Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Page 13
mig með öllum þessum flug-
ferðum. COVID-ástandið er
lítið dæmi miðað við þær lofts-
lagsbreytingar sem ég fjalla
um í Tímanum og vatninu.
Þó að okkur hafi fundist sem
það hafi verið slökkt á heim-
inum og slökkt á flugumferð
þá fórum við aðeins niður um
20 prósent í losun gróðurhúsa-
lofttegunda. Heimurinn var
sannarlega truflaður rækilega
og okkur gefst tækifæri til að
endurhugsa allt. Á næstu 20-
30 árum þurfum við að ná svo
róttækum framförum í sam-
bandi við hvernig við högum
okkur gagnvart jörðinni.
Ímyndum okkur að hér væru
tvær veirur í gangi samtímis,
önnur þeirra drepur 1 pró-
sent þeirra sem fá hana, hin
bræðir alla jökla heimsins,
hækkar yfirborð hafsins, hita-
stig jarðar með tilheyrandi
skógareldum og gæti hrakið
10 prósent jarðarbúa á flótta
og drepur dýr í svo miklum
mæli að það er kallað sjötta
útrýmingin. Hvor veiran væri
talin skæðari?
Dauðlegir menn
orðnir þrumuguðir
Við lifum sérstaka tíma. Leið-
togar heimsins hafa aldr-
ei áður hist til að ræða um
veðrið og áhrif sín á veðurfar
jarðar. Napóleón gerði það
ekki, Sesar gerði það ekki og
Genghis Khan gerði það ekki.
Nú höfum við fengið það vís-
indalega staðfest að við erum
að breyta veðrinu og getum
tekið ákvarðanir um veður
framtíðarinnar. Allt í einu
eru dauðlegir menn orðnir
þrumuguðir án þess að átta
sig á því sjálfir. Hér hafa orðið
kaflaskil í mannkynssögunni
þegar menn hittast í fyrsta
skipti til að tala um áhrif sín
á veðrið en við virðumst ekki
átta okkur á því. Okkur finnst
„lofts lagsráðstefna“ vera frek-
ar óspennandi fyrirbæri. Við
virðumst ekki skilja þetta.
Á næstu árum þurfa að
verða róttækar framfarir á
öllum sviðum sem hafa áhrif
á hvað við borðum, hvert
við ferðumst, hvaðan orkan
kemur, hvernig við ferðumst,
hvernig við framleiðum hluti
og hvernig við hendum rusli,
eða öllu heldur, hvernig rusl
verður ekki lengur til. Það
voru færðar fórnir fyrir kór-
ónaveiruna og það er hægt að
mæta loftslagsvandanum með
minni fórnum. Það má fara í
bíó, faðma ömmu sína og fara
á tónleika en margt annað sem
þarf að breytast eða endur-
hanna. Næstu ár ráða úrslitun-
um um framtíð jarðarinnar.“
Fannst þau hafa
stolið LoveStar
Andri Snær og verk hans hafa
orðið mörgum innblástur. Árið
2002 kom út bókin LoveStar.
Þetta var fyrsta skáldsaga
hans fyrir fullorðna en Andri
hafði þá sent frá sér tvær
ljóðabækur og barnabókina
Sagan af bláa hnettinum. Í
bókinni er nokkuð raunsæ
lýsing á samfélagsmiðlum
og áhrifavöldum nútímans,
og árið 2016 kom út þáttur
í dystópísku seríunni Black
Mirror sem var nánast eins
og unninn upp úr LoveStar.
„Mér fannst eiginlega eins og
þau hefðu stolið LoveStar. Það
var pirrandi að vera fastur
með LoveStar á íslensku árið
2002. Tíu árum eftir að Love-
Star kom út las ég í Wired
magazine um hugmyndir sem
ég hafði skrifað um og áttu að
vera framúrstefna þá. Bókin
kom síðan ekki út á ensku fyrr
en 2012, en Black Mirror gæti
vel hafa stolið úr henni, einn
þátturinn var meira að segja
myndaður í Toppstöðinni,
skrifstofunni minni. En nú er
ég kannski farinn að nálgast
oflætið og paranojuna. Í Love-
Star er fjallað um hvernig
allt er kapítalíserað, fyrst er
það yfirborð alls sem er nýtt
í auglýsingar en síðan færist
það yfir í samskipti. Þá er
búið að breyta samskiptum í
kapítal, áhrif og læk, og hægt
að innleysa vinsældir á sam-
félagsmiðlum með vörum og
þjónustu sem áhrifavaldur.“
Þrátt fyrir að leggja alla
þessa hugsun í skaðleg áhrif
samfélagsmiðla játar Andri
Snær að vera bara mann-
legur, hann sé sjálfur virkur
þátttakandi, eða öllu heldur,
jafn varnarlaus og aðrir
gagnvart þessum tækjum.
