Fréttablaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 10
Gleðilegar
göngugötur
Göngugötur miðborgarinnar iðuðu af lífi í sumar.
Viðtökur borgarbúa við stækkuðu göngusvæði fóru
fram úr björtustu vonum og í nýlegri könnun
Maskínu lýstu ríflega tvö af hverjum þremur yfir
ánægju með göngugöturnar og jókst ánægjan milli ára.
Nú eru göngugöturnar óðum að færast í skrautlegan
vetrarbúning og búa sig undir upplýst mannlíf
með trefla og húfur og jólatilhlökkun í hjörtum.
Njótum lífsins saman í miðborginni allt árið.
DÓMSMÁL „Björninn er ekki unn-
inn,“ segir Guðveig Eyglóardóttir,
fulltrúi Framsóknarf lokksins í
byggðarráði Borgarbyggðar, um
sátta viðræður vegna ágreinings sem
skapaðist vegna byggingar legsteina-
safns á Húsafelli.
Eins og fram hefur komið deila
tveir eigendur tiltekinna fasteigna og
lóða á Húsafelli um legsteinasafnið
sem listamaðurinn Páll Guðmunds-
son lét byggja á lóð sinni.
Eftir langt ferli í kerfinu leitaði
nágranni Páls, Sæmundur Ásgeirs-
son, til Héraðsdóms Vesturlands,
sem dæmdi um miðjan júlí að fjar-
lægja bæri legsteinasafnið.
Páll sótti eftir dóminn um leyfi til
að rífa bygginguna en nú í haust féll-
ust deilendurnir á að leita sátta með
milligöngu Borgarbyggðar. Gáfu
menn sér frest til 28. október til að
ná niðurstöðu.
Farið var yfir stöðu málsins
í byggðarráði Borgarbyggðar á
fimmtudag. Þar kom fram að lausn
þess sé enn ekki fundin.
„Í rauninni má segja að þetta sé
ekki í höfn, en báðir aðilar voru
sammála um að framlengja frest-
inn. Þannig að það virðist enn vera
áhugi fyrir að finna flöt á því að leysa
málið þótt það gangi ekki eins hratt
og örugglega og maður hefði viljað
sjá eftir allan þennan tíma,“ segir
Guðveig.
Aðspurð kveðst Guðveig ekki
vita nákvæmlega hvað standi út af
í viðræðunum. Málið í heild snúist
hins vegar um framtíðarskipulag á
svæðinu, sérstaklega hvar vegir að
húsum á svæðinu eigi að vera, og
hvar bílastæði eigi að vera.
„Svo snýst þetta líka um það hver á
að greiða fyrir hvað. Það ætti í raun-
inni að vera búið að deiliskipuleggja
svæðið, en við hjá sveitarfélaginu
erum að gefa þessum aðilum tæki-
færi til að koma að skipulaginu til að
sætta sjónarmið. En auðvitað er það
þannig í enda dags, að ef það tekst
ekki á milli þeirra að sætta sjónar-
mið, mun sveitarfélagið verða knúið
til þess að leggja sjálft fram deili-
skipulag,“ undirstrikar Guðveig.
Náist ekki sátt blasir við sú niður-
staða að dómi Héraðsdóms Vestur-
lands um að rífa þurfi legsteinasafn
Páls, verði framfylgt.
„Eins dapurlegt og það hljómar,“
segir Guðveig. „En maður náttúrlega
vonar það besta. Það er að minnsta
kosti vilji til að framlengja þessar
sáttaumleitanir og þá er enn von um
lausn.“ gar@frettabladid.is
Lengja frest til að leysa Húsafellsdeilu
Páll Guðmundsson á Húsafelli og nágranni hans hafa framlengt frest sem þeir gáfu sér til að ná sáttum um skipulag á lóðum sínum.
Bæjarfulltrúi í Borgarbyggð segir að nái þeir ekki sjálfir lendingu, verði sveitarfélagið knúið til að gera deiliskipulag fyrir svæðið.
Legsteinasafnið á Húsafelli fyrir miðju. Ósáttur nágranni rekur gistiþjónustu í húsinu til hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
Það er að minnsta
kosti vilji til að
framlengja þessar sáttaum-
leitanir og þá er enn von.
Guðveig Eyglóardóttir, fulltrúi í
byggðarráði Borgarbyggðar
2 4 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð