Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Page 4
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Dómsmálaráðherra í ströngu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur staðið í ströngu vegna
afstöðu sinnar í málefnum flóttamannafjölskyldu frá Egypta-
landi sem á að vísa úr landi. Áslaug hefur útilokað að hnika
til reglum til að gera fjölskyldunni kleift að setjast að á Ís-
landi. Hefur Áslaug vegna þessa mátt sæta hótunum og út-
hrópun á samfélagsmiðlum. Á miðvikudag fóru einhverjir að
heimili hennar og festu á útidyrahurð myndir af börnum sem
send hafa verið af landi brott.
Forsendur brostnar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir efnahagslegar
forsendur Lífskjarasamningsins brostnar og kanna þurfi
hvort ástæða sé til að fresta launahækkunum. En samkvæmt
samningnum eiga launataxtar næst að hækka um áramótin.
Undir þetta taka framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
og seðlabankastjóri. Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson,
segir að frestun hækkana verði ekki liðin og muni verkalýður-
inn berjast með kjafti og klóm gegn því.
Ólga hjá Siðmennt
Jóhanni Björnssyni var óvænt sagt upp störfum hjá lífsskoð-
unarfélaginu Siðmennt, en hann hefur starfað innan félagsins
í 24 ár, þá einkum að fermingarfræðslu. Meðal útskýringa
sem hann fékk fyrir uppsögninni var að hann væri erfiður í
samskiptum ásamt fleiri ávirðingum sem Jóhann segir enga
stoð eiga sér í raunveruleikanum. Formaður félagsins segir
leitt að Jóhann sé sár, en að hann henti ekki framtíðarsýn
félagsins og því hafi verið ákveðið að endurnýja ekki verk-
takasamning hans.
Lækka launin og vinna saman
Meiri- og minnihluti bæjarstjórnar Akureyrar ákvað í vik-
unni að vinna saman sem heild. Ástæðan er erfið fjárhags-
staða bæjarins vegna kórónaveirufaraldursins. Ein af fyrstu
ákvörðunum nýrrar sameiginlegrar stjórnar var að lækka
eigin laun sem lið í hagræðingaraðgerðum. Að öllu óbreyttu
stefnir í 3,5 milljarða halla á bæjarfélaginu á þessu ári.
Ekki í sýnatöku úr sóttkví
Víðir Reynisson biðlaði í vikunni til einstaklinga í sóttkví að
sækjast ekki eftir því að komast í sýnatöku í miðri sóttkví.
Sýnataka eigi aðeins að fara fram á síðasta degi sóttkvíar.
Rúnar til Arsenal
Rúnar Alex Rúnarsson er kominn til Arsenal. Gengið var frá
kaupunum á mánudaginn og Rúnar var mættur til æfinga hjá
nýja liðinu sínu á þriðjudag. Enskir fjölmiðlar hafa gífurlegan
áhuga á nýja leikmanninum og hafa lagt mikið á sig til að
grafa upp allt sem finna má um Rúnar. Meðal annars tókst
enskum miðlum að komast að því að hann hefði þurft að fara
í bráðabotnlangaaðgerð, hverjir foreldrar hans eru, hver unn-
usta hans er og þar fram eftir götum.
1 Fiskikóngurinn ósáttur við framkomu starfsmanna sinna:
„Látum sumt starfsfólk traðka á
okkur“ Kristján Berg varð ósáttur
þegar tveir starfsmenn stungu af úr
starfi án þess að virða uppsagnar-
frest.
2 Breka ofbauð þegar hann fór með dóttur sína á Akranes í
gær: „Er til háborinnar skammar“
Breka Logasyni, fyrrverandi frétta-
manni, var misboðið vegna dóna-
skapar þjálfara ÍA í efstu deild karla
sem og aðdáenda.
3 Jón Ívar kærir Jón Magnús til Siðanefndar lækna Prófessor
við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum
hefur kært sérnámslækninn Jón
Magnús Jóhannesson til siða-
nefndar lækna vegna ummæla hans
á Facebook.
4 Nokkrum mínútum eftir að þær birtu myndina voru þær dánar
Brasilískar vinkonur tóku mynd af
sér við hættulegan foss og birtu á
Instagram. Rétt eftir að myndin birtist
á samfélagsmiðlum hröpuðu þær
báðar til bana.
5 Bryndís Schram ósátt með „klámbrellu“ RÚV – „Kven-
fjandsamleg – hreinn viðbjóður.
Svívirðileg árás“ Bryndís Schram er
ósátt við gamalt Áramótaskaup þar
sem gert var grín að tíma hennar sem
þáttastjórnanda Stundarinnar okkar.
6 Eyðilagði þrjá vörubíla og traktor fyrir tugi milljóna við
Elliðaárdalinn – Sagðist vera starfs-
maður hjá öðru iðnaðarfyrirtæki
Óprúttinn aðili vann mikil eignaspjöll
hjá gömlu hesthúsunum á Sprengi-
sandi snemma á þriðjudag.
7 Vikan á Instagram: „Nektar-dansmær í sólinni“ Vikan á
Instagram er fastur liður á mánu-
dagsmorgnum á dv.is og nýtur jafnan
mikilla vinsælda.
8 Alma Geirdal er látin – „Hryggir okkur meira en orð fá lýst“
Alma Geirdal, ljósmyndari og uppi-
standari, lést á laugardag eftir langa
og harða baráttu við krabbamein.
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í gó um
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögu halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mál
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú ko a
skjal málun m
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
R cords
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
4 FRÉTTIR 25. SEPTEMBER 2020 DV