Fréttablaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 24
Gurrí, eins og hún er alltaf kölluð, hefur fengið margar góðar gjafir frá vinnuveit-
endum sínum. Sumar hafa verið
betri en aðrar en hún segir þær
f lestar vera eftirminnilegar. Gurrí
svaraði nokkrum spurningum
um skemmtilegar jólagjafir frá
vinnuveitendum og það stóð ekki
á svörum hjá henni.
Hefur þú einhvern tíma fengið
skrítna jólagjöf frá vinnuveit-
anda?
Árin 1982-1989 vann ég hjá
fyrirtæki sem gaf okkur starfs-
mönnum lítinn kringlóttan
olíulampa í jólagjöf ein jólin. Sá
böggull fylgdi skammrifi að lamp-
inn sæti var svo kirfilega merktur
fyrirtækinu að mann langaði ekki
að punta með honum heima hjá
sér.
Hefur þú einhvern tíma fengið
eftirminnilega og skemmtilega
gjöf?
Undir aldamót fengum við
sem vorum í fullu starfi á Aðal-
stöðinni sálugu glæsilegan
Montblanc-penna. Mínum penna
sem var vínrauður var því miður
stolið nokkrum árum seinna og
ég sé mikið eftir honum. Sú gjöf
er kannski eftirminnileg vegna
þess og einnig fyrir þær sakir
að ég hefði aldrei tímt að kaupa
mér slíkan dýrgrip á þeim lágu
launum sem ég var á. Annars hafa
jólagjafirnar sem ég hef fengið í
gegnum árin frá vinnustöðum
mínum verið hver annarri betri
og skemmtilegri.
Telur þú það hafa einhvern til-
gang að gefa starfsfólki gjöf?
Já, það er alltaf gott að gleðja
starfsfólkið sitt og sýna því að það
sé metið.
Hvers konar gjöf myndir þú óska
þess að fá ef þú mættir velja?
Myndi vilja bók, bækur eru
besta jólagjöfin. Þegar ég kvartaði
sáran við mömmu (í kringum
1980) yfir því að fá bara eitthvað
til heimilisins frá henni, reyndar
rándýr rafmagnstæki, á meðan
ég vildi bara bækur sá hún að sér
og gaf mér tvær bækur næstu jól
á eftir. Ég beið spenntust eftir
að opna girnilega pakkann frá
henni ... sem geymdi matreiðslu-
bók og Vinnan göfgar manninn.
Mamma hlær enn þegar ég rifja
þetta upp og segir þetta hafa verið
óheppilega tilviljun. Einmitt.
Þegar Oddi átti og rak Fróða um
tíma fengum við starfsmenn tvær
glóðvolgar bækur eftir vinsælustu
höfunda landsins í jólagjöf. Það
var æði.
Jafnvel þótt ég hafi árum saman
lesið og skrifað um bækur fyrir
Vikuna finnst mér frábært að fá
bækur að gjöf. Ég kemst auð-
vitað ekki yfir allt þótt ég lesi
hratt og alltaf er hægt að skipta ef
maður hefur lesið bókina. Ég er
þegar byrjuð að háma í mig jóla-
bækurnar í ár, þetta er uppáhalds-
árstíminn minn.
Skiptir máli hvort gjöfin er dýr
eða ódýr?
Nei, það held ég ekki. Ég hef
reyndar síðustu árin fengið fínar
steikur og alls konar sælkera-
vörur sem telst nú ekki vera ódýrt
en mér finnst alltaf gaman að fá
gjafir, hvort sem þær eru dýrar
eða ódýrar. Ég er orðin 62 ára og
held að úr þessu vaxi ég ekki upp
úr því að hlakka til að opna pakk-
ana á aðfangadagskvöld.
Finnst þér fólk metast sín á milli
hvaða vinnustaður gefur f lottast?
Nei, ég hef ekki orðið vör við
það. Ég man samt eftir augna-
bliks öfund út í Veru Knútsdóttur,
sessunaut minn í Skagastrætó,
sem fékk forláta hangikjöt frá
vinnustað sínum, utanríkisráðu-
neytinu, í jólagjöf. Þá var Össur
Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra. Vinnustaður minn hafði
nefnilega það árið gefið öllum
hamborgarhrygg sem ég borða
ekki. Vera fór að segja mér á
leiðinni upp á Skaga að nú væru
góð ráð dýr, fjölskylda hennar
hefði óvart keypt tvöfaldan
skammt af hangikjöti fyrir jólin
og svo bættist þetta við, eða gjöfin
úr vinnunni. Ég sýndi henni ham-
borgarhrygginn og spurði: „Viltu
skipta?“ Hún rétti mér hangi-
kjötið en þáði ekki hamborgar-
hrygginn sem endaði nú samt á
góðu heimili. Hangikjötið sem ég
fékk óbeint í jólagjöf frá Össuri
var snætt á jóladag og bragðaðist
sérlega vel.
Opnar þú vinnugjöfina á
aðfangadag eða þegar þú færð
hana af henta?
Skömmu eftir af hendingu ef
innihaldið er matarkyns og þarf
að fara í kæli. Annars ekki fyrr en
á aðfangadagskvöld með hinum
pökkunum.
Hvaða gjafir finnst þér vænst
um sem þú færð í jólagjöf?
Mér finnst vænt um þær allar.
Hvers óskar þú þér í jólagjöf um
næstu jól?
Eitthvað matarkyns kemur sér
alltaf vel svo framarlega sem það
er algjörlega laust við hnetur,
möndlur, döðlur og rúsínur ...
Fékk óbeina gjöf frá ráðherra
Guðríður Haraldsdóttir blaðamaður hefur einstaklega gaman af því að fá pakka og er dugleg að
halda upp á afmæli. Henni finnst skemmtilegast að fá bækur en hefur fengið mjög óvæntar gjafir.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Gurrí lenti í
óvæntu og
skemmtilegu
atviki í Skaga-
strætó en hún
býr á Akranesi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
PJETUR
Ég beið spenntust
eftir að opna
girnilega pakkann frá
henni ...
Gefðu allskonar, gefðu
Gjafakort Kringlunnar er gjöf sem hakar
í öll boxin. Þú færð gjafakortið í
þjónustuveri okkar eða á kringlan.is.
GJAFAKORT
6 KYNNINGARBLAÐ 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR