Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Page 18
Gekk um götur
New York með
gervirass
Hin hálfíslenska Melkorka Licea er blaðamaður
hjá New York Post. Hún fær alls konar hugmyndir
sem hún prófar á strætum stórborgarinnar og
skrifar um reynslu sína. Allt frá gervirössum og
sverðgleypingum upp í sóttvarnavæn pils.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
M elkorka er fædd á Íslandi en flutti til Bandaríkjanna þegar
hún var tveggja ára. Hún er
dugleg að heimsækja Ísland
og varði sumrunum hérlendis
sem barn. Melkorka lærði
fjölmiðlafræði í Evergreen
State College í Washington
og ákvað í kjölfarið að flytja
til New York og láta drauma
sína um að verða blaðamaður
í stórborginni rætast.
„Flestir sem flytja til New
York fá að sjálfsögðu ekki
draumastarfið sitt um leið. Ég
fékk vinnu á veitingastaðnum
Pianos með hjálp Hrannar
frænku minnar,“ segir Mel-
korka og vísar hér í móður-
systur sína, Hrönn Sveins-
dóttur framkvæmdastjóra Bíó
Paradísar.
„Eftir vinnu eitt kvöldið
var ég á öðrum bar ásamt
samstarfskonum mínum og
nokkrum viðskiptavinum,
og einn þeirra hafði unnið
um tíma hjá New York Post.
Hann sagðist geta komið
ferilskránni minni á borðið
hjá þeim. Nokkrum mán-
uðum seinna var ég komin í
láglaunastarf þar sem „copy
kid“ – sem er eins konar lær-
lingsstaða fyrir nýútskrifaða
háskólakrakka sem sjá um að
koma útprenti af síðunum í
blað morgundagsins til sam-
þykktar til ritstjóranna.“
Lélegt þjórfé í blindbyl
Melkorka hefur mætt fjölda
ólíkra verkefna í starfi sínu.
Sumum erfiðari en öðrum.
Hún rifjar upp kröfuharðasta
verkefnið hingað til. „Vetur-
inn 2016 var ég nýbyrjuð að
vinna sem viðskiptablaða-
maður fyrir The Post. Það
var búið að spá snjóbyl í
New York um kvöldið. Yfir-
menn mínir fengu þessa frá-
bæru hugmynd, að sjá hvort
ég gæti verið í samfloti með
heimsendingarþjónustu og
séð hvernig það væri að af-
henda mat í hríðarbyl á Man-
hattan. Ég fann einhvern
veginn fyrirtæki sem var til-
búið að leyfa mér að vinna hjá
þeim þetta kvöld og ég fór um
alla borgina á hjóli með bak-
poka fullan af mat. Ég endaði
með að fá virkilega lélegt
þjórfé frá bankamanni hjá JP
Morgan og það gerði söguna
mun betri. Þetta var klárlega
líkamlega erfiðasta verkefnið
mitt, en vel þess virði.“
Gervirassinn gerði vel
Melkorka hefur einnig fengið
alls konar skemmtilegar hug-
myndir og sannreynt þær á
sjálfri sér. Svo sem að klæðast
gervirassi sem hannaður er
eftir bakhluta raunveruleika-
stjörnunnar Kim Kardashian.
Melkorka skrifaði grein um
reynslu sína sem byggði á því
að hún fór í hárgreiðslu og
förðun að hætti Kim, klædd-
ist svipuðum kjól og Kardas-
hian hefur klæðst og klæddi
sig í gúmmístuttbuxur sem
stækkuðu bakhluta hennar
upp í sömu stærð og lögun og
raunveruleikadrottningarinn-
ar. Viðbrögðin létu ekki á sér
standa.
Karlmenn hreinlega göptu
á eftir Melkorku og nokkrir
þeirra reyndu að tala við
hana á bar eða gáfu henni hýrt
auga. Hún segir gúmmíaftur-
endann hafa litið nokkuð eðli-
lega út undir fatnaði en það
hafi verið verulega óþægilegt
að klæðast honum.
Kim Kardashian
of New York
Melkorka lýsir í greininni að-
stæðum og samskiptum við
mennina á barnum. Ungur
maður gaf sig fyrst á tal við
hana fullur sjálfstrausts og
sagði hana vel geta verið „the
Kim Kardashian of New York“.
Hann sagðist ekki hafa hald-
ið að bakhluti Melkorku væri
fullkomlega náttúrulegur
en tekur þó fram að það hafi
ekki gert afraksturinn minna
spennandi. „Ég sá hann og
hugsaði samt: Vá, þetta lítur
vel út,“ hefur Melkorka eftir
unga manninum í skrifum
sínum.
