Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Síða 20
20 FÓKUS
SPENNUSÖGUR
25. SEPTEMBER 2020 DV
MYND/GETTY
BESTU SPENNUSÖGURNAR
Haustlægðir bjóða upp á fátt skemmtilegra en
að sitja inni í hlýjunni og lesa góða bók. Í síð-
asta blaði fórum við yfir almennar skáldsögur
og barna/ungmennabækur en nú er komið að
uppáhalds spennusögum valinkunnra álitsgjafa.
ÆSA GUÐRÚN BJARNADÓTTIR, RITSTJÓRI
Nýr Arnaldur er jólakonfektið mitt eins og margra en spennusögur Lilju
Sigurðardóttur hafa komið mér þægilega á óvart síðustu ár. Þríleikur
hennar: Gildran, Netið og Búrið er til dæmis ansi góður – hörkuspennandi
og sannfærandi atburðarás og plott en glæpirnir þó ekki eins blóðugir og
ljótir og oft er. Á tímabili var eins og flestir glæpasagnahöfundar þyrftu að
toppa síðasta viðbjóð, ég fékk leið á því.
HEIÐAR INGI SVANSSON, BÓKAÚTGEFANDI
Ég hef í mörg ár haldið í þá hefð að að hefja lestur á nýrri
bók eftir Arnald Indriðason á aðfangadagskvöldi ár hvert.
Sem höfundur er Arnaldur því í miklu uppáhaldi hjá mér og
ómissandi hluti af jólahefðum mínum. Af mörgum bóka hans
sem eru í uppáhaldi hjá mér þá stendur nú Grafarþögn upp
úr sem mér finnst vera hans besta bók. Þar tekst honum
einstaklega vel upp í því skandinavíska samfélagsraunsæi
og boðskap sem hann svo oft miðlar til lesenda sinna. Einnig
er hún mjög vel skrifuð þar sem hann tengir listavel saman
þau tvö tímabil sem bókin segir frá og heldur manni auk
þess í spennu allt fram á síðustu blaðsíðu.
GUNNAR HERSVEINN, RITHÖFUNDUR OG HEIMSPEKINGUR
Höfundurinn George Orwell er uppáhalds hjá mér en hann skrifaði 1984
sem er flokkuð sem hrollvekjandi framtíðarsaga. Ég tók hana óvart á bóka-
safninu 1978 án þess að vita hvað þetta var þekkt bók. Svo fór ég bara heim
að lesa og fannst hún svo spennandi og ógnvekjandi að ég hætti ekki fyrr
en henni var lokið. Seinna heillaðist ég af öðrum skrifum þessa snjalla
höfundar og vil endilega benda á bækurnar Stjórnmál og bókmenntir, Í
reiðuleysi í París og London og Dýrabær sem Hið íslenska bókafélag hefur
gefið út í Lærdómsritaröðinni.
HILDUR ÝR ÍSBERG,
ÍSLENSKU- OG BÓKMENNTAFRÆÐINGUR
Ég les ekki mikið af spennusögum, en ég les allar
barna- og ungmennabækur sem koma út, þar sem ég
er oftast í einhverjum svoleiðis dómnefndum og verð
að nefna bækur Hildar Knútsdóttur. Alveg hörkuspenn-
andi og hún heldur spennunni fram á síðustu blaðsíðu.
SVERRIR NORLAND, RITHÖFUNDUR
Hér get ég eiginlega ekki
valið neina eina bók en
langar að nefna ef tir-
lætis-spennusagnahöf-
undinn minn: Patriciu
Highsmith. Það er munur
á því sem á ensku kall-
ast annars vegar thriller
og hins vegar suspense
story og verk Higsmith
falla í seinni flokkinn; það
svífur ævinlega einhver
ógn yfir vötnum, hætta á
ofbeldi, án þess að neinn
sé endilega myrtur eða limlestur. Sem sagt, þetta eru
sálfræðitryllar frekar en hasarsögur. Þekktustu bækur
Highsmith eru sjálfsagt fimm bóka bálkurinn um Tom
Ripley (The Talented Mr. Ripley nefnist fyrsta bókin)
en flestar hinna sagnanna hennar eru líka frábærar.
Nýlega las ég aðra framúrskarandi bók eftir hana,
Edith’s Diary, sem lýsir á magnaðan hátt hlutskipti titil-
persónunnar, og þar með fjölda kvenna, í bandarísku
millistéttarsamfélagi upp úr miðri síðustu öld. Stíll-
inn hjá henni er beinskeyttur og einfaldur en um leið
ótrúlega ávanabindandi og læsilegur. Verst að ekkert
hefur, svo ég viti til, verið þýtt eftir hana yfir á íslensku.
PÉTUR G. MARKAN, SAMSKIPTASTJÓRI
ÞJÓÐKIRKJUNNAR
Einfarinn eftir A.J. Quinnell. Magnaður hefndarreyfari
um fyrrverandi bandarískan málaliða, Creasy, sem
leggur upp í sitt síðasta stríð, hefndaruppgjör þar sem
ítalska mafían er stráfelld kúlu fyrir kúlu. Bókin hefst
á þessari mögnuðu bæn;
Gefðu mér drottinn, það sem enn þú átt
en enginn hafa vill.
Um heilsu, frægð og hamingju ei ég bið
og hvorki um auð né frið:
um þetta biðja þeir snauðu og ríku
svo þú átt sjálfsagt afgang fátt af slíku.
Gefðu mér, Drottinn, það sem enn þú átt
en enginn hafa vill.
Um eirðarleysi og ofsa ég þig bið
og öryggislaust líf.
Og ef þú þíns vinar virða skalt
þá veit mér þetta fyrir líf mitt allt.
Því síðar kann mig kjark að skorta til
að kalla á þig um gjafir sem ég vil.
HILDIGUNNUR RÚNARSDÓTTIR, TÓNSKÁLD
Uppáhalds spennusagan, hér er einnig úr mörgu að
velja en ég held ég fari í heim Louise Penny og bókina
How the Light Gets In. Þessi bók geymir lausn á lang-
tímavandamáli söguhetju bóka hennar í gegn um langa
seríu með mjög áhugaverðum persónum. Mæli með
seríunni en ekki byrja á þessari bók!
ÓLI KR. ÁRMANNSSON,
BLAÐAMAÐUR OG RÁÐGJAFI
HJÁ KOM RÁÐGJÖF
The Wasp
Factory er
fyrsta bók
skoska rit-
höfundarins
Iains Banks
og kom út
árið 19 8 4 .
H ú n e r
kannski ekki
hefðbundin
sem spennubók, en inniheldur
sannarlega spennu, glæpi, hryll-
ing og óvænt endalok. Um er að
ræða fyrstu persónu frásögn
Franks, unglings sem býr afskekkt
með föður sínum á skoskri eyju og
endurspeglar uppvöxt hans, af-
brot, erfiðar aðstæður og uppgjör
við sjálfan sig og fjölskylduna.
Eftir Banks, sem lést úr krabba-
meini árið 2013, liggja fjölmargar
frábærar skáldsögur, bæði hefð-
bundnar og vísindaskáldskapur og
hægt að mæla með hverri einustu
þeirra
ÁLFRÚN PÁLSDÓTTIR, KYNNINGARSTJÓRI
HÖNNUNARMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Þríleikur Stiegs Larsson, Karlar
sem hata konur, Stúlkan sem
lék sér að eldinum og Loft-
kastalinn sem hrundi. Einn besti
dúett spennusagnanna að mínu
mati eru þau Mikael Blomkvist
og Lisbeth Sa-
lander. Kannski
spilar líka inn
í að móðir mín
þýddi bækurnar
og gerði af sinni
alkunnu snilld.