, Síða 31

Framblaðið - 01.02.1958, Síða 31
íiskverkun, og mun hafa setzt að á Spáni sem fiskkaupmaður. Ekki tókst okkur að halda lengi í hann og vorum því í hálfgerðu hraki með markmann síðari hluta sumars. Nú, svo voru fleiri, sem tóku þátt í kapp- leikjum okkar þetta sumar, t. d. þeir Olafur Magnússon, ljósmyndari og Otto B. Arnar. Sumarið 1915 er mér minnisstætt, vegna þess að við unnum marga sigra, og meðal annars til eignar fagran grip, sem var útskor- ið horn á fæti, og mun það enn vera einn af þeim dýrmætu gripum, sem nú prýða félags- heimili Frarn. En það voru ekki bara sigrarnir einir, sem festust í huga mér, heldur hinn góði félagsandi, vinátta og samheldni allra á knattspyrnuvellinum og utan hans, er var til fyrirmyndar öðrum. — Varstu svo næstu ár í kappliði Fram? — Nei, árin 1916, 17 og 18 var ég ýmist á ísafirði eða í Kaupmannahöfn. Þar sá ég rnarga góða kappleiki. En svo árið 1919—20 var ég hér og lék þá mikið með Fram. Frá sumrinu 1919 er mér einna minnisstæðust heimsókn Akademisk Boldklub frá Kaup- mannahöfn, og á ég frá þeim tíma, enn í dag, nokkra góða vini í .Danmörku, svo sem þá Leo Frederiksen, sem nú er forseti danska íþróttasambandsins og Ebbe Swartz, en hann er formaður D. B. U. Þetta mun hafa verið fyrsta heimsókn er- lends kappliðs til íslands og því ekki óeðli- legt, að maður muni hana. Þá var í fyrsta sinn tekin kvikmynd hér af kappleik, en það gerði Petersen í Gamla Bíó, af kappleik milli Fram og A.B. Sá leikur var háður á sunnu- degi, í glampandi sól og logni. Um haustið sá maður svo þessa mynd í Gamla Bíó og þótti gaman að. þó að hún væri ekki vel skýr. — Hvernig var svo næsta ár? — Ég var mesta flökkukind á þessum ár- um, fór nú aftur til Isafjarðar; þangað hafði þá aldrei komið utanbæjarkapplið, og gerði ég því tilraun til að fá Fram í heimsókn, en fjárhagsins vegna var það ekki hægt. Knatt- spyrnufélagið Víkingur var þá eitthvað fjár- sterkara og sömdum við Axel Andrésson um. að þeir kæmu vestur 1921. Arið eftir, eða sumarið 1922, tókst mér svo að ná í Fram vestur. Báðar þessar heimsóknir settu mikið fjör í ísfirzka knattspyrnu, og mér er óhætt að fullyrða, að allir þátttakendurnir reykvíksku voru mjög ánægðir með ferðalagið og mót- tökurnar vestra. — Þessar heimsóknir munu hafa verið með þeirn fyrstu, sem farnar voru út á land, og þóttu því meiri viðburður þá, en nú orðið. — Hvenær komstu svo aftur til Reykjavík- ur? — Það var árið 1923 og þá tók ég auð- vitað strax til starfa með Fram. Ég var 40 ára, þegar ég lék minn síðasta leik. Það eru um 22 ár síðan, lagsmaður. Ég hef nokkrum sinnum sparkað knetti síðan, bæði með bankamönnum og leikurum, en nú er útilok-að, að ég geri meir af slíkum íþróttum, þótt ég feginn vildi. — Geturðu sagt mér nokkuð sérstakt um síðustu ár þín á leikvellinum? — Já, blessaður vertu, það er af mörgu að taka, en ég hef bara ekki tíma til þess, það yrði allt of langt mál. Ég vil þó bæta einu mjög minnistæðu hér við. Mér var falið það heiðursembætti árið 1939, að vera fararstjóri Fram í ferðalagi til Danmerkur, en okkur var boðið að senda lið í tilefni 50 ára afmælis D.B.U. Þetta var eitt með allra skemmtilegustu ferðalögum, sem ég hef farið um æfina. Við- tökur allar voru svo framúrskarandi góðar, að þær gleymast ekki. Drengirnir, sem með voru í þessari ferð, voru allir prýðilegir leik- menn og ágætir ferðafélagar, og hvar sem komið var Fram til hins mesta sóma. Kapp- leikir voru háðir í Odense, Sorö, Tönner og á Bornholm, og unnum við þrjá, en gerðum jafn- tefli í Odense. Þetta var glæsilegt ferðalag. Áður hafði ég verið fararstjóri Fram í Vest- FRAMBLAÐIÐ 20
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Framblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framblaðið
https://timarit.is/publication/1467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.