Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Síða 37
Við rýnum í spilin hans Helga Björnsson-ar, tónlistarmanns og Krabba. Krabb-inn er með alla angi úti og grípur tæki-
færin. Hann er oft að sinna mörgu í einu og
leiðist því sjaldan. Hann er mikill fjölskyldu-
maður og stoltur af sínu fólki. Krabbar hafa
gaman af að rækta barnið innra með sér og
eru þekktir fyrir aulabrandara.
Fjarki í mynt
Sparnaður í peningum | Skortur | Stjórnun | Öryggi
Ég á erfitt með að lesa fyrsta spilið því það eru svo
hávær skilaboð að handan sem tengjast bíómynd eða
öllu heldur handriti. Eitthvað sem þú byrjaðir á fyrir
löngu en hefur setið á hakanum. Og einhver sem fylgir
þér, einhver sem bakaði oft kleinur, hvetur þig til þess
að byrja aftur á þessu verkefni, núna sé tíminn! En
mögulega hefur skortur á fjármögnun haldið aftur af
verkefninu og spilið er hér komið til að segja þér að
það muni leysast á einn eða annan hátt.
Myntás
Nýtt viðskiptatækifæri | Birtingarmynd | Gnægð
Þetta spil er ennþá meiri staðfesting á að kleinutýpan
þín hefur rétt fyrir sér. Ef um áhættu er að ræða þá
getur þú treyst á að það er góð fjárfesting sem skilar
sér vel að verki loknu. Þetta er eitthvað sem þú ert
þegar búinn að sjá fyrir og kalla til þín þótt enn hafi ekki
orðið af því. Þú kannt greinilega á alheimslögmálin.
Styrkur
Styrkur | Hugrekki | Sannfæring | Áhrif | Samkennd
Skortur á sjálfsstjórn getur verið óvinur manns. Ef þú
finnur að ákveðin atriði í lífi þínu hafa tök á þér, hvort
sem það er að reykja eða drekka til dæmis, þá er gott
að leita inn á við eftir styrk. Breyttu viðhorfi þínu,
vertu jákvæður og þú munt uppskera. Alveg sama
hversu vel gengur hjá manni þá er gott að staldra
við og skoða hvað má betur fara. Slæmir ávanar eða
Skilaboð frá spákonunni
Hlustaðu á hlýjuna að handan! Mögulega kemur
hún til þín í draumi með mikilvæg skilaboð.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Helgi Björns
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
Vikan 25.09. – 01.10.
Lífið gott sem betur fer...
Nýjasta ofurpar Íslands
MYND/VALLI
stjörnurnarSPÁÐ Í
S ést hefur til leikstjórans og kvikmynda-undursins Benedikts Erlingssonar og leikkonunnar, verkefnastjórans og fram-
kvæmdastjóra Þjóðleikhússins Tinnu Lindar
Gunnarsdóttur á stefnumótum. Það stefnir allt
í eitt listrænasta og glæsilegasta par lands-
ins. DV lék forvitni á að vita hvernig þau eiga
saman ef litið er til stjörnumerkjanna.
Benedikt er Tvíburi og Tinna er Ljón.
Það fyrsta sem kemur upp þegar pörun
þessara stjörnumerkja er skoðuð er eldheit
ástríða. Allt sem Ljónið vill sýna, vill Tvíbur-
inn gjarnan skoða. Tvíburinn er hugmynda-
ríkur og bætir spennu við sambandið. Ljónið
er orkumikið og deilir sköpunarkrafti sínum
með Tvíburanum.
Að hlusta er veikleiki hjá báðum merkjunum
og þau þurfa bæði að vinna stöðugt í því að
hlusta á þarfir hvort annars. Þau þurfa að
hlusta hvort á annað alveg frá byrjun svo sam-
bandið gangi upp.
Þó að þau séu ekki góð í því að hlusta, þá
eru þau góð í því að tala um tilfinningar sínar
og tengjast sterkum böndum. Tvíburinn kann
að meta sjálfstæði maka síns og eigið frelsi,
sem er nákvæmlega það sem Ljónið getur gefið
honum. Ef það er eitthvað sem þetta par kann
að gera, þá er það að skemmta sér saman. n
Benedikt Erlingsson
Tvíburi
31. maí 1969
n Góð aðlögunarhæfni
n Skapandi
n Fljótur að læra
n Blíður
n Óákveðinn
n Stressaður
Tinna Lind Gunnarsdóttir
Ljón
18. ágúst 1979
n Hugmyndarík
n Ástríðufull
n Örlát
n Fyndin
n Hrokafull
n Þrjósk
MYND/SIGTRYGGUR ARI MYND/ARNÞÓR
Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Þú ert komin/n með stríðsmálningu
eftir allt sem hefur komið upp á. Þú
kemur sjálfri/um þér á óvart með
hvernig þú tæklar ákveðin mál sem
upp koma í vikunni með stórfeng-
legri ró. Það er ekkert sem getur
stöðvað þig núna, tekur eitt mál í
einu og heldur haus, alveg saman
hvað bjátar á.
