Framblaðið - 01.02.1958, Qupperneq 39

Framblaðið - 01.02.1958, Qupperneq 39
Þýzkalandsför Fram 1953 Fimmtudagurinn 13. ágúst rann upp, bjart- ur og fagur. Þegar leið að hádegi tíndust nokkrir Framarar og skyldulið þeirra út á Reykjavíkurflugvöll, þangað sem flugvélar Loftleiða h.f. eru afgreiddar. Hópur þessi, það er að segja Framararnir, ætluðu sem sé að taka sér far til Þýzkalands með einni af flug- vélum félagsins og skyldi ferðinni heitið suður til hinna sólheitu og fögru héraða á bökkum Rínar. Ferðin var farin í boði Knattspyrnu- sambands Rínlendinga. Hafði Gísli Sigur- björnsson forgöngu um ferð þessa ,eins og önn- ur samskipti Fram við Þjóðverja. Eftir að við höfðum móttekið óskir félaga og vina um far- arheill, var lagt af stað kl. 13,15. Á leiðinni kom flugvélin við í Stavangri og Kaupmanna- höfn og komum við til Hamborgar á miðnætti. Er til Hamborgar kom var tekið á móti okkur af knattspyrnusambandi staðarins og við fluttir til gistingar í stórt og nýtízkulegt hótel, „Haus der Sports“ og er það að öðrum þræði félagsheimili og samkomustaður íþrótta- hreyfingarinnar í Hamborg. Þarna beið okk- ar á borðum mikill og góður matur og gerðum við honum hin beztu skil áður en við tókum á okkur náðir. Morguninn eftir vorum við vaktir kl. 5,15 og eftir að hafa snætt morgun- verð ókum við til aðaljárnbrautarstöðvarinn- ar, sem var drjúgan spöl frá. Til Kölnar kom- um við kl. þrjú og var skipt þar um lest og komum við til Koblenz kl. rúmlega hálf sex um kvöldið. Á aðaljárnbrautarstöðinni tóku á móti okkur margir af forystumönnum Knatt- spvrnusambands Rínlendinga, þar á meðal for- maðurinn Dr. Menninger, hinn óviðjafnan- legi unglingaleiðtogi Dr. Erbaeh, vinur okkar, Staudt, Frost, Gauchel, Oden og mörg flciri kunnugleg andlit fögnuðu okkur. í Koblenz er aðsetur knattspyrnusambandsins og þar var okkur ætlaður dvalarstaður í íþróttaskóla þess. Skólinn er í útjaðri borgarinnar í mjög fögru og kyrrlátu umhverfi og dásamleg íþróttasvæði steinsnar frá. Þarna gátum við dvalizt við æfingar við hin ákjósanlegustu skilyrði. Nokkrir af þátttakendum í ferðinni höfðu farið með íslenzka landsliðinu til Noregs og leikið gegn Norðmönnum í Bergen. Þeir voru væntanlegir með flugvél til Frankfurt næsta dag og fór Gísli Sigurbjörnsson þangað til móts við þá, þeim til aðstoðar og leiðsögu. Þeir komu til Koblenz um kvöldið, eftir mjög lýjandi ferð, því að þennan dag var hitinn óskaplegur, 36° C í skugga. Fyrsti kappleikurinn fór fram næsta dag, sunnudaginn 16. ágúst kl. hálf fjögur í Zimm- ern, sem er um tveggja tíma akstur frá Kob- lenz. Lékum við gegn úrvalsliði frá Efri-Rín. Veðrið var ágætt þennan dag, ekki nærri því eins heitt og dagana áður. Nóttina áður og um morguninn hafði rignt töluvert og var völlurinn nokkuð blautur. Þarna var leikið á mjög sæmilegum malarvelli. Við byrjuðum leikinn ágætlega og skoruðum á fjórðu mín- útu. Við vorum fyrstu 15 mín. í stöðugri sókn. Þegar 30 mín. voru liðnar á leiktímann, skoruðu Þjóðverjarnir og bættu tveimur mörk- um við skömmu síðar. Síðari hálfleikur hófst með sókn Þjóðverjanna og voru þeir mjög ágengir við mark okkar. Léku þeir mjög vel og hratt og þegar 20 mín. voru liðnar af síð- ari hálfleik, höfðu þeir skorað þrisvar. Þegar 10 mín. voru til leiksloka, kom annað mark okkar. Lauk leiknum þannig með sigri þeirra FRAMBLAÐIÐ 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Framblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framblaðið
https://timarit.is/publication/1467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.