Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Side 19
FÓKUS 19DV 25. SEPTEMBER 2020
nætur gaman í faraldrinum.
Mikið af skemmtilegum nýj-
um vandamálum að díla við.“
Stefnumótalífið á Íslandi
hefur sína kosti fram yfir
stefnumótalífið í New York að
mati Melkorku. „Það litla sem
ég hef deitað á Íslandi var
mjög skemmtilegt. Ég er hrif-
in af því að konur, sem skil-
greina sig sem konur, eigi það
til að vera meira við stjórnina
og taka fyrsta skrefið og eiga
frumkvæðið, sem er minn
stíll. En það er erfitt að deita í
New York. Það er mikið af fá-
vitum, margir munu koma illa
fram við þig og síðan hætta að
tala við þig án nokkurra skýr-
inga og margir munu yfirfæra
skrýtnu vandamálin sín yfir
á þig.“
Íhugaði að flytja
til Íslands
Áður en kórónaveirufar-
aldurinn hófst var venju-
legt kvöld í stórborgarlífi
Melkorku nokkuð rólegt.
„Ég fór á æfingu eftir
vinnu, eldaði kvöldmat,
horfði á sjónvarpið eða
vann jafnvel í grein. Um
helgar fór ég venjulega út
að borða eða í bíó með kær-
astanum mínum og hitti síðan
vini mína á nálægum bar og
stundum var kíkt eitthvað
lengra,“ segir hún.
Melkorka viðurkennir að
hún hafi hugsað um að flytja
til Íslands á tímum COVID.
„Eins mikið og ég elska það,
þá heillast ég af stórum borg-
um og vil búa mér heimili í
stórborg.“ n
borgarlífinu og dáist að þraut-
seigju New York-búa á tímum
COVID. „Þetta er þrautseig-
asta fólk á plánetunni og
ég myndi segja að það sé að
standa sig prýðilega í að díla
við einangrunina, miðað við
allt. Það notar grímurnar sín-
ar, hjálpar hvert öðru og lætur
hlutina ganga upp. Samt sem
áður eru allir mjög tilbúnir
í að þessu ljúki. Við þurfum
bjór-búllurnar okkar aftur.“
Aðspurð hvernig stefnu-
mótalífið sé í New York á
tímum COVID segist hún ekki
hafa sjálf reynslu af því þar
sem hún sé í sambandi. „En ég
hef heyrt frá öðrum að þetta
sé frekar áhugaverð upplifun.
Í fyrsta lagi, ef einhver notar
ekki grímu á fyrsta stefnu-
mótinu þá veistu sjálfkrafa að
manneskjan sökkar og stefnu-
mótið er búið áður en það
byrjar. Það er líka mikið
af fyndnum aðstæðum
sem geta komið upp.“
Hún nefnir dæmi. „Takið
þið grímuna niður þegar
þið hittist fyrst til að sjá
andlit hvort annars? Og
svo er það vandamál ef
þú ert með meðleigjanda
sem er á móti því að þú
komir heim með einnar
Blaðakonan
hugaða lætur
gúmmíbossa
ekki setja sig
út af laginu.
MYNDIR/
N.Y. POST