Hvöt - 01.02.1951, Síða 20
knattmeSferð og meiri lipuití í hreyf-
ingum. Það kom og í ljós, að þetta
var hinn eiginlegi úrslitaleikur kvenna-
flokksins. Ragnhildur, Svana og Marta
voru beztar í liði Kvennaskólans í leik
þessum og Sigrún, Erla og Herborg
í liði Menntaskólans.
3. leikur dagsins var á milli
Gagnfræðaskóla Austurbæjar og Verzl-
unarskólans í II. fl. Verzlunarskólinn
sigraði með miklum yfirburðum 13:3.
Svo sigruðu þeir í III. fl., sem var
næsti leikur við , Gagnfræðask. Vestur-
bæjar, með 9:1.
Úrslit í 2. umferð.
1 kvennaflokknum léku fyrst Kvenna-
skólinn og Gagnfræðask. Vesturbæjar
og lauk þeim leik, 9:0, með yfirburð-
um Kvennaskólans. 2. leikur fór fram
S igurvegarar
í I. fl. 1951.
milli Menntaskólans og Verzlunarsk.
Leikur þessi var mjög jafn og spenn-
andi og lauk með jafntefli 3:3. Fram-
lengt var þá um 3 mín. á hvort mark.
Stúlkumar í Menntaskólanum virtust
ekki ætla að gefa sig fyrr en í fulla
hnefana og tókst þeim að skora 4
mörk en Verzlunarsk. ekkert. Beztar
í liði Menntaskólans voru Erla, Sig-
rún, Valgerður og Herborg, en Verzl-
unarskólans Hafdís, Margrét og Sigrún
Tryggvadóttir.
3. leikur var á milli Menntaskólans
og Verzlunarskólans í II. fl., sem lauk
með sigri þeirra fyrmefndu 7:5. Þessi
leikur var hinn eiginlegi úrslitaleikur,
þar sem Gagnfræðaskóli Austurbæjar
var ekki megnugur að sigra Mennta-
skólann í 3. umferð. Lið Menntaskól-
ans var í heild jafngott.
4. leikur var leikur Háskólans og
Kennaraskólans í I. fl. og lauk með
sigri Háskólans 21:1. Lið Háskólans