Fréttablaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 64
Það er dýrmætt fyrir þjóðina að eiga viðbragðsteymi eins og Rauða krossinn. Maður finnur það svo sterkt þegar fólk fer í gegnum hluti sem reyna verulega á. Það er eðlilegt að verða ráðalaus og í áfalli þegar alvarlegir hlutir koma upp í lífinu og þá er gott að hafa einhvern sem tekur stjórnina, hlustar, faðmar og viðurkennir hvernig fólki líður. Okkar viðkoma er oft f ljótlega eftir að hamfarir eða slys hafa átt sér stað og þá er svo mikilvægt að fólk geti hallað sér upp að einhverjum, pústað um reynslu sína en umfram allt að það viti hvert það geti leitað í fram- haldinu og að allar tilfinningar séu eðlilegar,“ segir Kristín Björk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá Símenntunarmið- stöð Eyjafjarðar og sjálf boðaliði í viðbragðsteymi Rauða krossins á Akureyri. „Ég hafði reynslu af því að tala við fólk og vinna með því í ýmiss konar persónulegri uppbyggingu þegar til mín var leitað. Í upp- hafi var þetta hugsað sem áfalla- teymi sem vera átti til taks ef um náttúruhamfarir eða stórslys væri að ræða. Í fyrra var teyminu síðan breytt í viðbragðshóp og þá þurftum við að vera mun meira til taks. Við tók stórslysavetur og geysileg óveður svo maður var meira og minna á staðnum, í stað kannski tveggja skipta á vetri áður. Þetta er búið að vera ákaflega lær- dómsríkt ferli þar sem maður eflist og vex við hverja raun og reynslu.“ Nærvera gerir kraftaverk Kristín Björk hefur á liðnu ári tekið víða til hendinni fyrir norðan. Hún hefur starfað í við- bragðshóp Rauða krossins, tekið COVID-19 símtöl, starfað í sótt- varnahúsinu á Akureyri og var mjög öflug þegar óveðrið mikla skall á í vetur sem leið. „Mér finnst gott að geta gefið af mér og verið til taks í aðstæðum eins og voru í óveðrinu á Dalvík, þar sem heilt byggðarlag var lengi án rafmagns og opnuð var fjöldahjálparstöð. Þar upplifðu sig allir litla og létu hverjum degi nægja sína þjáningu; maður stóð varnarlaus mitt í hamförunum. Íbúarnir komu til að fá mat, skjól og öryggi, og enginn vissi hvað ástandið myndi vara lengi. Þessi fjöldahjálparstöð var aðallega sett upp fyrir erlenda byggingaverka- menn sem bjuggu í vinnubúðum við höfnina en í veðrinu gekk sjórinn hreinlega yfir búðirnar. Margir þessara manna töluðu enga íslensku og takmarkaða ensku en nærvera og kaffi gera kraftaverk. Þá er ómetanlegt að eiga leiðbeiningar Rauða krossins á ýmsum tungumálum, eins og frönsku, pólsku og kínversku, sem hefur reynst dýrmætt í aðstæðum þar sem maður getur ekki tjáð sig almennilega við fólk. Það hef ég lært með starfi mínu fyrir Rauða krossinn, að sálrænn stuðningur snýst mikið til um að vera til staðar, tala minna og leyfa fólki að tjá sig og gráta,“ segir Kristín Björk. Því fylgdi góð til- finning að geta farið til Dalvíkur með lögreglunni og gera gagn. „Það er nærandi að geta gefið til baka til samfélagsins, hvort sem það er í gegnum pólitík eða hjálparstarf, og ekki síst á svona stundum. Maður stækkar við það að vera til staðar en auðvitað erum við öll í þessu saman, hvort sem það er fárviðri eða heimsfaraldur, og ég heyri oft þegar ég hughreysti aðra að þá hughreysti ég sjálfa mig í leiðinni.