Fréttablaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 42
Freyja Leópoldsdóttir, sölu- og markaðsstjóri hjá S4S, segir gjafabréfin frá þeim frábæran
kost í jólapakkann, bæði fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki.
„Það finna sér allir eitthvað við
hæfi í einhverri af 14 verslunum
S4S. Við rekum skóbúðirnar Steinar
Waage, Kaupfélagið, Skechers, Ecco
og Toppskóinn þar sem allir ættu að
geta fundið góða skó fyrir sig, en við
leggjum mikla áherslu á gæðamerki
og fjölbreytt úrval. Við erum einnig
með gott úrval af barnaskóm, en við
vitum hversu mikilvægt er fyrir litla
fætur að vera í vönduðum skóm.
Einnig rekum við Air-búðirnar í
Kringlunni og Smáralind, sem eru
sérhæfðar Nike-verslanir, en Nike
hefur sjaldan verið vinsælla og það
fyrir alla aldurshópa. Krakkar og
unglingar vilja helst ekki klæðast
öðru og fullorðnir þekkja gæðin í
íþróttafatnaðinum. Við erum ein-
mitt með mikið úrval af fatnaði og
skóm fyrir útihlaupin, bæði innan-
bæjarhlaup sem og fjallahlaup.
Þá rekur S4S einnig Ellingsen,
ævintýraverslun fjölskyldunnar,
sem er bæði staðsett á Granda og
á Akureyri. Það er gaman að segja
frá því hér að Ellingsen á Akureyri
mun fljótlega á næsta ári f lytja í
nýtt og glæsilegt 500 fm húsnæði
sem stækkar búðina um meira en
helming, og um leið mun vöruúr-
valið aukast til muna. Þá fórum við
í miklar breytingar á versluninni
á Granda í byrjun ársins og er hún
öll hin glæsilegasta. Í Ellingsen er
til allt sem þarf fyrir útivist fjöl-
skyldunnar, fatnaður og skór sem
og stærsta rafhjólasetur landsins.
Þá er S4S einnig með þrjár vefsíður,
Skór.is, Air.is og Ellingsen.is,“ segir
hún.
„Það hefur margt breyst á þessu
ári og margar hefðbundnar jóla-
gjafir passa ekki lengur. Útivist
hefur aldrei verið eins eftirsótt og
salan á útifatnaði, æfingafatnaði,
gönguskóm og hlaupaskóm hefur
aukist mikið. Þá hafa rafhlaupa-
hjólin og rafhjólin slegið í gegn hjá
öllum aldurshópum,“ segir Freyja
og bætir við að hún hafi keypt sér
rafhjól í vor og hafi fengið nýja
ástríðu fyrir hjólaíþróttinni og
hjólað mikið í sumar með börn-
unum, þar sem þau yngstu voru í
hjólavagni aftan í. „Núna langar
mig í f leiri rafhjól, langar bæði
í fulldempað raffjallahjól til að
fylgja eftir manninum mínum í því
sporti sem og rafhlaupahjól til að
nota í styttri ferðir og hafa í skott-
inu fyrir miðbæjarstússið.“
Gjafakortin frábær kostur
„Með gjafakortunum okkar geta
fyrirtæki verið viss um að allir
starfsmenn verði ánægðir og geti
nýtt gjöfina fyrir sig, en það ættu
allir að finna eitthvað við sitt
hæfi í verslunum okkar. Það þurfa
allir skó og yfirhafnir. Auk þess
bjóðum við góð kjör á gjafkort-
unum fyrir fyrirtæki og stærri
hópa,“
Aðspurð hvað verði heitasta
jólagjöfin í ár, fyrir utan gjafa-
kortið, nefnir Freyja sérstaklega
Devold-ullarfatnaðinn frá Ell-
ingsen, sem og hlýju Duggarapeys-
una, gönguskó frá Ecco, Bircken-
stock-inniskó frá Steinari Waage
og Tech Fleece-fatnað frá Nike.
„Við sjáum að fólk er þegar
byrjað að versla jólagjafir og
ljóst að þessar vörur munu rata í
jólapakkann hjá mörgum. Ég gaf
fjölskyldunni allri Devold-ullarföt
í jólagjöf í fyrra og vakti það mikla
lukku, nú er spurning hvort inni-
skór verði í öllum pökkum,“ segir
Freyja.
Fyrirtækjasala S4S býður fyrir-
tækjum og stærri hópum einstök
kjör á gjafakortum, fatnaði, skóm
og öðrum vörum úr verslunum
sínum, en hægt er að hafa sam-
band í tölvupósti á netfangið
sala@s4s.is eða í síma 544-2160.
Gjafakort sem hitta í mark
S4S rekur 14 verslanir með fjölbreytt vöruúrval. Gjafabréf frá S4S hentar því vel sem jólagjöf til hóps
fólks með ólík áhugamál. Hjá S4S bjóðast góð kjör á gjafakortum fyrir fyrirtæki og stærri hópa.
Freyja Leópoldsdóttir segir að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi í verslunum S4S. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Með gjafakort-
unum okkar geta
fyrirtæki verið viss um
að allir starfsmenn verði
ánægðir.
Einfaldaðu gjafakaup til starfsmanna,
þú velur upphæðina - starfsmaðurinn velur gjöfina.
Gjafakort S4S er hægt að nota í öllum verslunum
okkar, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Útivist, fatnaður, skór, íþróttir, lífstíll og rafhjól.
AIR / ECCO / ELLINGSEN / KAUPFÉLAGIÐ / SKECHERS / STEINAR WAAGE / TOPPSKÓRINN
GJÖF SEM GLEÐUR
Hafðu samband og fáðu tilboð fyrir hópinn þinn í
netfangið sala@s4s.is eða í síma 544 2160
24 KYNNINGARBLAÐ 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR