Fréttablaðið - 24.10.2020, Side 4
FIAT SENDIBÍLAR - GERIÐ SAMANBURÐ!
FIAT DUCATO LANGUR FIAT DOBLO
UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
WWW.FIATPROFESSIONAL.IS • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
fiatprofessional.is
• 2.3 dísel 140 hestöfl
• 9 gíra alvöru sjálfskipting
• Mjög vel útbúinn, m.a.: Bakkmyndavél, leiðsögukerfi, hraðastillir, 3ja manna
• 1.3 dísel 95 hestöfl
• 5 gíra beinskiptur
• 3ja manna
• 13m3 flutningsrými
• Burðargeta 1200 kg
• 3,4m3/4,2m3* flutningsrými
• 750 kg/900 kg* burðargeta
*Doblo Maxi langur
ÁRA5ÁBYRGÐ
LEIÐRÉTTING
Rangt var farið með starfsaldur
Gísla Magna Sigríðarsonar,
kórstjóra hjá Léttsveit Reykjavíkur,
í blaðinu í gær. Hann hefur
stjórnað kórnum frá árinu 2012.
Katrín Sif Einarsdóttir
heimshornaf lakkari
hefur ferðast
til 222 landa.
Heimsfaraldur-
inn hefur sett
strik í reikning-
inn, en Katrín Sif
ferðast á Íslandi á
meðan hann gengur
yfir.
Júlía Brekkan
listakona
selur veggspjöld
með teikningum
sem sýna sterkar
íslenskar konur.
Segir hún
verkefnið sýna
mikilvægi þess
að konur eigi sterkar fyrirmyndir.
„Verkefnið endurspeglar hversu
dýrmætt það er að hafa stuðning
og eiga sterkar fyrirmyndir.“
Einar S. Hálfdánarson
löggiltur endur-
skoðandi og
lögmaður
vildi vita hvort
það stæðist lög
að færa eignir
Félagsbústaða
eins og gert var í
reikningi Reykjavíkurborgar. „Það
skiptir ekki máli hvort fasteign-
irnar eru taldar vera fjárfestinga-
fasteignir af stjórn Félagsbústaða,
heldur hver tilgangur borgar-
innar er með því að eiga félagslegar
íbúðir.“
195
milljarðar króna er áætlað virði
fyrirtækisins Alvotech.
19.000
störf hafa horfið á ári
hérlendis.
550
hermenn eru eða eru á leið til
landsins til æfingadvalar.
52
milljarðar eru neikvæð áhrif þess
að færa eignir Félagsbústaða á
kostnaðarverði.
138
tónleikar hafa verið haldnir í
Hörpu það sem af er ári.
TÖLUR VIKUNNAR 18.10.2020 TIL 24.10.2020
Þrjú í fréttum
Flakkari,
listakona og
endurskoðandi
STJÓRNSÝSLA Sex þeirra sjö umsækj-
enda sem sóttu um embætti dómara
við Hæstarétt í haust eru metin hæf-
ust, í drögum að dómnefndaráliti
nefndar, sem metur hæfi dómara-
efna í aðdraganda skipunar.
Um er að ræða fjóra dómara við
Landsrétt, þau Aðalstein E. Jónas-
son, Davíð Þór Björgvinsson, Odd-
nýju Mjöll Arnardóttur og Þorgeir
Inga Njálsson, auk tveggja prófess-
ora við lagadeild Háskóla Íslands,
Ásu Ólafsdóttur og Bjargar Thor-
arensen.
Ástríður Grímsdóttir, héraðs-
dómari, dró umsókn sína til baka.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa drög að dómnefnd-
aráliti með þessari niðurstöðu nú
verið send til umsækjenda og þeim
veittur frestur fram í næstu viku til
að andmæla. Það mun þó ekki vera
í fyrsta heldur annað sinn, sem drög
frá nefndinni eru send til umsækj-
enda. Í fyrri drögum voru eingöngu
landsréttardómararnir metnir
hæfastir og hæfari en báðir prófess-
orarnir.
Heimildir blaðsins herma að það
hafi komið mörgum innan lög-
fræðingasamfélagsins mjög á óvart
að Björg Thorarensen, prófessor í
stjórnskipunarrétti, sé ekki í hópi
þeirra sem nefndin taldi hæfasta, en
hvorki hún né Ása Ólafsdóttir voru
í úrvalshópi umsækjenda í fyrstu
drögum.
Prófessorarnir tveir hafa báðar
minni dómarareynslu en hin fjögur
sem öll eru dómarar við Lands-
rétt. Heimildarmenn blaðsins sem
þekkja til málsins segja að álitsdrög-
in hafi verið gagnrýnd sérstaklega,
fyrir ofuráherslu á dómarareynslu
umsækjenda, enda Hæstiréttur með
annars konar hlutverk en aðrir dóm-
stólar í landinu.
Vegna breytts hlutverks Hæsta-
réttar fækkar mjög málum sem
tekin eru til meðferðar við réttinn
og er markmiðið að dómarar við
réttinn fái svigrúm til að kveða upp
vandaða og fordæmisgefandi dóma,
sem veita um leið leiðbeiningu til
neðri dómstiganna, en sem æðsti
dómstóll landsins fer Hæstiréttur
einnig með það hlutverk að skera
úr um hvort sett lög og aðrar réttar-
reglur standist stjórnarskrá.
Dómarareynsla skipti hins vegar
meira máli hjá dómstólum á neðri
dómstigum þar sem málaálag er
mikið.
Eins og Fréttablaðið fjallaði um
í vor er nú þegar gríðarlega mikil
dómarareynsla í Hæstarétti, en
f lestir dómaranna sem nú sitja í
réttinum höfðu áður starfað sem
dómarar, ýmist við héraðsdómstóla
eða Landsrétt, og einn þeirra hefur
einnig reynslu af setu í alþjóðlegum
dómstól.
Eins og áður sagði hafa umsækj-
endum um stöðurnar, sem eru nú
allir metnir jafnhæfir, verið send ný
drög að áliti og þeim gefinn frestur
á ný til að veita andmæli. Þessi máls-
meðferð vekur einnig nokkra furðu,
enda hefur umsækjendum þegar
verið veittur andmælaréttur um
hvernig þeir eru metnir af nefnd-
inni.
Verði niðurstaða nefndarinnar í
samræmi við þau drög sem nú liggja
fyrir, þarf dómsmálaráðherra því að
velja dómaraefnin tvö úr hópi allra
umsækjendanna, nema þess eins
sem dró umsögn sína til baka.
Aðeins fimm dómarar sitja nú í
Hæstarétti eftir að Gréta Baldurs-
dóttir og Þorgeir Örlygsson fóru á
eftirlaun fyrr í haust, en dómarar
við réttinn eiga að vera sjö, lögum
samkvæmt. Fjórir karlar sitja nú í
réttinum en aðeins ein kona. Því
þykir líklegt að dómsmálaráðherra
velji allavega eina konu en kysi hún
að velja tvær konur verða kynjahlut-
föll við réttinn jafnari en nokkru
sinni fyrr. adalheidur@frettabladid.is
Sex metin hæfust í Hæstarétt
Allir umsækjendur um tvö laus embætti dómara við Hæstarétt eru metnir hæfastir að dómnefndaráliti,
nema einn umsækjandi sem dró umsókn sína til baka. Upphaflega voru aðeins fjögur metin hæfust.
Almennt dæma fimm dómarar hvert mál í Hæstarétti, alls sitja sjö dómarar við réttinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Björg Thorarensen hefur lengi verið
orðuð við réttinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 4 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð