Hvöt - 01.02.1951, Side 13
H V Ö T
11
um, auk þess hefur það notið
stuðnings bindindismamia utan skól-
anna, og þó hefur þetta ekki tekizt. Við
margt er að stríða. Fyrst og fremst
almenningsálitið. Styður almennings-
álitið bindindi? Nei, ekki almennt, en
kannske vill það hafa það innan skól-
anna. Viðhorf æskunnar eru oft spegil-
myndir viðhorfa fullorðna fólksins og
viðhorf þess eru skipt um bindindi,
og meðan svo er getur enginn krafist
þess eða ætlast til þess, að æskan sé
óskipt um þetta mál né önnur. Þá
má einnig ásaka marga skólastjóra og
alh of marga kennara fyrir enga eða
verra en það, neikvæða handleiðslu
æskunnar í bindindismálum.
Hér hefur sagan endurtekið sig.
Áhugamenn um íþróttir, um 1912, gátu
ekki fellt sig við yfirstjórn íþróttamála
(stofnað 1907) vegna hinna fjölþættu
málefna þess, og þar á meðal bindindi,
og stofnuðu því samband, sem vann
að íþróttum eingöngu (1. S. í. 1912).
Til eru ungmennasambönd, sem halda
fast við bindindisheitið (t. d. Ums.
Eyjafjarðar), og á sambandssvæði
þeirra eru ungmennafélög, sem vilja
ekki ganga undir bindindisheitið og
standa því utan samtakanna.
Þó að einstök ungmennasambönd
hafi haldið fast við bindindisheitið,
varð Ungmemiafélag Islands að slaka
á bindindismálunum (1938). Falla frá
bindindisheiti, en lieita því aftur á
móti að vinna að útrýmingu skað-
nautna úr landinu. Svipuð ákvæði
hafði I. S. I. í lögum sínum frá 1943,
en 1948 voru þau felld úr lögum þess.
Eru þetta ekki nóg dæmi um viðhorf
fólksins, meira að segja samtakanna,
sem æskan starfar í, svo að þarf þá
nokkur að furða sig á eða lineykslast
á því, að skólaæskan liafi skiptar skoð-
anir um bindindismál og stofni sam-
tök sín á milli um íþróttir einar?
Ég er sannfærður um, að skólaæskan
hefur stigið rétt spor. Ég þykist sjá
fram á, að störfin verða meiri og
markvissari. Samband bindindisfélaga
í skólum eflir störf íþróttanefndar sinn-
ar, og íþróttabandalagið mun hafa nána
samvinnu við S. B. S. og mun með
íþróttastörfum sínum vinna gegn
„skaðnautnum“.
Hið frjálsa framtak skólanemenda
um íþróttir á mörg verkefni fyrir
höndum, t. d. veit ég, að það á eftir
að koma á frjálsum íþróttaiðkunum
innan skólanna um skólaíþróttamerki,
en í því starfi eiga allir skólanemend-
ur að geta verið virkir, ekki aðeins
fámenn skólalið. Uppistöður þess að
geta áunnið sér rétt til skólaíþrótta-
merkis verða:
Alhliða líkamsfærni (kemur fram í
sundi).
Heilbrigð og styrk innri líffæri
(kemur fram í þolgöngu eða þol-
hlaupi).
Snerpa (stökk, spretthlaup).
Afl (glíma, fimleikar og köst).
Mýkt (fimleikar, stökk).
En um þetta fæ ég vonandi tæki-
færi til þess að ræða nánar síðar.
Ég þakka og met mikils skilning
Sambands bindindisfélaga í skólum á
íþróttum, og ég vona, að íþróttabanda-
laginu takist eigi miður, og að því
megi einnig auðnast að efla skóla-
æskuna til þess að vera viðbúna hin-
um ýmsu viðhorfum lífsins, og þar á
meðal að standast áleitni skaðnautn-
anna.
Q