Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2020, Qupperneq 38
38 SPORT 433 25. SEPTEMBER 2020 DV
BJÖRT FRAMTÍÐ HJÁ
STELPUNUM OKKAR
Jón Þór Hauksson virðist vera á réttri leið með kvennalandsliðið
ef marka má frammistöðuna hjá ungum og efnilegum leikmönn-
um. Liðið er á toppi riðilsins ásamt Svíum eftir síðasta verkefni.
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
Sveindís Jane ógnar sífellt með hraða sínum og krafti. MYND/VALLI
A landslið kvenna mætti Svíþjóð á Laugardals-velli á þriðjudagskvöld,
í toppslag riðilsins í undan-
keppni EM 2022. Fyrir leik-
inn voru bæði lið með fullt hús
stiga eftir fjóra leiki. Sænska
liðið, sem situr í 5. sæti á
styrkleikalista FIFA, var
sterkari aðilinn í fyrri hálf-
leik og náðu Svíar að skapa
sér nokkur góð færi, en eina
mark fyrri hálfleiks skoraði
Anna Avnegård á 33. mínútu
og gestirnir voru komnir í for-
ystu. Íslenska liðið var betra
liðið á vellinum í seinni hálf-
leik, sótti stíft og uppskar
jöfnunarmark á 62. mínútu.
Sveindís Jane Jónsdóttir tók
þá langt innkast sem rataði á
Elínu Mettu Jensen sem skor-
aði með skalla á nærstöng. Ís-
land og Svíþjóð eru því áfram
jöfn að stigum í efstu tveimur
sætum riðilsins, bæði lið með
13 stig eftir fimm leiki, en
Svíar í efsta sæti á markatölu.
Sveindís stal senunni
Segja má að áhugafólk um
kvennaknattspyrnu gangi
um götur bæjarins með bjart-
sýni í farteskinu eftir leikinn.
Ungir leikmenn liðsins sem
eru að stíga sín fyrstu skref
vekja von í brjósti þjóðarinn-
ar. Sveindís Jane Jónsdóttir,
fædd árið 2001, var að spila
sína fyrstu landsleiki í þessu
verkefni, hún heillaði marga.
„Það er líkamlegt atgervi,
hraði og styrkur,“ segir Þor-
steinn Halldórsson, þjálfari
Breiðabliks þar sem Svein-
dís leikur, en þrír yngstu
leikmenn liðsins gegn Sví-
þjóð koma allir úr herbúðum
Breiðabliks. „Hún gæti verið
góð í hvaða íþrótt sem er,
hún væri frábær í frjálsum
íþróttum, góð í körfubolta og
handbolta. Hún gæti verið
í öllu, hún hefur hraðann,
sprengju og styrk sem kemur
frá náttúrunnar hendi. Hraði
og styrkur hefur alltaf skipt
máli, tækni og leiksskilning-
ur þarf að fylgja með. Hann
vegur mjög þungt, leikmaður
sem er kannski ekki fljótur en
tæknilega frábær getur snýtt
mörgum með klókindum.“
Þorsteinn telur næsta víst
að fjöldi erlendra liða muni
reyna að klófesta Svein-
dísi sem er samningsbundin
Keflavík en er á láni í Kópa-
voginum. „Það eina sem ég
sé núna er að hún átti að vera
löngu búin að fara í sterkara
lið. Það er leiðinlegt að segja
það við Keflavík en hún hefði
höndlað þetta skref miklu
fyrr, hún hefði mátt koma til
okkar fyrir einu eða tveimur
árum. Hún hefði þurft sterk-
ara æfingaumhverfi fyrr, það
er ekki hægt að gagnrýna
neitt. Keflavík á allt í henni,
við vorum ekki að finna hana
upp. Ég spyr mig að því hvar
hún væri stödd ef hún hefði
komið fyrr til okkar eða eitt-
hvert annað í sterkara um-
hverfi. Það kæmi mér ekkert
á óvart ef erlend félög reyna
að fá hana núna, það er spurn-
ing hvaða skref hún vill taka.
Hversu hratt hún vill taka
skrefið, hvort hún fái lið sem
hún vill fara til. Hún þarf að
gefa sér tíma í að taka ákvörð-
un, það er ljóst að lið munu
bera víurnar í hana.“
Hin klóka Alexandra
Alexandra Jóhannsdóttir er að
klára sitt þriðja tímabil í her-
búðum Breiðabliks þrátt fyrir
að vera aðeins tvítug. Hún hef-
ur spilað yfir 100 leiki í meist-
araflokki og var að spila sinn
sjöunda A-landsleik gegn Sví-
um. „Alexandra hefur mikla
tilfinningu fyrir leiknum, les
leikinn vel og pælir mikið í
þessu. Hún undirbýr sig vel,
skoðar andstæðinga sína vel
og veit hvað hún er að fara út í.
Líkamlega sterk og tæknilega
góð, hún var að spila aftar á
vellinum með landsliðinu en
hún gerir hjá okkur. Hún hefur
þann eiginleika að vera mikil
fótboltakona, hún pælir mikið
í hlutunum þegar hún skoðar
andstæðinga sína. Þegar við
erum að sýna leikmönnum
klippur þá er hún sá leikmaður
sem pælir mest í því.“
Alexandra byrjaði 14 ára í
meistaraflokki með Haukum.
„Við vissum hvað við vorum
að fá þegar hún kom. Ég held
að Alexandra eigi eftir að ná
langt, hún hefur þannig metn-
að og er þannig karakter. Hún
er klár í að leggja það á sig
sem þarf.“
Karólína gerir hluti
sem aðrar reyna ekki
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
er líkt og Sveindís fædd árið
2001 en hún er á sínu þriðja
tímabili í herbúðum Breiða-
bliks. Hún er frænka Gylfa
Þórs Sigurðssonar, fremsta
knattspyrnumanns Íslands.
„Karólína hefur tekið miklum
framförum á síðustu tveimur
árum, það tók hana tíma að
venjast umhverfinu hjá okkur.
Vera í samkeppni og komast
ekki alltaf í liðið, síðan hefur
hún tekið slaginn og vann
sig inn hægt og rólega. Hún
er leikmaður sem getur gert
hluti sem engum öðrum dettur
í hug að gera. Tæknilega mjög
góð og útsjónarsöm. Það sást
gegn Svíum, þó að Sveindís
hafi fengið fyrirsagnirnar eft-
ir leik, að Karólína var besti
leikmaður liðsins sóknarlega
í fyrri hálfleik. Ég hef gagn-
rýnt hana fyrir að skora ekki
nóg og það er kannski best að
gera það aftur núna,“ segir
Þorsteinn. Hann er bjartsýnn
á framhaldið og vonarstjörn-
ur Íslands. n
Sveindís þarf að
gefa sér tíma í að
taka ákvörðun.