Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Qupperneq 36
36 FÓKUS 25. SEPTEMBER 2020 DV
GLÆSTUR FERILL
FRÆGASTI ÓÞEKKTI
AUKALEIKARI Í HEIMI
Nafnið Jesse Heiman hringir engum bjöllum en þú
hefur alveg örugglega séð hann. Hann skartar fer-
ilskrá sem flesta leikara dreymir um og er gjarnan
kallaður „besti aukaleikari í heimi“.
Jesse er 42 ára og hefur meðal annars komið fram í kvikmyndunum The
Social Network, American
Pie, Catch Me If You Can, Old
School og Spiderman. Hann
fær lítið að leika þar sem hlut
verk hans eru smávægileg og
krefjast þess venjulega að
hann haldi sig í bakgrunn
inum.
Hann hefur bæði leikið á
hvíta tjaldinu og á sjónvarps
skjánum. Þú hefur kannski
séð honum bregða fyrir í sjón
varpsþáttunum How I Met
Your Mother, The O.C., My
Name is Earl, Glee, Criminal
Minds, Parks and Recreation
og Arrested Development.
Hann hefur þrisvar sinnum
komið fram í The Big Bang
Theory, í eitt skipti sem „nörd
í myndasögubúðinni á Valen
tínusardaginn“.
Þetta „nördaútlit“ virðist
skila sér í vinnu. Hann leikur
oft nemanda, eins og í Austin
Powers in Goldmember og í
Freaky Friday lék hann „nem
anda í kennslutíma“.
Starfsferill Jesse er langur
og glæsilegur. Hann kom fram
í sínu fyrsta aukahlutverki í
American Pie 2 árið 2001. Síð
an þá hefur hann komið fram
í fleiri en hundrað þáttum og
kvikmyndum. Hann er líklega
frægasta „nobody“ í heimi. n
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Þú kannast
alveg örugg-
lega við Jesse
Heiman.
IT’S ALWAYS SUNNY IN PHILADELPHIA CURB YOUR ENTHUSIASM
THE BIG BANG THEORY
OLD SCHOOL
GLEE
THE SOCIAL NETWORK HOW I MET YOUR MOTHER CATCH ME IF YOU CAN
SPIDERMAN
AMERICAN PIE
THE O.C.
Jesse Heiman á langan feril að baki. MYD/GETTY
MYNDIR/IMGUR