Fréttablaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 72
Tíu ár eru síðan þunga-rokkssveitin Skálm-öld gaf út sína fyrstu plötu, Baldur, og var ákveðið að fagna með útgáfu tónleikaplötu. Fréttablaðið ræddi við gítarleikar- ann, Þráin Árna Baldvinsson, og trymb il inn, Jón Geir Jóhannsson, í tilefni af áfanganum sem hvor- ugur segist hafa búist við að ná. Auk þeirra eru í bandinu söngvarinn og gítarleikarinn Björgvin Sigurðsson, hljómborðsleikarinn Gunnar Ben. og bræðurnir Snæbjörn og Baldur Ragnarssynir, sem leika á bassa og gítar. „Við ætluðum bara að hafa gaman í æfingahúsnæðinu og loksins gefa út eina þungarokksplötu, komnir á miðjan aldur,“ segir Jón Geir um fyrstu skrefin. „Ég hélt að þetta myndi ekki seljast heldur myndum við fá okkar eintök af plötunni til að gefa frændum og frænkum í jólagjöf næstu 20 árin,“ segir Þráinn. Raunin varð hins vegar önnur. Upplagið af Baldri seldist upp á einni viku fyrir jólin 2010. Jón Geir segir að þeir hafi sennilega hitt á réttan tímapunkt, eftir hrunið hafi Íslend- ingar verið í sjálfsþurftarhugsunar- hætti og kunnað vel að meta þetta. Síðan hefur Skálmöld gefið út fjórar hljóðversplötur til viðbótar, tón- leikaplötu með Sinfóníuhljómsveit Íslands og leikið á hundruðum tón- leika á Íslandi, í Evrópu og Ameríku og eru á samningi við útgáfufyrir- tækið Napalm Records í Austurríki. Reyna að hanga með Skálmöld ákvað að taka pásu í ár og leika á engum tónleikum. Síðan skall faraldurinn á. Þrátt fyrir pásuna hafa þeir þó haft í nógu að snúast, meðal annars með útgáfu nýju plötunnar, Live in Reykjavík, en einnig er bók á leiðinni um sveitina eftir breska höfundinn Joel McIver, sem meðal annars hefur skrifað sögu Metallica, Slayer og Black Sabbath. „Það er ekkert plan. Við látum boltann bara rúlla,“ segir Jón Geir um framtíðina. „Og reynum að hanga með!“ segir Þráinn og hlær. Segjast þeir núna vera orðnir langt- um betri hljóðfæraleikarar en þeir voru í byrjun. „Ég gat þetta ekki. Ég þurfti að læra að spila þunga- rokk upp á nýtt, þennan ómennska hraða,“ segir Jón um fyrstu æfing- arnar, en hann hafði áður verið í hljómsveitum sem spiluðu léttari músík, Ampop og Hrauni. „Ég reyndi að spila eins margar nótur og ég gat á sem stystum tíma. Því ég hélt að þetta væri eina tækifærið fyrir mig til að spila þungarokk. Núna er þetta hins vegar orðið mun afslappaðra,“ segir Þráinn. Hann hafði reyndar verið í dauðarokksveitinni Sorori- cide, en aðeins síðustu mánuði líf- aldurs þeirrar sveitar. Skálmöld hefur haldið sínu þjóðlega goðsagnaþema í gegnum ferilinn og í senunni er hljómsveitin f lokkuð sem víkingametall. Þeir hafa sjálfir hins vegar ekki skilgreint sig sem „víkingaband“ og skera sig útlitslega úr mörgum slíkum böndum. „Napalm vildi að lúkkið yrði í lagi og við myndum klæðast loð- feldum og hringabrynjum á svið- inu,“ segir Jón Geir. „En við sögðum nei. Þeir héldu að við værum eitt- hvað ruglaðir þegar við sendum þeim mynd af okkur, því að ég var í hvítri skyrtu, Baldur í Ninja Turtles bol og tveir af okkur með gleraugu. Einhvern veginn fengum við að klæðast eins og við vildum og fá að vera í okkar gallabuxum. En þetta kemur gagnrýnendum oft á óvart. Við látum textana og sögurnar um að skapa andrúmsloftið.“ Aldrei séð Eiffelturninn Þráinn segir það hafa verið mikla áskorun að samrýma stanslaus tón- leikaferðalög og fjölskyldulífið og vinnuna. Sjálfur hafi hann sagt upp vinnu sinni í tónmenntakennslu og stofnað sinn eigin tónlistarskóla, Tónholt. Allir séu þeir þó heppnir með vinnuveitendur, sem sýni þessu skilning. Jón Geir segir það bæði bölvun og blessun að hefja þetta ferðalag svona seint. „Ég er ekki viss um að ég hefði höndlað þetta vel tvítugur,“ segir Þráinn. Þeir séu núna orðnir of gaml- ir og þroskaðir fyrir lífsstílinn sem fylgir oft rokkinu. „Í fyrra vorum við til dæmis að spila á víkinghátíð í Wales. Eftir giggið sátum við allir við húsvagn sem við fengum, spiluðum golfleik og fórum snemma í háttinn. Það er lítið Mötley Crüe í okkur,“ segir hann og brosir. Þó að Skálmöld ferðist um heim- inn, hafa meðlimir sveitarinnar lít- inn tíma til að sjá hann. „Við erum heppnir ef við fáum tvo tíma á hverj- um stað til að skoða okkur um,“ segir Þráinn. „Ég hef spilað átta sinnum í París og aldrei séð Eiffelturninn.“ „Við erum oft að spila í úthverfum stórborga í Evrópu. Þetta er eins og að vera að spila hér á höfuðborgar- svæðinu og fá aðeins að sjá Skemmu- veginn í Kópavogi,“ segir Jón Geir. Annað gildir þó um matinn og hlakka þeir oft til að komast til ákveðinna landa til að fá gott að borða. „Í Ungverjalandi fáum við kannski beikonvafið svín og gott rauðvín og osta í Frakklandi,“ segir Þráinn. „Bretarnir eru hins vegar nískir.“ Mafíunni ögrað Aðspurðir um hápunktana nefna þeir meðal annars tónleikana með Sinfóníunni og stórar hátíðir þar sem gamlir rokkrisar koma einnig fram. „Svo fengum við að syngja bakraddir með HAM frekar snemma á ferlinum,“ segir Jón Geir. Á öllum ferðalögunum hefur vitaskuld ýmislegt komið upp á en allt náð að reddast á endanum. „Eitt sinn bilaði hljómsveitarrútan í miðri eyðimörk í Rúmeníu. Ein- hvern veginn náðum við að koma okkur á staðinn, fimm mínútur í gigg,“ segir Jón Geir. „Í annað sinn átti að fresta giggi í Lissabon af því að það var dauð dúfa í niðurfallinu á þakinu í gríðarlegu vatnsveðri og það næstum hrunið. Slökkviliðið þurfti að koma til að votta að tón- leikarnir mættu fara fram.“ Hljómsveitin á umboðsmanni sínum, hinni þýsku Merle Doering, sem er jafnframt lærður orrustu- f lugmaður, margt að þakka. Hún sé mikill nagli, sem sé ekki einu sinni hrædd við að taka slaginn við ítölsku mafíuna. „Ég man þegar við vorum að spila í Mílanó og Merle var að setja upp bolasöluna,“ segir Þráinn. „Þá komu þar að menn sem seinna kom í ljós að voru úr mafíunni. Þeir sögðust ætla að taka fjörutíu prósent, annars yrði ekkert selt. Hún harðneitaði og við héldum að ekkert yrði af sölunni. En síðan sáum við fullt af fólki í bolum því hún hafði þá gefið skít í mafíuna og opnað kerru úti á götu. Mafían fékk enga peninga frá okkur.“ Jón Geir minnist rimmu við lög- regluna í Póllandi. „Björgvini var mikið mál og ætlaði að kasta af sér vatni í runna. Þá kom bíll með blikkandi ljós og út stigu lögreglu- menn, vopnaðir vélbyssum, og tóku hann. Svo þurfti hann að sitja, alveg í spreng, inni í lögreglubílnum á meðan þeir f lettu upp í gögnum hjá Interpol.“ Aðspurðir hvar sé best að spila nefna þeir einmitt Pólland, og alla Austur- og Suður-Evrópu. Oftast hafi þeir spilað í Þýskalandi, sem er risamarkaður og tenging við aðra staði í Evrópu. Þráinn segir það takmark að spila í Suður-Ameríku, Japan og Ástralíu. Gefa hverjir öðrum rými Sjaldgæft er að hljómsveitir endist í tíu ár án mannabreytinga, sér- staklega í sex manna band eins og Skálmöld. „Við erum góðir í að gefa mönnum rými,“ segir Þráinn. „Á giggi númer sautján á löngum túr kemur það fyrir að einhver er orð- inn mjög þungur og saknar fólksins síns heima. Þá fá menn rými til að loka sig af eða fá gott pepp frá okkur hinum. Einnig hefur það komið fyrir að við höfum fengið af leys- ingafólk á ákveðna túra.“ Enginn er áberandi frontmaður Skálmaldar. Jón Geir segir að Snæ- björn sé kannski háværastur en Björgvin hafi lokaorðið. „Björgvin er rödd skynseminnar í glórulausu bandi,“ segir Þráinn og hlær. „Bald- ur telur sig vera fyndnastan,“ segir Jón Geir og Þráinn tekur undir það. „Hann er unglambið og partíljónið. Fyrstur til að kynnast hinum bönd- unum.“ Báðir eru sammála um að Snæbjörn og Gunnar hrjóti mest. „Á hótelum verða þeir að vera saman í herbergi því það er ekki hægt að bjóða öðrum upp á þetta svarthol sem myndast.“ Næsti túr er skipulagður vorið 2021 en Þráinn og Jón Geir segja að það verði að ráðast hvort orðið geti af honum í ljósi faraldursins. Þang- að til geti aðdáendur að minnsta kosti yljað sér við tónleikaplötuna sem kom út í gær. Var hún tekin upp í Gamla bíói í lokahrinunni fyrir pásu sveitarinnar. Segja þeir plötu sem þessa hafa verið lengi á dag- skránni. „Þetta er hrá tónleikaplata, beint af skepnunni og ekkert átt við upptökuna,“ segir Þráinn. kristinnhaukur@frettabladid.is Neituðu að spila í loðfeldum Meðlimir þungarokksveitarinnar Skálmaldar fagnar nú tíu ára afmæli með nýrri tónleikaplötu, Live in Reykja- vík. Á ferðum sínum um Evrópu og Ameríku hafa þeir lent í ýmsu og meðal annars ögrað ítölsku mafíunni. Jón Geir og Þráinn minnast rimmu Skálmaldar við ítölsku mafíuna, pólsku lögregluna og dauða, portúgalska dúfu. Á einhvern hátt hafi þó allt reddast að lokum og hljómsveitin getað stigið á svið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Snæbjörn, Björgvin, Gunnar, Þráinn, Jón Geir og Baldur passa upp á að gefa hverjir öðrum rými á löngum tónleikaferðalögum þegar menn verða þungir og sakna fjölskyldnanna. MYND/AÐSEND 2 4 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.