Miðaldra aðdáendurnir voru
ekki eins glöggir. „Þeir héldu
að hann væri alvöru,“ sagði
starfsmaður barsins mér
sem fylgdist með. Ég hugs-
aði „jeez“ það hlýtur að vera
gaman að vera alltaf svona
sjóðheit.“
Melkorka lýsir í greininni
hvernig barist var um at-
hygli hennar en lokaniður-
staðan sé þó alltaf sú að hún
hafi þurft að kveðja mennina,
fara heim og reyna að komast
úr níðþröngum, óþægilegum
gúmmígallanum, sem þykir
líklegt til að stúta stemming-
unni sé farið heim með manni.
Þar að auki hafi hún virkilega
meitt sig við að koma sér í og
úr ferlíkinu.
Þetta er þó ekki flippaðasta
hugmynd blaðakonunnar
skemmtilegu. Í miðjum CO-
VID-19 faraldrinum ákvað
Melkorka að sérpanta sér
pils sem tryggði fjarlægðar-
takmörk og reyna fyrir sér í
miðborginni með misjöfnum
hætti. Hún hefur einnig reynt
fyrir sér sem eld- og sverð-
gleypir þegar hún gekk til
liðs við Coney Island Sideshow
School vegna greinaskrifa.
Fann nýjar upp-
l ýsingar í morðmáli
Þrátt fyrir alls konar hressi-
lega reynslu sem blaðakona
í hinum ýmsu verkefnum
segir Melkorka að henni þyki
vænst um þær greinar þar
sem fólk treystir henni fyrir
viðkvæmri og erfiðri reynslu
úr lífi sínu eða þegar mögu-
leiki er á að varpa nýju ljósi á
þung mál.
„Ein af sögunum sem ég
hef skrifað og snerti mig hvað
mest var um ungan mann sem
var sakaður um að hafa myrt
samkynhneigðan bekkjar-
félaga sinn af gyðingaættum.
Ég rannsakaði málið og upp-
götvaði tengsl gerandans við
nýnasistagrúppur og tilhneig-
ingu hans til þess að skrifa og
birta hatursorðræðu tengda
því. Hann var seinna kærður
fyrir hatursglæpi og morð.“
Melkorka segir viðtöl sem
hún hefur tekið við foreldra
sem hafa misst börn og fundið
lífsviljann á ný hafa snert sig
djúpt. „Ég tók viðtal við tvær
mæður sem höfðu misst börn.
Önnur missti son sinn þegar
faðir hans stökk fram af hús-
þaki með hann og hin hafði
reynt að bjarga börnum sínum
úr brennandi húsi og brennst
sjálf illa. Ég var djúpt snortin
að þær skyldu treysta mér til
að tjá sig í fyrsta skipti opin-
berlega um harmleikina sem
þær upplifðu og hvernig þær
fundu viljastyrk til þess að
halda lífinu áfram og sjá til-
gang í lífinu á ný.“
Umhyggja rótgróin í
íslenskri menningu
Melkorka fékk sinn fyrsta
nasaþef af fjölmiðlum hjá
Reykjavík Grapevine. Hún
vann þar sem nemi í tvö
sumur á meðan hún var í há-
skóla. „Þetta var mín fyrsta
reynsla af „fréttastofu“. Ég
set þetta í gæsalappir því þó
svo að skrifstofan þeirra hafi
verið notaleg þá var þetta ekki
beint fréttastofa í hefðbundn-
um skilningi. Til að vera
hreinskilin þá held ég að ís-
lenskir fjölmiðlar séu almennt
mannúðlegri. Það er rótgróið í
menningu okkar að hugsa um
hvert annað vegna íslenskrar
nálægðar og stjórnmála, en
það er ekki sömu sögu að
segja um Bandaríkin.“
Aðspurð hvaða greinar fá
mesta athygli hjá New York
Post svarar Melkorka: „Allt
með bitastæðum vinkli – ef
það er bitastætt, þá fylgja
smellirnir.“
Hún hefur margsinnis lent
í vandræðum vegna greina-
skrifa sinna. „Of oft til þess
að geta talið. Ég var einu
sinni kærð vegna greinar
sem ég skrifaði því ég notaði
orðið „Grinch“ til að lýsa ein-
hverjum á kaldhæðinn hátt.“
Grinch er tilvísun í einhvern
sem er geðvondur og hefur
ekki áhuga á að samgleðjast.
Melkorka segir að málið hafi
verið fellt niður sér til mik-
illar gleði.
New York á tímum COVID
Melkorka heillast af stór-
Pilsið sem
Melkorka sér-
pantaði til að
vera smart en
halda kurteis-
legri fjarlægð
snarvirkaði en
var ekki þægi-
legt í neðan-
jarðarlestinni.
MYND/N.Y. POST
18 FÓKUS 25. SEPTEMBER 2020 DV