Fréttablaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 46
arionbanki.is Þægilegri bankaþjónusta Arion banka Gjafakort í jólapakkann Gjafakort Arion banka er góður kostur sem jólagjöf frá þínu fyrirtæki til starfsfólksins. Þú velur upphæðina – viðtakandinn velur gjöfina. Allir fá það sem þá langar í. Gjafakortið er hægt að nota til greiðslu í verslunum um allan heim og einnig á netinu.* Þú getur pantað gjafakort fyrir þitt fyrirtæki á arionbanki.is. Hægt er að nota gjafakortið í Apple Pay. Gjafakort í jólapakka starfsmanna * Þar sem PIN eða auðkenningar er ekki krafist. 28 KYNNINGARBLAÐ 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR Söngur gleður og sameinar fólk. Aðventan er indæll tími, þegar tilhlökkun ríkir fyrir komandi hátíð og auðvitað jólagjöfinni frá vinnu- veitandanum. Hver einasti dagur í desember er hátíð enda ríkir gleði í andrúmsloftinu og gaman er að gera dagana skemmtilega saman. Á meðan beðið er stóra dagsins, þegar jólagjöfunum er útbýtt, er fútt og fjör að efna til leikja innan fyrirtækisins. Dæmi um skemmtilegan leik er að koma saman á kaffistofunni þar sem einn í hópnum hefur upp raust sína og syngur fyrstu laglínuna í valinkunnu jólalagi. Sá sem situr honum á hægri hönd tekur svo við og syngur næstu línuna og svo koll af kolli en sá sem klikkar á laginu verður að hefja næsta leik og lag. Hugmyndir að jólalögum geta verið allt frá Jólasveinar einn og átta yfir í All I want for Christmas með Mariuh Carey og auðvitað verða svolítil tilþrif að fylgja með. Jólasöngur á skrifstofunni Það veitir ánægju að gleðja nákomna.Er það alltaf þannig? Rann-sóknir sýna að fólk með sterka félagslega tengingu við aðra er oftast hamingju- samara og heilbrigðara. Því f leiri vini og fjölskyldumeðlimi sem þú átt, því meiri tíma krefjast þeir af þér og þú hefur minni tíma fyrir þig. Þú gefur af þér til annarra á eigin kostnað. Út frá því mætti ætla að betra væri að gefa gjafir en þiggja þær. En yfirleitt þegar fólk gerir öðrum greiða þá reiknar það með að eiga inni greiða síðar. Að gefa gjafir til þeirra sem þér þykir vænt um veitir ávinning í formi vellíðunar yfir að gleðja aðra. En þegar fólk upplifir það sem skyldu sína að gefa gjafir getur það haft neikvæð áhrif á þann sem gefur og valdið honum streitu. Að gefa af fúsum og frjálsum vilja í þeirri trú að það leiði gott af sér getur þó vissu- lega verið betra en að þiggja. Sælla er að gefa en þiggja Flatkökur og hangikjöt væri tilvalin gjöf fyrir Íslending að gefa jap- önskum vinum sínum. Japanir eru heimsþekktir fyrir einstakar gjafahefðir og eru gjafir stór hluti af japanskri menningu. Mismunandi gjafir eru gefnar við mismunandi tækifæri, en hvorki afmælis- né jólagjafir teljast hluti af japanskri gjafa- hefð, þó svo breytingar hafi orðið þar á í seinni tíð með vestrænum áhrifum. Tvisvar á ári, í júní og desember, skiptast samstarfs- félagar, ættingjar og vinir á gjöfum. Fyrir Japönum er innpökkunin mikilvæg. Að minnsta kosti skal af henda gjafir í fallegum gjafa- poka, merktum versluninni þar sem gjöfin var keypt. Talan fjórir er óhappatala og því forðast Jap- anir það að gefa gjafir sem koma fjórar saman í pakka. Omiyage eru minjagripir sem eru gefnir þegar fólk kemur heim úr ferðalögum. Temiyage eru þakkargjafir sem eru gefnar þegar fólk er heimsótt. Þegar útlending- ar koma í heimsókn gera Japanir ekki ráð fyrir gjöfum en þær eru þó vel þegnar. Algengt er að koma með mat eða drykki frá heima- landinu sem kosta hvorki of mikið né of lítið. Japanskar gjafahefðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.