Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Qupperneq 11
Önnu Töru og Högna en ekki
gera þau að sjúklingum. Þetta
er sjálfstætt listaverk en ekki
fræðslumynd. Að skapa lista-
verk út frá lífi annarra er
ábyrgðarhlutverk og ég vona
að okkur hafi tekist að gera
það vel.“
Merkt sem sjúklingar
Andri Snær bendir á að fæsta
þeirra sem hann þekkir og
eru með skilgreindan geð-
sjúkdóm myndi hann kalla
veikt fólk. „Það getur orðið
veikt og hefur orðið veikt og
tekur kannski lyf til að halda
sjúkdómnum niðri en almennt
hefur það kannski bara verið
veikt lítinn hluta af lífinu. Það
er erfitt fyrir fólk að vera skil-
greint og fá á sig þann merki-
miða að það sé sjúklingur. Sú
staðreynd að hafa farið inn á
geðdeild er nánast nóg álag
til að senda flesta á geðdeild.
Skömmin og vanlíðanin getur
komið í veg fyrir að fólk leiti
sér aðstoðar. Það væri óhugs-
andi að við myndum skamm-
ast okkar svo mikið fyrir að
fótbrotna að við myndum
liggja heima þar til það kæmi
ígerð í fótinn, því það væri svo
mikil skömm að hafa farið á
slysó. Skömm sem veldur van-
líðan sem veldur enn meiri
vanlíðan er hættulegur spí-
rall. Myndin er hluti af því að
manneskjuvæða geðsjúkdóma
og uppræta þennan spíral.“
Hefur þú sjálfur upplifað
þessar tilfinningar sem lýst
er í myndinni?
„Nei, ekki formlega. Allir
fara í gegn um alls konar
tímabil. Almennt hef ég verið
með mikið jafnaðargeð en
gæti verið með ógreindan
athyglisbrest. Ég var í mik-
illi vinnutörn og stuði fyrir
nokkrum árum og tók geð-
heilsupróf á netinu. Þar var
spurt hvort ég talaði meira
en venjulega, væri með stórar
hugmyndir, hugsaði meira
um kynlíf, hvort lífið væri
frábært, hvort ég vildi bjarga
heiminum og öll svörin mín
voru jákvæð. Þá fékk ég við-
vörunarorð á skjáinn um að
þetta gætu verið merki um
maníu. Ég vissi að ég væri
réttum megin við línuna, að ég
væri einmitt þá í tímabundnu
stuði. Við erum öll alls konar
og eigum alls konar tímabil en
þegar menn fara yfir línuna
er mikilvægt að leita sér að-
stoðar.
Sjálfsvíg víða
Ef ég hefði verið spurður
hvort það væru geðsjúkdóm-
ar í mínu nærumhvefi hefði
fyrsta svar verið neitandi.
Ég sýndi frændfólki mínu í
Ameríku myndina og þá hófst
FRÉTTIR 11DV 25. SEPTEMBER 2020
Ég hef alltaf verið forvitinn
um þennan geðheim og þessi
efnahvörf sem leiða fólk
ofan í myrkrið en líka upp í
himinhvolfin.