Naut
20.04. – 20.05.
Þý býrð til blævæng úr peninga-
seðlum og þeytir þeim út í loftið
eins og er ekkert sé. Óvænt tæki-
færi mun fylla vasa þína. Farðu
varlega og ekki eyða öllu í einu.
Kannski tími til þess að fjárfesta...
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Smá flækjustig í samningamálum
sem þú þarft að kljást við þessa
vikuna. Þú ert létt/ur og glöð/
glaður að eðlisfari og nennir ekki
að díla við þessi mál. En illu er best
aflokið. Mögulega sniðugt að fá
sérfræðing í málið.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Mögulegt spennufall í gangi og þú í
svo mikilli afneitun á stressi að þú
hristir hausinn við að lesa þetta.
En innst inni finnur þú að þráðurinn
er styttri og líðan ekki alveg upp
á tíu. Taktu vikunni með ró, láttu
renna í bað og drekktu te.
Ljón
23.07. – 22.08.
Sjálfsvinnan heldur áfram hjá
Ljóninu. Við vitum að þetta hefur
verið tilfinningaþrungið ár en eitt-
hvað er þó enn óuppgert. Þú veist
það manna best að þú losnar ekki
fyrr en þú gerir þetta mál upp jafn-
vel þótt að það þýði að þú þurfir
að ræða við einhvern um óþægileg
mál.
Meyja
23.08. – 22.09.
Þú fórst ekki beint eftir ráðum
kosm ósins um að breyta um
stefnu. Þessa vikuna tekur þú
praktískar og þægilegar ákvarð-
anir enda er heimurinn einn og sér
nógu óstöðugur. Það sakar þó ekki
því að það kemur önnur vika eftir
þessa og þá mega ævintýrin byrja.
Vog
23.09. – 22.10.
Þú er að flytja, eða það er allavega
í kollinum á þér. Þá er góður tími
til þess að taka til í skápum og
skipuleggja sig. Þannig kemstu
skrefinu lengra í að flytja inn í
draumaeignina sem er klárlega
í kortunum. Ekki eyða of miklum
tíma á fasteingavefjum, eignin
kemur þegar hún kemur.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Ýmsar breyttar aðstæður torvelda
vinnumál og samskiptin sem þegar
mátti bæta. En ekki óttast. Vikan
tekur svo skemmtilega u-beygju
þar sem þú lendir í óvæntum og
skemmtilegum aðstæðum með
vinum.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Þú getur ekki þóknast öllum á
sama tíma og það er allt í lagi. Smá
ágreiningsmál koma upp í vinnunni.
Stattu á þínu og allt mun enda
farsællega. Sumir sjá metnaðinn í
Bogmanninum sem ógnun og láta
á það reyna.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Einhver kvíði grasserar og reynir
að komast upp á yfirborðið en þú
þekkir þessa tilfinningu og tekst
á við hana áður en hún tekur yfir.
Stappaðu í þig stálinu, horfðu í
spegilinn og brostu! Ég er frábær!
Ég er klár! Ég er fyndin/n! Ég er
stórkostleg/ur! (Og endurtaka svo).
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Sjálfsást er „mottó“ vikunnar. Það
er langþráð verk að huga betur að
sál og líkama. Þú ert komin/n lang-
leiðina í huga þér en mögulega ekki
farin að taka raunveruleg skref í þá
átt. Taktu lítil skref og ekki hafa of
miklar væntingar í einu.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Hvaða litlu hlutir gleðja þig? Pældu
í því og láttu svo verða úr því.
Hvort sem það er jógatími, dekur,
kvöldverður eða blómaleiðangur.
Gefðu þínum nánustu smá frí
þessa vikuna og hjálpaðu sjálfri/
um þér, það mun líka efla sjálfs-
traustið þitt.
4
MYNT
1
MYNT
STYRKUR
lífsstílshefðir geta dregið mann niður. Gefðu þér tíma
til þess að hugsa um það og hvernig þú getur breytt
þeim. Þó að þú verðir alltaf andlega 20 árum yngri
þá er líkaminn ekki alveg sammála. Hvernig getur þú
hugsað betur um heilsu þína?
FÓKUS 37DV 25. SEPTEMBER 2020