„Ég er orðinn paródía af
þessum rithöfundi sem skrif-
aði LoveStar. Ég er á öllum
samfélagsmiðlum að aug-
lýsa sjálfan mig og reyna að
fá fólk til að kaupa það sem
ég er að búa til. Og auðvitað
er það þversögn, sá sem er í
símanum og sér bókarkápuna
er ekki að lesa bók og getur
það hugsanlega ekki lengur.
En ef ég fæ læk er ég sáttur.
Snilldar hönnun hjá þeim í
Silíkondalnum.“
Ávanabindandi
samfélagsmiðlar
Hann er vel meðvitaður um
að samfélagsmiðlar eru bein-
línis hannaðir til að fá fólk
til að nota þá sem mest. Þeir
eru ánetjandi. „Þetta er þaul-
hugsað hjá þeim. Ég er svo
heppinn að ráða vel við áfengi
og drekk nánast ekkert, ég á
enn jólabjórinn um páskana og
páskabjórinn um jólin. Ég get
hins vegar ekki átt súkkulaði
og ég get ekki haft internet.
Þegar ég skrifaði LoveStar
gat ég skrifað á tölvu sem var
ekki nettengd. Ég fann hvað
netið truflaði mig mikið og
hvað tíminn hvarf.
Samfélagsmiðlar eru að þróa
stafrænt heróín. Það er verið
að prófa okkur á hverri mínútu
og reynt að láta okkur hanga
sem lengst á þessum miðlum.
Þeir eru að verða betri og betri
í því, við eigum ekki séns. Ég
hef lesið viðtöl við menn sem
hafa ánetj ast spilakössum og
þeir lýsa því hvernig tíminn
hvarf. Ég skildi aldrei hvern-
ig einhver gat setið í sjoppu í
sex klukkutíma í spilakassa.
Spilakassarnir eru hannaðir
þannig að fólk ánetjast þeim,
öllum þessum hljóðum og
ljósum, og það nánast truflar
flæðið að fá vinning. Ég hef
upplifað að opna kisumynd-
band klukkan átta og síðan er
klukkan allt í einu orðin hálf
eitt, þetta er sama hönnun. Það
hlýtur að koma að því að þeir
verði neyddir til að setja upp
truflanir, eitthvað sem rýfur
dáleiðsluna, eins og viðvar-
anir utan á tóbakspökkum, þá
kemur skilti: Þú ert búinn að
skrolla í klukkustund. Er það
meðvitað?“
Spurður um af hvaða verkum
hann sé stoltastur segist Andri
almennt vera ánægðastur og
spenntastur fyrir nýjasta verk-
inu hverju sinni.
„Ég hef alltaf verið stoltur af
góðu dagsverki. Þegar ég var
að helluleggja með skóla var
ég stoltur af mörgum hellu-
lögnum sem ég gerði. Ég get
sýnt þér eina í Smárahverfinu
á Google Earth. Ég held að það
sé eðlilegt að vera stoltur af
sínum verkum ef maður hefur
lagt sig fram og vandað sig
eins og maður gat. Yfirleitt er
ég stoltastur af nýjasta verk-
inu mínu, ekki síst þegar mér
tekst að gera eitthvað sem er
mjög ólíkt því sem ég gerði
síðast. Mér þykir vænt um að
Blái hnötturinn er enn að koma
út um allan heim. Ég er ánægð-
ur með að Tíminn og vatnið
varð á endanum eins og ég
vildi. Það var erfitt að skrifa
hana, líkamlega og andlega.
Ég hef síðustu mánuði fengið
viðbrögð við henni á ólíkum
tungumálum og mér finnst
það mikils virði, að skrifa eitt-
hvað á íslensku sem fær svipuð
viðbrögð í Póllandi og ég fékk
hér heima. Nú er ég spenntur
að sjá hvernig þessari mynd
verður tekið, en þetta er mjög
ólíkt öllu sem ég hef gert áður.
Mér finnst gaman að endur-
uppgötva mig og gera eitthvað
öðruvísi en síðast. Ég hef þörf
fyrir að sanna mig á nýjum
sviðum, gera eitthvað sem ég
veit ekki hvort ég kann.“ n
Andri Snær bendir á að miklar fórnir hafi verið færðar til að berjast við kórónaveiruna en mun minni
fórnir þurfi til að berjast gegn loftslagsvandanum. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Ég er svo heppinn að ráða
vel við áfengi og drekk nán-
ast ekkert. Ég get hins vegar
ekki átt súkkulaði og ég get
ekki haft internet.
FRÉTTIR 13DV 25. SEPTEMBER 2020