“ Starfið gefur mikið Kristín Björk starfar sem land- vörður á sumrin og þar hefur líka komið sér vel að hafa reynslu af sálrænum stuðningi þar sem fólk lendir í alls kyns óvæntum háska á hálendinu og er ekki í aðstæðum sem það þekkir úr daglega lífinu. „Starfið með viðbragðshópi RKÍ hefur gefið mér mikið. Að starfa í sóttvarnahúsinu var einkar fróð- legt því auðvitað eru allir að gera þetta í fyrsta skipti en ég upplifði allt til svo mikillar fyrirmyndar og fannst mikið öryggi í að sjá hvernig starfið fer fram þar. Hitt, að vinna með viðbragðsteyminu á ögurstundu, dýpkar mann, að upplifa samhuginn eins og í fár- viðrinu á Dalvík. Slík samkennd lætur engan ósnortinn. Það er dýr- mætt að sjá að til sé svo gott fólk.“ Hughreysti sjálfa mig í leiðinni Kristín Björk Gunnarsdóttir hefur haft í nógu að snúast í starfi viðbragðsteymis Rauða krossins á Akureyri og stóð vaktina í fárviðrinu mikla á Norðurlandi síðastliðinn vetur auk annarra starfa. Kristín Björk Gunnarsdóttir segir nærveru og kaffi geta gert krafta- verk. FRÉTTA- BLAÐIÐ/AUÐUNN Menntaskólinn að Laugarvatni Scanmar á Íslandi ehf Elísa Guðrún ehf Dýralæknirinn á Breiðdalsvík Hafnarfjarðarhöfn DMM Lausnir ehf. Grindavíkurbær Kambur ehf. Hópferðabílar Svans Kristóferssonar ehf Garðabær Endurskoðun Vestfjarða ehf. Skólar ehf. Akraneskaupstaður Terra Efnaeyðing hf Fáskrúðsfjarðarkirkja Matthías ehf Íslensk endurskoðun ehf Herrafataverslun Birgis ehf Dýrabær ehf Tannréttingar sf. Krappi ehf Rafsel Búðardal ehf Tölvar ehf. Jökulsárlón ferðaþjónusta ehf. Gjögur hf. Fakta ehf Múlaradíó ehf. Garðs Apótek ehf N1 ehf. Terra umhverisþjónusta hf THG Arkitektar ehf. JÁVERK ehf. Hljóðbókasafn Íslands Bifreiðaverkstæði Kópavogs ehf. Klausturkaffi ehf Wurth á Íslandi ehf. Ásvélar ehf Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu Reki ehf Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf. Hvalur hf. Sjúkrahúsið á Akureyri Laugarnesskóli Akureyrarkaupstaður Menntaskólinn við Hamrahlíð Sigurgeir G. Jóhannsson ehf Verkval ehf Þ.S. Verktakar ehf. Bókhaldsstofa Haraldar slf. Verslunartækni og Geiri ehf Bifreiðaverkstæðið Toppur ehf Hveragerðissókn Hjá GuðjónÓ ehf. Nonni litli ehf. Eiríkur og Einar Valur ehf Ottó B. Arnar ehf. Brunavarnir Suðurnesja bs. Gróðrarstöðin Réttarhóll ehf. Rafmiðlun hf. Danica sjávarafurðir ehf (Danica Sea- food Ltd.) Ísfix ehf Samvirkni ehf Höfðakaffi ehf Síldarvinnslan hf. Sæplast Iceland ehf. Dalsgarður ehf Vagnar og þjónusta ehf Norlandia ehf. Gull- og silfursmiðjan ehf Stéttarfélagið Samstaða Hreint ehf. Rarik ohf. Argos ehf Arkitektastofa Grétars og Stefáns Landssamband lögreglumanna InfoMentor ehf. Grófargil ehf. Loftorka Reykjavík ehf. BSRB Vísir hf. Skólavefurinn ehf Skorradalshreppur Verslun Haraldar Júlíussonar Málarameistarar ehf. Manning ehf. B. Markan ehf. Norðanfiskur ehf. Rafstilling ehf Krossborg ehf Nobex ehf Gísli Geir ehf Nesbúegg ehf. Aðalvík ehf Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf. dk Hugbúnaður ehf. Flúðajörfi ehf. Orkubú Vestfjarða ohf. Sveitarfélagið Ölfus Útilegumaðurinn ehf. Dómkirkjan Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf Reykjavíkurborg Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs Míla ehf. Seyðisfjarðarkaupstaður Fjárstoð ehf. Úti og inni sf Reykjanesbær PFAFF hf. Aurum ehf Hreinsitækni ehf. Brim hf. Vinnslustöðin hf. Við þökkum fyrir stuðningin Við stöndum fyrir réttlæti - Ekkert um okkur án okkar 215-0-5 255-5-10175-0-0 97-97-97 RGB P 1797 Red - 032P 1807 Gray Cool 9 PANTONE 0-100-100-30 CMYK 0-100-100-10 0-95-95-0 0-0-0-62 6 2 4 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RHJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.