Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Qupperneq 2
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Spiderman-mamman
É
g hef margoft staðið mig að því að ætla
mér of mikið. Ég er spiderman-mamma.
Vef þykka sjálfsblekkingarvefi á nanó-
sekúndum. „Jú, jú, ekkert mál. Nei,
ekki kaupa tilbúið, ertu vitlaus maður,
ég baka. Já, nesti í Pintrest-stíl. Ekkert
mál. Viltu regnbogaspjót, elskan – og Hello Kitty sam-
loku? Mamma græjar.“
Í raunheimum er mamma að græja „ekkert-mál-mál-
in“ á næturnar eða eftir fimm tíma svefn. Ofan á það
bóka ég bás í Barnaloppunni, „neyðir mann til að taka
til í skápunum – svooo sniðugt“, og panta djúskúra.
Flesta daga gengur þetta sturlaða líf mitt vel og ég
er merkilega lunkin að festast ekki í eigin reddingar-
vef og boltarnir haldast allir á lofti.
Oftast.
Við og við eru gerð mistök. Allajafna lítil, jafn-
vel svo smá að enginn nema ég tek eftir þeim en ég
er þeim ókosti gædd að geta ekki þagað
yfir eigin óförum. Mér rennur blóðið til
skyldunnar að deila harmleik dagsins
með samferðafólki mínu. Oftast óum-
beðin.
Við heyrum dæmi.
Ég fer í leikfimi í hádeginu einu
sinni í viku og er oftast komin með
fjörfisk og frunsu við það eitt að aka
út af bílastæðinu í hádeginu þar sem
ég yfirgef yfirleitt ekki vinnustað-
inn á vinnutíma. Sem er galið. Ég
er fullviss um það að fólk sem
skýst í leikfimi tvisvar í viku
í hádeginu en sleppir því
að nýta hádegishléið hina
dagana eða vinnur lengur á
móti er mun betri starfs-
menn eftir að hafa rifið
upp endorfínið og hitt
annað fólk.
Að því sögðu mæti
ég í leikfimisgallanum
þennan fasta dag sem ég
stunda líkamsrækt til þess að
spara mér 15 mínútur. Tek til-
fallandi ákúrum fyrir spandex-
klæðnaðinn fagnandi því ég fæ
útrás í hádeginu.
Skransa inn í salinn á síðustu sekúndu, og laumast
út í slökun til þess að komast sem fyrst í sturtu. Helli
svo úr leikfimistöskunni til að drullumalla einhverju í
andlitið á mér áður en ég rýk út.
Nema hvað.
Andskotinn. Helvítis fokking fokk.
Rándýra andlitssápan mín hefur lekið út um alla
töskuna. Nærfötin mín eru löðrandi í sápu og huggu-
legar hvítar skellur í dökkbláum kjólnum. Ég er ekki
með tvo alklæðnaði með mér svo ekki er annað í
stöðunni en að skella sér í sápuklístrað nærfatasettið.
Hver vill ekki koma of seint í vinnuna með sápu í
rassinum og í flekkóttum kjól?
Til að toppa þetta er ég auðvitað á safakúr til að
stríða gegn gegndarlausu áti og rjómablíðu sem
einkennir sóttkví. Glorsoltin, með freyðandi fætur
og eldrauð í framan af áreynslu hádegisins kemst
ég þó aftur í vinnuna í tæka tíð til að átta mig á að
djúskúrinn hefur engan húmor fyrir því að uppteknar
konur gefi sér ekki tíma til klósettferða. Nú hafði ég
um það bil 30 sekúndur til að koma mér upp í lyftunni
og inn á skrifstofu áður en ég myndi pissa á mig með
tilheyrandi freyðibaði. Það hefði ekki verið vandamál
ef ekki væri búið að úthluta mér klósetti merktu A
samkvæmt sóttvarnahólfun fyrirtækisins.
Klósett A var upptekið. B var laust.
Freyðibað eða sóttvarnabrot?
Pinterest var ekki með svar. n
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is
FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Sigurbjörn Richter,sigurbjorn@dv.is PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
MYND/GETTYFjóla Karlsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Vorhúss,
stjórnarkona FKA-Norður-
lands og aðjunkt hjá Háskól-
anum á Akureyri, deilir hér
sínum uppáhaldssundlaugum
á landinu.
1 Sundlaug Akureyrar
Hún hefur einfaldlega allt að
bjóða, frábærar rennibrautir
fyrir börnin, góða heita potta
og kalda karið er einfaldlega
æði.
2 Geosea sjóböðin
Húsavík
Sjóböðin eru engu lík og þar
geturðu líka fengið hvítvín
og bjór fyrir fullorðna út í
pottana og líka krap fyrir
börnin.
3 Gamla sundlaugin
Hveragerði
Hún er einfaldlega sú allra
besta á landinu. Þar er frið-
sælt að vera og mér finnst
alltaf vera sól þar þegar ég
fer í sund.
4 Sundlaugin á Hofsósi
Þessi laug er gimsteinn sem
allt of fáir átta sig á að er
bara korter frá þjóðveg-
inum. Þar rennur sundlaugin
saman við sjóinn og skapar
einstaka upplifun.
5 Sundlaugin á Álftanesi
Ein skemmtilegasta sund-
laugin til að fara í með börn,
en þar eru bæði rennibrautir
og öldulaug sem ungir og
aldnir geta skemmt sér í.
SUNDLAUGARNAR
Vertu snöggur
S varthöfði er vel giftur en það má deila um hversu vel giftur maki Svart-
höfða er. Nýlegt matarboð
þar sem eldri kynslóðinni var
boðið til kvöldverðar reyndist
betri helmingnum erfitt.
Amman og afinn eru hress
og eins og annað fólk af þeirra
kynslóð, stundvís. Það varð
því uppi fótur og fit þegar
Svarthöfðahjónin áttuðu sig á
því að talsvert vantaði upp á
hráefnastöðu eldhússins. Vín-
búðin og kjörbúð var stimplað
á verkefnalista Svarthöfða og
honum réttir bíllyklar. „Vertu
snöggur.“
Svarthöfði bregst almennt
illa við hótunum – nema frá
sama heimilisfangi og hann
leggur þungt og þjakað höfuð
sitt til hvílu á að kvöldi.
Svarthöfði er skipulagður
maður og sá strax tímasparn-
að í því að leggja bílnum mitt
á milli Ríkisins og Bónuss í
Skeifunni. Þannig yrði stutt
labb á milli og enginn akstur
á milli staða.
Á leiðinni niður í Skeifu
ákvað Svarthöfði þó að hann
væri svangur, og einn snöggur
buffalo-borgari á KFC gæti nú
ekki komið að sök sem for-
réttur enda er Svarthöfði sinn
eiginn herra. Fór hann því í
bílalúgu í Skeifunni. Kveðju-
orð betri helmingsins ómuðu
í höfði Svarthöfða við þessa
ákvörðun, „vertu snöggur“.
Bílalúga KFC er guðsgjöf
og kemur sér oft vel. Þetta
var ekki eitt þeirra skipta.
Við Svarthöfða blasti löng
bílaröð, að minnsta kosti 12
bílar. Það var of seint. Svart-
höfði var fastur í röðinni.
„Vertu snöggur,“ ómaði aftur,
í þetta sinn með hvössum tón.
Að KFC-ferð lokinni hófst
hann handa við verkefna-
listann. Fyrst áfallalaus ferð
í Ríkið, svo þaulskipulagður
göngutúr yfir þéttsetnar
götur Skeifunnar. Svarthöfði
var saddur og geðvondur sem
hræddi marga frá og flýtti för.
Rafrænn innkaupalisti frú
Svarthöfða kom hér að góðum
notum. „Paprika, sveppir,
rjómaostur, gos, sulta, parma-
skinkan góða sem fæst bara í
Krónunni.“ Varð Svarthöfða
þá litið niður á handfang inn-
kaupakerrunnar þar sem við
blasti ófögur sjón. „Bónus.“
Ósamþykkt aðalskipulag
innkaupaleiðangurs Svart-
höfða var hér farið að molna í
sundur. Úrskurðarnefnd raun-
veruleikans hafði með harðri
hendi fellt það úr gildi. Sam-
kvæmt Instagram Story ömm-
unnar og þó nokkuð mörgum
skilaboðum frú Svarthöfða
voru gestirnir mættir, barnið
svangt, ofnar heitir og búið að
leggja á borð. „Hvar ertu?“
Þegar að heimahöfn var loks
lagst blasti við reiður gest-
gjafi og reiðara barn. Það
vantaði pitsusósu líka. Svart-
höfði skaust í Nettó og til
baka. „Hvað tók svona langan
tíma?“ Ákveðið var að hlífa frú
Svarthöfða við KFC-ferðinni
að sinni. Svarthöfði borðaði
kvöldmat klukkan hálf átta
þetta kvöld, sem er jafnframt
háttatími barnsins. Þegar
skaphiti heimilisfólks náði
stofuhita að nýju var afráðið
að fóðra Svarthöfða með ís úr
hverfisísbúðinni.
Frúin snéri til baka með lítra
af ís, súkkulaðisósu og klístrað
hamborgarabréf merkt ofurst-
anum auk kvittunar frá KFC,
tímasettrar 18.15 þann sama
dag. n
2 EYJAN 25. SEPTEMBER 2020 DV