Fréttablaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 22
Að gefa viðskipta-
vinum gjafir
skapar persónulegri
tengsl.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Valgeir segir að það að gefa viðskiptavinum gjafir sýni að hugsað sé til þeirra.
Ekki gefa bara eitthvað,
gefðu frekar hvað sem er.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert mál að
velja rétta jólagjöf fyrir starfsfólkið. Þú ákveður
upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina.
Þar sem Valgeir rekur lítið fyrirtæki með aðeins fimm starfsmenn og tengslin við
viðskiptavini eru oft persónulegri
en hjá stórum fyrirtækjum leggur
hann mikið upp úr því að gjafirnar
sem hann gefur séu gagnlegar og
persónulegar. Hann segist alltaf
reyna að gefa starfsfólkinu jóla-
gjafir og oft gefur hann viðskipta-
vinunum gjafir líka.
„Ég hef sterkar skoðanir á
gjöfum til viðskiptavina. Ég passa
mig að gefa ekki of mikið af þeim
og gef þær ekki alltaf því ég vil líka
leggja pening í aðra góða hluti eins
og góð málefni. Ég gef reglulega í
slíkt og held mig bara við ákveðin
málefni því maður getur ekki
styrkt alla þó mann langi. En þegar
mig langar til að gefa viðskiptavin-
unum gjafir þá reyni ég að kaupa
eitthvað sem þeir geta notað og
hafa þörf fyrir. Stundum hef ég
notað tækifærið og gefið gjöf ef
eitthvað sérstakt erí gangi hjá við-
skiptavinum svo ég gef ekki bara
jólagjafir,“ útskýrir Valgeir.
„Ég hef oft gefið eitthvað klass-
ískt eins og nammi og ég gaf einu
sinni te. Það eru allir að gefa kaffi
og það er kannski auðveldara því
flestir drekka kaffi, en ég ákvað
að gefa te. Að gefa viðskiptavinum
gjafir skapar persónulegri tengsl.
Það sýnir að maður hugsar til
þeirra, að maður lítur ekki bara
á þá sem tekjulind. Við erum að
lifa saman í þessu samfélagi, hvort
sem það er fjölskyldan, vinir eða
viðskiptavinir. Ég hitti viðskipta-
vini álíka oft ef ekki oftar en vini
og ættingja. Það myndast oft mjög
persónulegt samband við þá, sér-
staklega þegar maður er búinn að
vera með sama viðskiptavininn
lengi. Ég vel þess vegna oft gjafir út
frá hverjum og einum viðskipta-
vini. Yfirleitt fá samt allir eins,
en þessi jólin er ég kannski með
einhverja tvo, þrjá viðskipta-
vini í huga þegar ég vel gjöfina og
önnur jól er ég með einhverja aðra
í huga og gjöfin hittir í mark þar.
Auðvitað lendir maður alveg í því
þegar maður sendir það sama á
100 manns að sumt fer bara upp í
hillu og er ekkert snert og sumt fer í
ruslið. En ég reyni að velja eitthvað
sem verður notað.“
Valgeir segir að þegar kemur að
því að velja jólagjöf fyrir starfs-
fólkið hugsi hann líka um nota-
gildið og reyni að gefa því eitthvað
sem nýtist um jólin. „Mér finnst
gaman að gefa þeim eitthvað sem
nýtist yfir jólin. Kannski eitthvað
sem endar á matarborðinu um
jólin eða áramótin. Þá er maður
með í matnum inni á heimilinu hjá
þeim,“ segir hann og hlær.
„Það léttir líka alveg tvímæla-
laust undir ef maður gefur þeim
hráefni sem getur nýst.“
Þegar Valgrein rifjar upp þær
gjafir sem hann hefur fengið að gjöf
frá fyrirtækjum þá rifjast upp fyrir
honum ein nytsamleg gjöf sem
hann saknar að fá í dag.
„Það var vegleg dagbók sem
ég fékk árlega, þetta var gjöf frá
fyrirtæki til fyrirtækis. En slíkar
gjafir eru að mestu hættar í dag
þegar allt er orðið rafrænt. En ég
sakna þess að fá svona dagbók, þó
ég sé tæknikarl þá notaði ég hana
mjög mikið. En þetta er kannski
ekki umhverfisvænasta jólagjöfin
í dag þar sem stór hluti af þessum
bókum fer örugglega ekki í notkun
og umhverfisþátturinn er einmitt
sá liður sem við viljum hafa í huga
þegar við erum að gefa gjafir.“
4 KYNNINGARBLAÐ 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
Hugsar mikið um notagildi gjafanna
Valgeir Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá Tölvuaðstoð, hefur sterkar skoðanir á fyrirtækjagjöfum.
Honum finnst skemmtilegast að gefa persónulega gjöf sem nýtist vel og reynir að vanda valið.