Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Page 33
Pestópasta með ólífum
Uppskrift fyrir 4
500 g tagliatelle-pasta
10 stk. sveppir
1 stk. rauð paprika
1 stk. gul paprika
2 stk. hvítlauksgeirar
1 krukka rautt pestó
3 msk. smjör til steikingar
Handfylli af ólífum Ég nota grænar
og dökkar til helminga
Ólífuolía
Salt og pipar
Ferskur parmesanostur
Byrjið á því að skera sveppina og
paprikurnar niður og steikið upp úr
smjöri á pönnu. Pressið hvítlaukinn
í hvítlaukspressu, bætið honum út
á pönnuna og leyfið að blandast
aðeins saman.
Sjóðið pasta í potti með salti og
góðri ólífuolíu.
Sigtið vatnið frá pastanu og blandið
sveppunum, paprikunni og hvít-
lauknum saman við.
Setjið pestóið yfir pastablönduna
og veltið pastanu upp úr pestóinu.
Setjið í skál og stráið ólífum og
ferskum rifnum parmesanosti yfir
réttinn.
Berið fram með góðu hvítlauks-
brauði og fersku salati.
Blómlegt salat með mozzarellaosti,
tómötum og góðri olíu er klassískt
og gott meðlæti.
Una í eldhúsinu
Hjónabandssæla
Mér finnst alltaf svo notalegt að
skella í hjónabandssælu þegar fer
að hausta. Gróft og gott hafra-
mjöl með ferskri og nýlagaðri
rabarbarasultu. Kakan inniheldur
fá hráefni og er þægileg í fram-
kvæmd. Hún fellur alltaf í kramið
hjá okkur á heimilinu.
2 bollar hveiti
2 bollar haframjöl
1 bolli sykur
1 tsk. matarsódi
250 g smjörlíki (mjúkt)
1 stk. egg
Blandið öllum hráefnunum nema
sultunni saman í skál og hnoðið
saman.
Smyrjið eldfast mót með smjöri
og leggið blönduna í formið (takið
örlítið af deiginu til hliðar – sirka
2 dl). Best er að þrýsta blöndunni
fast niður í formið þannig að það
myndist þétt lag, mér finnst best að
nota fingurna í þetta.
Smyrjið rabarbarasultu yfir deigið
og stráið svo restinni af deiginu yfir
sultuna.
Bakist í ofni við 200 gráður í um 35
mínútur.
Una Guðmundsdóttir smellir í
fljótlegt pasta sem hentar full-
komlega í nesti í vinnuna eða
skólann daginn eftir. Með lækk-
andi hita og aukinni súld er svo
tilvalið að bjóða upp á volga
hjónabandssælu með þeyttum
rjóma og gefa sér góðan tíma í
að lesa blöðin. Gleðilega helgi!
MYNDIR/AÐSENDAR
MATUR 33DV 25. SEPTEMBER 2020