Framblaðið - 01.02.1958, Qupperneq 41

Framblaðið - 01.02.1958, Qupperneq 41
þessu, að það væri mun sterkara, en þau sem við höfðum áður leikið gegn og þyrfti okkur ekki að koma á óvart, þótt við töpuðum með svona 6:1. Um hádegið stytti upp og þegar leikurinn hófst kl. 4, var komið ágætt leikveður, þurrt en sólarlaust og var völlur- inn hinn prýðilegasti. Eins og kunnugt er, lyktaði leiknum á annan veg en spáð hafði verið, eða sigri okkar 4:2. Leikurinn var frá upphafi rnjög spennandi og hraður og vel leik- inn framan af, en þegar á síðari hálfleik leið, harðnaði leikurinn mjög og var á öllu auðséð, að þar spilaði Kölnarliðið xít síðustu tromp- unum, svo að þeim mætti takast að sigra, en á okkar mönnum var engan bilbug að finna og var hvergi gefið eftir, en leikið af fullum krafti til leiksloka. í hófinu, sem okkur var haldið um kvöldið, rómuðu Þjóðverjar mjög frammistöðu okkar og töldu að Framliðið hefði komið þeim mjög á óvart með getu sinni. Kvöldið var hið ánægjulegasta og þessi dagur sannarlegur sólskinsdagur í minningu okkar Framara, ekki sízt þeirra, sem einnig voru þátttakendur í ferðinni 1951. Næsta dag var haldið snemma morguns frá Köln og komið til Iíamborgar rétt eftir miðjan dag í sólskinsskapi, og bar þar tvennt til, bæði hið góða gengi, sem við höfðum haft í ferðinni og einnig tilhlökkunar yfir því, sem í vændum var: Hamborg beið okkar með all- an sinn glaum og gleði. Föstudaginn 28. ágúst bauð íslandsvina- félagið í Hamborg okkur í hringferð um borg- ina og var það vel þegið. Veður var mjög fagurt, sólskin og hiti. Nutum við dagsins hið bezta og komumst við að raun um, að þótt hin rómaða næturfegurð Hamborgar væri mikil, þá var þessi dagur engu ánægjuminni. Laugardagurinn 29. ágúst rann upp og skyldi þá haldið heim. Dauða sinn fær engin umflúið og svo er um kveðjustundina einnig. Hræddur er ég um að margur hafi kvatt Hamborg að þessu sinni með trega, en strengt þess jafnframt heit að heimsækja hana aftur. Hinn ágæti sendiherra okkar í Þýzkalandi, hr. Vilhjálmur Finsen, hélt okkur ágæta skiln- aðarveizlu í flugvallarhótelinu í Hamborg, um morguninn áður en lagt var upp heim. Kvaddi hann okkur þar með mjög skemmtilegri ræðu. Heim til Reykjavíkur komum við síðan seint um kvöldið. Þátttakendur í þessari eftirminnilegu för voru þessir: Magnús Jónsson, Halldór G. Lúð- víksson, Karl Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Haukur Bjarnason, Birgir Andrésson, Hilmar Ólafsson, Reynir Karls- son, Sæmundur Gíslason, Dagbjartur Gríms- son, Guðmundur Jónsson, Carl Bergmann og Óskar Sigurbergsson. Einnig sýndu eftirtaldir menn, félaginu þann heiður og hjálp, sem var okkur mjög þýðingarmikil og mikils virði, að fara með okkur í þessa för: Bjarni Guðnason úr Víking og Akurnesingarnir Guð- jón Finnbogason, Ríkharður Jónsson og Þórð- ur Þórðarson, og þökkum við það sérstaklega. Fararstjórar voru Gísli Sigurbjörnsson, Ragnar Lárusson og Sigurbergur Elísson. För þessi var öll hin skemmtilegasta og jók mjög á ánægjuna hinn góði knattspyrnu- legi árangur. Aður en ég lýk þessari sundur- lausu frásögn vil ég nota tækifærið og þakka þátttakendum öllum fyrir mjög ánægjulegar samverustundir, og einkum fararstjórunum þremur fyrir mjög röggsamlega og lipra farar- stjórn. Sœmundur Gislason . FRAMBLAÐIÐ 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Framblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framblaðið
https://timarit.is/publication/1467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.