Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Page 25
LIBRARY VEITINGASTAÐUR Á HAFNARGÖTU Í KEFLAVÍK
„ Á s tæðan f y r ir þv í að vei t ingas taður inn fék k naf nið
Lib r ary er að það var bókasafn þarna áður fyrr. Og það setti tóninn fyrir
alla upplifunina og hönnunina. Þess vegna eru bækur þarna úti um allt
og þannig skapaðist þetta andrúmsloft sem ég var að leita eftir. Þetta er
hugmynd sem vaknaði með nafninu á staðnum og það skemmtilega við
það er að þetta var fyrsti alvöru veitingastaðurinn á Suðurnesjum. Við
hönnuðum hann á pari við það sem best væri hægt að gera í Reykjavík. Það
hafði aldrei verið opnaður svona veitingastaður áður í Keflavík. Ég man að
bæjarstjórinn kom í opnunarteitið og sagði við mig: Þakka þér fyrir það sem
þú gerðir fyrir samfélagið,“ segir Arnar Gauti og bætir við að þessi ummæli
séu í miklu uppáhaldi hjá honum.
„Ég er hvað stoltastur af þessu verkefni því þetta er alveg óhugnanlega
flott hugmynd að mínu mati. Þú situr inni á Library en það er samt verið að
spila GusGus. Öll pæling er svo ótrúlega skemmtileg. Þetta var samstarfs
verkefni míns og Jóns Gunnars Geirdal. Ég sá um hönnunina og hann var
meira að sjá um andrúmsloftið. Sá um tónlistina og útlitið og allt svoleiðis.“
AMERICAN STYLE SKIPHOLTI
„Þetta var óhugnanleg áskorun
því American Style hefur verið
í hjörtum Íslendinga í mörg ár.“
Arnar Gauti segist hafa sýnt frá
breytingunum á meðan þær voru
í vinnslu á Instagram og hlutu
fréttirnar misjöfn viðbrögð. Sjón
varpsmaðurinn Hjörtur Hafliða
fór hamförum á Twitter í nostalg
íukasti en hann stundaði staðinn
grimmt þegar hann var í MK.
„Vonbrigði að heyra að American
Style Skipholti sé að fara í eitt
hvað makeover. Staðurinn er
hinn fullkomni 1994 staður. Ljótar
mahony innréttingar, ljótar flísar,
grænir bekkir.“
Arnar Gauti lét gagnrýni ekki á
sig fá. „Ég fékk strax sýnina sem
er „american style“. Hönnunin er
út frá gullaldartímabilinu, eins og
gömul „saloon“ krá í villta vestr
inu.“ Arnar Gauti segir að það
standi til að breyta hinum stöð
unum, það átti að gera það í ár en
vegna faraldursins var því frestað.
LIBRARY FYRIR
AMERICAN STYLE FYRIR
MYNDIR/AÐSENDAR
FÓKUS 25DV 25. SEPTEMBER 2020