Fréttablaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 28
Þórhildur Sölustjóri Fyirtækjasviðs/Jólagjafir Sími 898 7979 • thorhildur@run.is Við bjóðum uppá fallegt og gott úrval af fyrirtækjagjöfum fyrir jólin Stefán Örn Gíslason, verkefna-stjóri hjá UNICEF á Íslandi, segir að eins og fyrir undan- farin jól verði Sannar gjafir í boði fyrir fyrirtæki sem vilja gleðja starfsmenn sína með góðum verkum. „Þetta eru gjafabréf sem fyrirtæki kaupa í nafni starfs- manns og við sjáum um að gjöfin komist þangað sem þörfin er mest hverju sinni. Dæmi um Sannar gjafir eru bóluefni, jarðhnetumauk fyrir vannærð börn og hlífðarbún- aður á borð við grímur fyrir heil- brigðisstarfsfólk sem er að glíma við COVID-19 í efnalitlum sam- félögum. Gjafirnar eru á mismun- andi verði og við getum sett saman sérstaka pakka fyrir hvert og eitt fyrirtæki,“ útskýrir Stefán. „Sum fyrirtæki hafa gefið tíu bólusetn- ingar á hvern starfsmann og sett miða þess efnis á aðra gjöf. Hvert bóluefni gegn mislingum kostar ekki nema 57 krónur,“ segir hann. „Vítamínbætt jarðhnetumauk sem er nauðsynlegt í baráttunni gegn vannæringu kostar 50 krónur pokinn. Það er hægt að setja saman í pakka bóluefni og jarðhnetu- mauk, grímur, moskítónet og hvað sem fyrirtæki óska eftir.“ Leynivinagjöf með fallegri hugsun UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er leiðandi í hjálpar- starfi fyrir börn í heiminum, berst fyrir réttindum barna á heimsvísu og sinnir bæði langtímauppbygg- ingu og neyðaraðstoð. Stefán segir að UNICEF sjái árangur af starfinu á hverjum degi. Það hefur aukist mjög mikið undanfarin ár að fyrir- tæki kaupi Sannar gjafir handa starfsmönnum og sleppi því að kaupa óþarfa. Það getur líka verið vandasamt að velja einhvern hlut sem hentar mismunandi smekk hvers og eins starfsmanns, en þó vilja allir láta gott af sér leiða. „Það sem skilgreinir Sannar gjafir er hversu gjöfin kemur að góðum notum hjá þeim sem þurfa á henni að halda. Sannar gjafir eru lífsnauðsynleg hjálpargögn. Þeir sem kaupa gjafirnar fá í hendur gjafabréf en einnig er hægt að útbúa það rafrænt. Sumir vilja gera sérstaklega merkt jólakort sem við getum sérhannað eftir óskum hvers og eins,“ segir Stefán og bætir við að Sannar gjafir séu líka frábær leynivinagjöf en oft eru slíkir leikir á vinnustöðum fyrir jólin. „Það er hægt að kaupa gjöfina á netinu og þarf ekki einu sinni að fara af vinnustaðnum til að redda gjöf,“ segir hann. „Þetta er falleg hugsun í pakkann, hjálpargögn sem koma sér vel. UNICEF sér svo um að koma gjöfunum þangað sem neyðin er mest.“ Mikilvægt starf UNICEF hefur einnig komið að hjálparstarfi í f lóttamannabúðum og hefur haldið uppi menntun barna í mörgum af stærstu flóttamannabúðum í heimi. Þar fá börn námsgögn og nauðsyn- lega kennslu. „Við erum á vissum svæðum að sjá heila kynslóð alast upp í f lóttamannabúðum og það er mjög mikilvægt að þessi börn fái menntun, en hægt er að styðja við þá vinnu með því að kaupa náms- gögn í gegnum Sannar gjafir,“ segir Stefán. „Það er mikil þörf fyrir Sannar gjafir í heiminum og það er ákaf- lega ánægjulegt þegar fólk vill láta gott af sér leiða með því að veita öðrum aðstoð.“ Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni sannargjafir. is en einnig má hafa samband við Stefán í gegnum netfangið stefang@unicef.is Neyðaraðstoð í jólapakkann UNICEF býður sem fyrr Sannar gjafir sem veita börnum í neyð aðstoð. Mikil aukning hefur orð- ið í sölu á slíkum gjöfum hjá fyrirtækjum. Göfugur tilgangur í stað hefðbundinna jólagjafa. Stefán Örn heldur hér á gjafapökk- um UNICEF sem veita börnum hjálp í neyð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Svona pakki getur bjargað barni í neyð. Þetta er vítamínbætt jarðhnetu- mauk sem UNICEF sendir og getur bjargað lífi vannærðra barna. Það eru margir sem leggja hönd á plóg við að koma hjálpar- gögnum á rétta staði í heiminum. Það er mikil þörf fyrir Sannar gjafir í heiminum og ánægju- legt þegar fólk vill láta gott af sér leiða. 10 KYNNINGARBLAÐ 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.